Fréttablaðið - 20.08.2008, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 15menningarnótt ● fréttablaðið ● 7
Gítar og sópran Steinunn Soffía
Skjenstad, sópran og norski gítarleikarinn
Solmund Nystabakk.
Norræna húsið, Sturlugötu 5.
Listaverkaupplifun á Hótel Holti
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur tekur
á móti gestum, fer með þeim um húsið
og fjallar um málverkin og listamennina.
Hótel Holt, Bergstaðastræti 37.
15.25
Skapandi sumarhópar Leynileikhóp-
urinn Stígis - Hálfdán lifnar við.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5.
15.30
Blúndurnar Strengjasveitin Blúndur og
bogar spilar léttklassísk verk og vel þekkt
dægurlög sem útsett hafa verið fyrir fiðlu,
lágfiðlu, selló og kontrabassa.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalstaðir, v/
Flókagötu.
15.55
Dagskrá Sambands íslenskra
Framhaldsskólanema. Ýmsir atburðir
yfir daginn.
Ingólfstorg.
16.00
Ó, Ó Ingibjörg Óskar, Ómar og Ingi-
björg Guðjónsbörn flytja íslensk sönglög
í systkinabúningi.
Landsbankinn, Austurstræti.
Lýðheilsutorg Hópur meistaranema í
lýðheilsu við Háskólann í Reykjavík býður
upp á Heilsutorg. Dagskráin stendur til
kl. 19.00.
Hljómskálagarðurinn.
Söguganga Starfsmenn Minjasafns
Reykjavíkur leiða göngu og segja frá
fornleifarannsóknum í miðbæ Reykja-
víkur.
Landnámssýningin Reykjavík 871+/- 2,
Aðalstræti 16.
Eru til torg í Reykjavík? Norræna
húsið stendur fyrir gagnrýni í beinni á
torg- og borgarmenningu í Reykjavík
með líflegum pallborðsumræðum á
menningarnótt 2008.
Norræna húsið, Sturlugötu 5.
Búlúlala-Öldin hans Steins Kóm-
edíuleikhúsið mun sýna ljóðaleikinn. Elfar
Logi Hannesson flytur ljóð Steins Steinarrs
í leik og tali og Þröstur Jóhannesson flytur
frumsamin lög við ljóð Steins.
Bókabúð Máls og Menningar, Laugavegi 18.
Sirkussmiðja Sirkusskólinn býður upp á
sirkussmiðju. Stendur til kl. 18.00.
Austurvöllur.
Gróður og grafir í Hólavallagarði
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma
efna til menningargöngu um Hólavalla-
garð. Heimir Björn Janusarson aðstoðar-
garðyrkjustjóri og Sólveig Ólafsdóttir
sagnfræðingur leiða gönguna.
Hólavallagarður.
Kríumyndir Sigríðar Sigríður Sverris-
dóttir myndlistarmaður sýnir einstakar
kríumyndir sem hún málar með akríl á
striga.
Lokastígur 28.
Tískusýning Nýjasta útspil fatahönnuð-
anna Tobbu og Heiðu.
Kraum, Aðalstræti 10.
Á jaðri Laugavegs Hönnuðir og
verslanir sem eru á jaðri Laugavegar, sem
sagt í hliðargötum, bakhúsum og uppi á
efri hæðum taka þátt í tískusýningunni Á
jaðri Laugavegs.
Á horni Klapparstígs og Laugavegar.
16.15
Glingur í Pósthússtræti!
Klassískir tónar óma um bæinn þegar Tríó
Glingur stígur á stokk við Hitt húsið.
16.30
Látúnshnötturinn Tomas Dobrovol-
skis frá Litháen sem leikur á ýmis hljóðfæri
hefur hannað og þróað nýtt ásláttarhljóð-
færi sem nefnist Látúnshnötturinn. Verkið
sem hann flytur er samið sérstaklega fyrir
menningarnótt.
Iðnó, Vonarstræti 3.
I HATE NATURE / ‘Aluminati’ Dagný
Bjarnadóttir, landslagsarkitekt FÍLA, ann-
ast leiðsögn og ræðir hugmyndafræðina
að baki verkum Mörthu Schwartz.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalstaðir,
v/Flókagötu.
