Fréttablaðið - 20.08.2008, Side 34
20. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR
Hvernig skyldu lög 200.000
naglbíta hljóma í lúðrasveit-
arbúningi? Það kemur í ljós á
menningarnótt þegar hljóm-
sveitin stígur á svið með Lúðra-
sveit verkalýðsins.
„Einhvern tímann lýsti ég því
þannig að þetta væri eins og tón-
listin í þýskri herskipabíómynd,
sem myndi gerast í himnaríki, ef
Wagner myndi leikstýra henni,“
segir Vilhelm Anton Jónsson,
söngvari 200.000 naglbíta, þegar
blaðamaður spyr hvernig Naglbíta-
lögin hljómi í lúðrasveitarbúningi.
„Þetta er alla vega alvöru rokk og
hávaði,“ útskýrir hann.
200.000 naglbítar vinna nú að
plötu ásamt Lúðrasveit verkalýðs-
ins þar sem tíu af þekktustu lögum
Naglbítanna munu heyrast í nýjum
búningi. Undanfarin ár hefur það
verið algengt að hljómsveitir komi
fram ásamt sinfóníu-hljómsveit
en þetta með lúðrasveitina verð-
ur að teljast svolítið óvenjulegt.
„Þetta hefur ekki verið gert hér á
Íslandi áður, alla vega ekki svona
stórt verkefni. Okkur langaði að
prófa eitthvað nýtt og ég sendi póst
á www.ludrasveit.com þar sem ég
bað hljómsveitarstjórann um að
hringja í mig. Honum leist svona
líka vel á þetta og allt fór af stað.
Áður en ég vissi af voru komn-
ir fimm útsetjarar í vinnu við að
útsetja lögin okkar og 45 manna
lúðrasveit farin að æfa,“ segir Vil-
helm.
Platan kemur út í október og enn
sem komið er hafa lögin hvergi
heyrst opinberlega í þessum nýja
búningi. Tónleikarnir á menningar-
nótt verða því frumflutningur.
Tónleikarnir fara fram í portinu
í Hafnarhúsinu (Listasafni Reykja-
víkur) og hefjast klukkan níu með
gítartríóinu Árstíðum. „Svo komum
við á svið ásamt lúðrasveitinni
klukkan korter í tíu og þetta ætti
að vera búið mjög tímanlega fyrir
flugeldasýninguna,“ segir Vilhelm
sem lofar góðri skemmtun bæði
fyrir eyru og augu. „Ég sé lögin
alltaf mjög myndrænt fyrir mér
og nú er þetta orðið enn þá mynd-
rænna. Það er verið að setja upp
110 fermetra svið og þarna verð-
ur lúðrasveit í búningum með ný-
bónaða lúðra. Þetta er svo flott að
við erum bara með gæsahúð á æf-
ingum.“
Í ár eru tíu ár liðin síðan fyrsta
plata Naglbítanna kom út. Vilhelm
segir að þekkt lög á borð við Láttu
mig vera og Vögguvísur fyrir
skuggaprins fái að hljóma á tónleik-
unum í kraftmeiri og dramatískari
útgáfum en aðdáendur hljómsveit-
arinnar þekkja. „Þetta verður bara
alvöru rokk. Ég get lofað því að
Vögguvísur fyrir skuggaprins eru
ekki að fara svæfa neinn í þetta
sinn,“ segir Vilhelm. - þo
Alvöru rokk og hávaði
Strákarnir í 200.000 naglbítum, Benedikt Brynleifsson, Vilhelm Anton og Kári Jóns-
synir, lofa almennilegum rokktónleikum á menningarnótt. Enda varla annað hægt
þegar heil lúðrasveit er með í för. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ó
l
f s s o n
a r
x
Eg skal kveða um
eina þig
alla mína daga
Á s t a r l j ó ð P á l s
Ó l a f s s o n a r
Sumar kiljur eru sumarkiljur
Skipholti 35
105 Reykjavík. sími 511 7010
petur@galleriborg.is