Fréttablaðið - 20.08.2008, Qupperneq 46
0,3% 5,6% 2,6%Eignaverð lækkaði um 0,3% að nafnverði í júlí samkvæmt Eignaverðsvísitölu Kaupþings. Þetta er
þriðji lækkunarmánuðurinn í röð.
Tólf mánaða verðbólga í
Bandaríkjunum mælist nú 5,6% og
hefur ekki verið hærri í 17 ár. Búist er
við 4,8% verðbólgu næstu tólf mán-
uðina.
Árshækkun fasteignaverðs í júlí er
2,6% en var rúmu hálfu prósentustigi
hærra í júní. Raunverð íbúðaverðs á
höfuðborgasvæðinu hefur lækkað um
9,6% frá áramótum.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
E.Coli gerlar eru best þekktir
fyrir að valda matareitrunum, en
nú er fyrirtæki í Bandaríkjunum,
LS9, að hefja framleiðslu á dísil-
olíu með hjálp erfðabreyttra
E.Coli gerla.
Fyrirtækið er eitt margra
í Sílíkondalnum svokallaða
í Kalíforníu sem eru að þróa
aðferðir til að framleiða örver-
ur sem nærast á landbúnaðar-
úrgangi eða viðarspónum og
skila af sér bensíni eða dísilolíu.
Úrgangur E.Coli gerla er efna-
fræðilega mjög líkur hráolíu,
og því þarf ekki að gera mikl-
ar breytingar á gerlunum til að
þeir skili af sér olíu.
E.Coli Dísel
Reglur um útlit grænmetis og
hversu sveigðar gúrkur (sem
verða að vera beinar) eða ban-
anar (sem ekki mega vera bein-
ir) eiga að vera hafa oft verið
nefndar sem dæmi um fáránleika
reglugerðarverksins í Brussel.
Nú hefur Evrópusambandið hins
vegar ákveðið að afnema nánast
allar reglugerðir um form, útlit
og lit grænmetis og ávaxta.
Reglurnar hafa orðið til þess
að þúsundum tonna af grænmeti
er fargað árlega, en á tímum
hækkandi matvælaverðs þykir
slíkt óforsvaranlegt. Frakkar,
Spánverjar og Ítalir, sem eru
helstu grænmetisframleiðendur
Evrópu, vilja hins vegar halda í
reglurnar, og staðhæfa að þær
„verndi neytendur“.
Til að ná samkomulagi
hefur Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins sam-
þykkt málamiðlun sem felur
í sér að áfram munu gilda
Evróputilskipanir um útlit tíu
ávaxta, berja og grænmetisteg-
unda, meðal annars tóm-
ata, epla, jarðarberja og
kíví-ávaxta.
Bognar gúrkur
aftur leyfðar
Á kynningarfundi vegna uppgjörs
Icelandair Group fór Björgólfur
Jóhannsson forstjóri meðal ann-
ars yfir styrka lausafjárstöðu
félagsins, um 6,3 milljarðar króna
í júnílok, sem skýrist að nokkru
af því að greitt hefur verið inn á
ferðir í ágúst og september, en þá
fellur til kostnaðurinn.
„Þetta sýnir hins vegar að efna-
hagsstaðan er sterk, sama hvað
þeir segja á Útvarpi Sögu og er
ekki af því við höfum verið að
selja einhverja hreyfla,“ hnýtti
hann við, greinilega langþreyttur
á fjasi um félagið sem á sér litla
stoð í raunveruleikanum.
Annars var létt yfir Björgólfi
og hann greinilega ánægður með
viðsnúning í rekstri og árangur
aðgerða sem gripið hefur verið
til í rekstrinum. Hann er þó ekki
alveg laus við sjómannalíking-
arnar, segir stefnt á að „halda sjó
í fluginu“.
Halda sjó
í fluginu
Hvers vegna PwC?
Þekkingarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi og leiðandi á alþjóðavettvangi.
Endurskoðun Fyrirtækjaráðgjöf Skatta- og lögfræðiráðgjöf
Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Reykjanesbær www.pwc.com/is
*connectedthinking