Maraþonleiðsögn Huginn Þór Arason
myndlistarmaður ræðir sýninguna Til-
raunamaraþon við gesti.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Tryggva-
gata 17.
16.45
Únettinn Harpa Sólveig Thoroddsen í
Únettinum Hörpu leikur keltneska þjóð-
lagatónlist frá Írlandi, Skotlandi og Wales,
á írska hörpu.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5.
Frumsaminn djass Skver kvartettinn
leikur frumsamda djasstónlist.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5.
17.00
Tvö á torgi Dúettinn Við tvö syngur og
flytur á gítar þjóðlög í bland við angur-
vær íslensk dægurlög.
Á mótum Þingholtsstrætis og Amtmanns-
stígs.
OFURGESTIR - Leiðangur með Ölmu
Dís Kristinsdóttur um sýningu Hafnarhúss.
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi, Tryggva-
gata 17.
Djass Jóel Pálsson og Sigurður Flosason
spila saman.
Kraum, Aðalstræti 10.
Tími til að lifa og njóta – Reykjanes-
bær, gestasveitarfélag menningarnætur
Karlakór Keflavíkur flytur efni af væntan-
legum diski.
Ráðhús Reykjavíkur.
Tyrkneskur Tanoura-dans Egypski
dansarinn Ahmed Fekry sýnir dansinn
Tanoura.
Iðnó, Vonarstræti 3.
Reykjavík Stories Bandaríski leikarinn
Darren Foreman flytur íslensk ljóð, sagna-
brot og leiktexta á ensku.
Borgarbókasafn, Grófarhúsi, Tryggvagötu
15.
Sýnd klukkan 5, 7 og 9 Heimildar-
myndin Sýnd klukkan 5, 7 og 9. Verður
sýnd á vegum Reykjavík Shorts&Docs í
glugga á Laugavegi 35. Einnig sýnd kl.
19.00 og 21.00.
Tónlistardagskrá Rokksaga Íslands
sýnd í húsakynnum Hljómalindar á veg-
um Reykjavík Shorts&Docs. Laugavegur
23. Einnig sýnd kl. 19.00 og 21.00.
Marsakeppni S.L.Á.T.U.R. - ÚRSLIT
Lúðrasveit S.L.Á.T.U.R. leikur alla marsana í
Marsakeppni S.L.Á.T.U.R. 2008.
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7.
Á bak við tjöldin - Hið allra heilagasta
afhjúpað. Skoðunarferðir í geymslur og
bakland safnsins þar sem varðveitt eru
mörg af helstu menningarverðmætum
þjóðarinnar.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalstaðir,
v/Flókagötu.
Söngleikjadagskrá úr West Side
Story Ingveldur Ýr og Söngflokkurinn
flytja söngleikjadagskrá úr West Side
Story, Porgy and Bess, Jesus Christ Super-
star, Phantom of the Opera o.fl.
Fríkirkjan í Reykjavík.
Suðrænir tónar í Nostrum Pamela
de Senzi flautuleikari og Rúnar Þórisson
gítarleikari leika í Nostrum á Menning-
arnótt.
Skólavörðustíg 1A.
Skapað af list Marilyn Herdís Mellk
þrykkir á elstu grafikpressu landsins sem
Guðmundur Einarsson frá Miðdal flutti til
landsins 1925.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14.
artFart - Dj Hamingja Horfst í augu
við einveruna í margvíslegum myndum.
Smiðjan Sölvhólsgötu 13.
17.30
Fjölskylduleiðsögn Leiðsögn í
norðursal um sýninguna Hvar er ég? og
leiðangur í kjölfarið um aðrar sýningar
safnsins.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalstaðir,
v/Flókagötu.
Danshópurinn HVIK HVIK breytist í
lifandi skúlptúr fyrir framan Hitt húsið.
18.00
Norrænir Nýhilvinir Norrænir gestir
ljóðahátíðar Nýhils lesa ljóð sín og gefa
nasasjón af upplestrardagskrá seinna um
kvöldið.
Norræna Húsið, Sturlugata 5.
Gluggi í nöturlega fortíð Leik-
húsgjörningur á tyrfðu torgi eftir Hilmi
Jensson og Ingibjörgu Huld Haraldsdótt-
ur, Björn Leó Brynjarsson og Olgu Sonju
Thorarensen.
Port á Laugavegi 3.
