Fréttablaðið - 20.08.2008, Qupperneq 50
22 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR
NOKKUR ORÐ
Sunna Dís
Másdóttir
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þvengs-Þrándur
teygir vel eftir
hlaupatúr í
skóginum!
Þá,
skyndilega ...
Útgáfufyrirtækið sagði
að þeir hefðu hætt
útgáfu nærbuxna-
blaðsins fyrir tíu árum
og þeir myndu frekar
endurlífga Gengis
Khan og Hitler!
Man eftir
því blaði!
Hvað
ætli þeir
kjánar
séu að
gera í
dag?
Þannig varð
Þvengs-Þrándur að
Stuttbuxna-Þrándi!
Hvert ertu að fara?
Kemurðu heim í kvöldmat?
Ætlarðu að vera með Stanislav?
Ekki viss
Veit ekki
Kannski
Þegar þú ert búinn að finna
út úr því máttu fara.
Þú eyðileggur alltaf
plönin mín!
Svindl!?!
Ha?
Lalli, finnst þér
þessi peysa ekki
vera svolítið svindl? Þróunarkenningin! Þeir hæfustu eiga að lifa af,
ekki þeir sniðugustu!
Heyrðu! Hvar get ég
fengið svona?!?
Þetta er geggjað! Þú lítur út
fyrir að vera alvöru leikmaður!
Ókei, nú kasta ég!
Ertu tilbúinn?
Ég sagði, ertu
tilbúinn!? Til!
Einhvern daginn
verður þetta allt
þitt, sonur sæll!
Blúbb!
Ég hafði aldrei sérstaklega mikla trú á stjörnuspeki fyrr en ég las í fyrsta skipti lýsingu á eigin merki og rak upp
stór augu. Það átti merkilega margt merki-
lega mikið við mig í þeirri lýsingu. Ég er, jú,
óákveðin með eindæmum og þarf að vega og
meta hlutina út í hið óendanlega áður en ég
tek ákvörðun. Og, já, það eru mun meiri
líkur á því að finna mig í stöðu sáttasemjara
en ræðumanns sem rífst og skammast, til að
koma eigin skoðunum á framfæri.
Ég er þeirrar náttúru, eða ónáttúru, að
eiga erfitt með að ákveða flesta hluti. Þeir
sem hafa farið með mér út að borða geta
staðfest það, enda hefur vin-
kvennahópurinn, sem státar af
heilum tveimur vogum, oftar
en ekki brugðið á það ráð að
lesa upp þrjá valmöguleika
af seðlinum í staðinn fyrir
að sýna mér hann - og
takmarka þannig eigin þjáningu á meðan ég
engist um af óákveðni um hvort magann
minn langi frekar í tortellini eða tapas.
Veröldin hefur skroppið saman á síðustu
áratugum. Í dag er svo til allt hægt, allt
gerlegt og mér, eins og svo mörgum öðrum,
stendur nánast allt til boða. Ég á hins vegar
við það lúxusvandamál að stríða að geta ekki
ákveðið mig. Hvort ætti ég að fara að hjúkra
ljónum í Afríku eða setjast við skriftir í
Tékklandi eða læra ljósmyndun eða hönnun
eða lögfræði í Suður-Ameríku eða stofna
fyrirtæki hérna á heimavelli?
Matseðillinn er óendanlega langur og ég
er farin að hafa áhyggjur af því að ég svelti
hreinlega í hel á meðan ég reyni að
ákveða mig. Ef einhver býður sig fram
í að hólfa seðilinn niður í forrétt,
aðalrétt og eftirrétt væri það þess
vegna afskaplega vel þegið. Hlað-
borð virðast ekki eiga við mig.
Hver er réttur dagsins?
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Ítalía
31. ágúst og 7. sept.
frá kr. 17.990
Verð kr. 29.990
Flugsæti báðar leiðir til Trieste með
sköttum 31. ágúst, 7. eða 14. sept. í
eina eða tvær vikur. Netverð á mann.
Verð kr. 17.990
Flugsæti aðra leið til Trieste með
sköttum (Kefl avík - Trieste), 31. ágúst
eða 7. sept. . Netverð á mann.
Allra síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Trieste í lok ágúst og byrjun
september. Þú velur hvort þú leggur Ítalíu að fótum þér, kíkir til Króatíu eða heimsækir
Slóveníu. Bjóðum einnig gistingu, bæði í Króatíu og á Ítalíu á frábærum kjörum.
Fjölbrautaskólinn i Breiðholti óskar eftir að ráða
fyrirsætu vegna myndlistarkennslu.
Nánari upplýsingar gefur kennslustjóri Listnámsbrautar
Ingiberg Magnússon í síma 868 5628.
Skólameistari.
Austurbergi 5, 111 Reykjavík sími 570 5600
Símbréf 567 0389
Tölvupóstur fb@fb.is
www.fb.is
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...