Art Quiz – Gettu ennþá betur! Spurn-
ingaleikurinn sívinsæli Pub Quiz settur
í samhengi myndlistar og hönnunar.
Keppni um byggingarlist kl. 18, um
hönnun kl. 19 og myndlist kl. 20.
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús, Tryggva-
gata 17.
Undir Parísarhimni Ekta frönsk
stemmning í Iðnó. Dagskráin til kl. 22.00.
Iðnó, Vonarstræti 3.
Tilfinningatorg Efnt verður til tilfinn-
ingabingós með veglegum vinningum
m.a. eintómri hamingju sem heppinn
vinningshafi verður aðnjótandi. Umsjón
með Tilfinningatorginu hafa Elísabet
Jökulsdóttir rithöfundur, Steinunn
Helgadóttir myndlistarmaður og Þröstur
Leó Gunnarsson leikari.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalstaðir,
v/Flókagötu.
18.00
Tríó Reynis Sigurðssonar Leikur
léttan djass á nýlögðu torgi hjá Eggerti
feldskera við Skólavörðustíg 38.
Hljómurinn og Bræðin Götuspilara-
dúett skipaður þeim Haraldi Davíðssyni
og Einari Maack. Til kl. 21.00.
Austurvöllur.
Fimmta árstíðin Toshiki Toma, prestur
innflytjenda á Íslandi, flytur eigin ljóð
á íslensku og kynnir einnig japanska
ljóðlist.
Borgarbókasafn, Grófarhúsi, Tryggvgata
15.
Argentínskur Tangó Dansarar í
Tangóævintýrafélaginu munu koma
saman á Bríetartorgi við Amtmannsstíg
og dansa seiðandi argentínskan Tangó.
Hin klassísku gildi Halldór B. Runólfs-
son safnstjóri, leiðir gesti um sumarsýn-
ingu safnsins á verkum úr safneign.
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7.
18.30
Afleggjarinn Auður Ólafsdóttir
rithöfundur les úr verðlaunabók sinni
Afleggjarinn.
Borgarbókasafn, Grófarhúsi, Tryggvgata 15.
19.00
Miklatún á Menningarnótt Lands-
bankinn, máttarstólpi Menningarnætur
og Rás 2 bjóða upp á glæsilega tónleika
á Miklatúni. Boðið verður upp á fjöl-
breytta dagskrá á túninu samfleytt frá kl.
19.00 til 22.30. Hljómsveitirnar sem koma
fram að þessu sinni eru. Ný Dönsk, Jet
Black Joe, Magnús og Jóhann, Hjaltalín,
Bloodgroup og Fjallabræður. Það er
hefð fyrir því á þessum stórtónleikum
að boða endurkomu þekktra íslenskra
hljómsveita eða tónlistarmanna. Að
þessu sinni koma tónlistarmennirnir
Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann
Helgason fram saman í fyrsta sinn í
langan tíma.
Ástir og örlög Ástir og örlög af
sýningum safnsins eru dregin fram
í dagsljósið, Kl. 20.00 og 21.30 flytur
Aðalsteinn Ásberg yndisfögur ástarljóð
og vísur. Opið til 23.00.
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41.
Poppmessa Stomphópur Íslands
opnar Poppmessu 2008 á Ingólfstorgi.
Grillpartý, 1000 pylsur í boði. Fjölbreytt
tónlistardagskrá til kl. 22.30.
Ingólfstorg.
Alþjóðahús flytur Alþjóðleg matar-
og menningarveisla í porti nýja húsnæð-
isins. Á meðan veislan stendur yfir verður
einnig haldin söngva-/ karokíkeppni
á svölum nýja hússins. Opið til 22.00.
Alþjóðahús, Laugavegi 37.
Maddit? Maddit Theater Company
frumsýnir hvorki né endurtekur. Verk í
stöðugri vinnslu.
Smiðjan, Sölvhólsgötu 13.
20.00
Tónlistarveisla í Dómkirkjunni
Guðbjörg Sandholt og Arnbjörg María
syngja lög eftir Bernstein, Kurt Weil,
Offenbach og fl. Kl. 20.30. Hallveig Rún-
arsdóttir sópran, Sólveig Samúelsdóttir
mezzósópran, Jón Svavar Jósefsson
baritón flytja tónlist eftir W.A. Moz-
art, Hrönn Þráinsdóttir leikur á píanó.
Kl. 21.30 Kristinn Bragason píanó og
Sigurjón Bergþór Daðason klarinett. Kl.
22.00 Júlía Traustadóttir sópran og Birna
Hallgrímsdóttir píanó syngja og leika
tónlist eftir R. Schumann og E. Grieg.
Veislan stendur til kl. 22.30.
Vinir Nýtt verk eftir Símon Birgisson, í
leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar.
Kassinn, Þjóðleikhúsinu.
Sungið og leikið Kurt Weill á leik-
rænum nótum í flutningi Jönu Maríu
Guðmundsdóttur við undirleik Kolbrúnar
Sæmundsdóttur.
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7.
Erró – Grimages - Stutt leiðsögn.
Þorbjörg Br. Gunnardóttir sýningarstjóri
fjallar um verk Errós.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús,
Tryggvagata 17.
Undir Parísarhimni – franskt dansi-
ball
Hressilegt franskt dansiball með söng-
konunni Hlín Pétursdóttur og harmon-
ikkuleikaranum Yuri Fedorov.
Iðnó, Vonarstræti 3.
Ljóðapartí Alþjóðlegir gestir og úrval
innlendra ljóðskálda lesa upp úr verkum
sínum í bland við ljúfa tóna frá The Di-
version Session. Óhefðbundin skemmt-
un milli atriða, opinn bar og ókeypis inn.
Opið til kl. 23.00.
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins, Hverfis-
götu 19, 101 Reykjavík.
Tími til að lifa og njóta – Reykjanes-
bær Gestasveitarfélag Menningarnætur
Hljómsveitin Hjálmar spilar.
Ráðhús Reykjavíkur.
Dixie-bandið Öndin leikur til kl.
22.00.
Hressingarskálinn, Austurstræti 20.
Tónleikar í garði Organ Fram koma;
XXX Rottweiler Ultra Mega Techno-
bandið Stefán, Singapore Sling spilar á
miðnætti og Dj heldur svo uppi stemn-
ingunni frá kl. 01.30.
Organ, Hafnarstræti 1 - 3.
Tónleikahald í bakgarði Ófeigs
Gæðablóð, Bandið hans pabba og fleiri
koma fram.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg.
Sigurslammið Halldóra Ársælsdóttir,
sigurvegari fyrsta ljóðaslamms Borgar-
bókasafns syngur eigin lög og spilar
undir á gítar.
Borgarbókasafn, Tryggvagötu 15.
Klassískar aríur og kraftmikið
rokk
Hátíðagestum er boðið að hlýða á valin
söngatriði úr fyrstu frumsýningum
haustsins, annars vegar hinum glænýja
rokksöngleik Janis 27 eftir Ólaf Hauk
Símonarson og hins vegar óperunum
Pagliacci eftir Leoncavallo og Cavalleria
Rusticana eftir Mascagni.
Íslenska Óperan, Ingólfsstræti 7.
Svo á jörðu sem á himni
Mozaik Hvítasunnukirkja býður til lof-
gjörðarsamkomu.
Mozaik Hvítasunnukirkja – Skógarhlíð 20.
Lifandi keltneskt þjóðlagakvöld
Tónlistarhópurinn Hálendingarnir halda
uppi keltneskri kráarstemmingu. Til kl.
23.00.
Verslunin Stíll, Laugavegi 58.
Reykjavík Archive
Þöglar kvikmyndir á vegum íbúasam-
taka Grjótaþorps. Sýningin stendur til
miðnættis.
Á bakvið gömlu Morgunblaðshöllina.
20.15
SOMETIME Electro-popp bandið
SOMETIME spilar í versluninni KVK.
Laugavegi 58a.
Trúbador Svavar Knútur, úr hljómsveit-
inni Hraun, skemmtir sem trúbador
Kraum, Aðalstræti 10.
20.45
Við Tjörnina Fræbblarnir, Megasukk
og Palindrome spila í portinu á veitinga-
staðnum Við Tjörnina.
Templarasundi 3.
20.50
Eins og honum er einum lagið Guð-
björn Guðbjörnsson óperusöngvari flytur
létt lög við undirleik.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14.
21.00
Tónlist frá Kúbu Kúbverski trúbadorinn
Juan Alberto Borger del Pino flytur kúb-
verska tónlist.
Borgarbókasafn, Tryggvagata 15.
Djass í Djúpinu Dúettinn “Skoffín og
Skuggabaldur” leikur í Djúpinu sem er í
kjallara veitingastaðarins Hornsins.
Hafnargötu 15.
Tríó á Torgi Bjargræðistríó í Fríkirkjunni við
Fríkirkjutorg mun með sinni alkunnu snilli
og yfirburða flinkheitum skemmta gestum
og gangandi.
Fríkirkjan í Reykjavík við Fríkirkjutorg.
Hallgrímskirkjumyndir Gömlum ljós-
myndum frá byggingartíma Hallgrímskirkju
blandað saman við nýrri myndir Þórólfs
Antonssonar og Hrannar Vilhelmsdóttur í
stafrænni myndaveislu á vegg Café Loka.
Café Loki, Lokastígur 28.
Stomp Ungir tónlistarmenn spila á rusla-
tunnur og annan efnivið sem þeim tínist til
og úr verður frumlegur og skemmtilegur
hljóðheimur.
Á horni Laugavegs og Bankastrætis.
Jazz í Eymundson.
Árlegir tónleikar Tríó Björns Thoroddsen
ásamt Ragga Bjarna heldur sína árlegu
Menningarnæturtónleika í Eymundsson,
Austurstræti. Tríóið inniheldur hina lands-
þekktu tónlistarmenn Björn Thoroddsen,
Jón Rafnsson og Guðmund Steingrímsson
og hafa færri komist að en vildu undanfarin
ár til að upplifa stemmninguna. Opið til kl.
23.00.
Eymundsson, Austurstræti 18.
21.30
Matur dans og gleði við Sjávar-bar-
inn Hin rómaði Kulturang Pinay Filipino
Style danshópur stígur frumbyggja-dansa
að hætti friðelskandi eyjaskeggja. Dans-
hópurinn er skipaður átta stúlkum sem
eiga rætur að rekja til Filipseyja en búa nú
á Íslandi.
Sjávarbarinn, Grandagarði 9.
Hundur í óskilum - Hundastjarnan
Endurnýtt tónlist í óvæntum flutningi. Í
samvinnu Þjóðmenningarhúss og Gljúfra-
steins.
Þjóðmenningarhúsið, Hverfisgötu 15.
21.45
200.000 Naglbítar og Lúðrasveit
verkalýðsins í boði ASÍ Í fyrsta skipti
leiða saman hesta sína rokkbandið 200.000
Naglbítar og Lúðrasveit verkalýðsins.
Hljómsveitin er skipuð fimmtíu manns á
öllum aldri og hefur æft stíft fyrir tónleik-
ana þar sem flutt verða lög Naglbítanna í
nýrri útsetningu.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Tryggva-
gata 17.
22.00
Tími til að lifa og njóta – Lokaatriði
Reykjanesbæjar Gestasveitarfélags Menn-
ingarnætur Rokksveit Rúna Júl.
Ráðhús Reykjavíkur.
Geirfuglarnir í Iðnó Þessi líflega en
undarlega hljómsveit heldur sína árvissu
Menningarnæturtónleika í Iðnó.
Vonarstræti 3.
22.30
Skrúðganga Litrík skrúðganga í fylgd írsks
götuleikhúss. Gönguna leiða uppblásnar
litríkar verur við undirleik Dixiebands.
Frá Lækjartorgi að Sæbraut.
23.08
Flugeldasýning Glæsileg flugeldasýn-
ing á hafi úti í boði Orkuveitu Reykjavíkur.
Hjálparsveit skáta stjórnar flugeldasýningu
undan Sæbraut með hjálp Landhelgisgæsl-
unnar.
Áhorfendur geta komið sér fyrir austur eftir
Sæbrautinni.
23.45 – 00.30
Miðnæturguðsþjónusta Prestar
Dómkirkjunnar og organisti þjóna ásamt
prestum Keflavíkurkirkju þeim sr. Sigfúsi
Baldvini Ingvasyni og sr. Skúla Ólafssyni
sem prédikar. Kór Keflavíkurkirkju syngur
undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Jóhann
Smári Sævarsson og Bylgja Dís Gunnars-
dóttir syngja einsöng.
Dómkirkjan í Reykjavík.
DAGSKRÁ MENNINGARNÆTUR