Fréttablaðið - 26.08.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
26. ágúst 2008 — 231. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Fimmtug og í fantaformi
Sigrún Kjartansdóttir kom sé í fh ilb
Sigrún Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri hjá Glitni, kom sér í form fyrir fimmtugt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NETNÁMSKEIÐ verða sífellt þægilegri í heimi nútímans þar sem fólk getur lært á sínum hraða hvar
og hvenær sem það vill og stundað námið þegar því
hentar. Á fjarkennsla.com er boðið upp á viðskipta- og
tölvutengd fjögurra til átta vikna námskeið sem hefjast
í byrjun september.
Ertu með eitthvaðgott á pjónunum?
Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna
og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn,
sem kallast Föt sem framlag , mun hittast næst og
prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð,
miðvikudaginn 27. ágúst kl. 16-18 .
Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist
reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að
taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa ga
í verkefnið vinsamlega h fið
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
VEÐRIÐ Í DAG
Endalok hernáms
Í stað samnings um ævarandi
hernám er nú verið að semja um
brotthvarf bandarísks herliðs frá
Írak, skrifar Sverrir Jakobsson.
Í DAG 16
SIGRÚN KJARTANSDÓTTIR
Ákvað að hlaupa sitt
fyrsta maraþon 47 ára
• heilsa • nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
SÍBS sjötíu ára
70 ár eru liðin síðan
berklasjúklingar
komu saman á Vífils-
stöðum og stofnuðu
Samtök íslenskra
berklasjúklinga.
TÍMAMÓT 18
HEILSA „Eldra fólk sem segist
geta nefnt fyrstu hundrað
aukastafina í pí lætur barna-
börnin alveg falla í stafi,“ segir
Gísli Páll Pálsson, framkvæmda-
stjóri dvalarheimilisins Áss og
skipuleggjandi
minnisþjálfun-
arnámskeiðs,
sem haldið
verður í næstu
viku.
Tveir
erlendir
minnisþjálfar-
ar sem Gísli
Páll kynntist í
gegnum
evrópsk
öldrunarsamtök kenna á nám-
skeiðinu aðferð sem notuð var
fyrir hundruðum ára í Austur-
Evrópu.
„Námskeiðið er fyrst og
fremst hugsað fyrir starfsfólk
dvalarheimila en ef fleiri eru
áhugasamir um minnisþjálfun
eru þeir velkomnir,“ segir Gísli
Páll. - mmf / sjá Allt
Minnisþjálfunarnámskeið:
Muna hundrað
aukastafi pí
GÍSLI PÁLL
PÁLSSON
GUNNAR ERNIR BIRGISSON
Næsti Gunnar
á Hlíðarenda
Býr í húsvarðaríbúð Valsheimilisins
FÓLK 30
Órafmögnuð hátíð
Svavar Knútur Kristins-
son skipuleggur tónlist-
arhátíð á nýopnuðum
Café Rósenberg
um helgina.
FÓLK 24
REBEKKA KOLBEINSDÓTTIR
Hættir í Merzedes Club
Magga Edda Jónsdóttir verður söngkona sveitarinnar
FÓLK 30
HESTAR Hlutfall grárra hrossa í
íslenska hrossastofninum hefur
lækkað verulega frá því úttekt
var gerð á litskiptingu stofnsins
um 1930. Þá voru grá hross 23,1
prósent af stofninum en árið
2006 voru þau ekki nema 6,7
prósent.
Guðlaugur Antonsson hrossa-
ræktarráðunautur segist þó
engar áhyggjur hafa. „Ég held að
gráum hrossum sé jafnvel aðeins
að fjölga en þetta byggist allt á
kröfum. Ef til er góður grár
stóðhestur þá fæðast fleiri grá
hross og Gustur frá Hóli hefur
þar haft áhrif.“ Guðlaugur
bendir einnig á að tölurnar frá
1930 séu ekki eins áreiðanlegar
og nú en samt sé þetta mikill
munur. -hs / sjá sérblað lh hestar
Breytingar á hrossastofni:
Hlutfall grárra
hrossa minnkar
NÁTTÚRA „Það er skoðun nær
allra sem ég hef talað við að því
þyki sem jökullinn hafi aldrei
verið minni en nú,“ segir Guð-
rún Lára Pálmadóttir, starfs-
maður í þjóðgarðinum Snæfells-
jökli.
Oddur Sigurðsson jarðfræð-
ingur, sem búsettur er á Hellis-
sandi á Snæfellsnesi, segir það
rétt að jökullinn sé að minnka
mikið. Hins vegar sé mjög erfitt
að greina slíkar breytingar frá
jörðu niðri og jafnvel þegar upp
er komið. Skýringin á því hve
lítill jökullinn virðist nú sé ekki
sú að hann hafi minnkað svo
greinilega heldur sú að óvenju-
mikinn snjó leysti á svæðinu í
sumar. Fólk rugli því saman
sköflum og jökli.
„Hafi jökullinn verið 12 hekt-
arar fyrir 100 árum er hann 11 til
10,5 nú,“ segir Oddur og bendir
þar með á að breytingarnar séu
hægari en fólk haldi.
Á vefsíðunni skessuhorn.is var
fyrir skömmu greint frá því að
forsvarsmenn fyrirtækisins
Snjófells hefðu ákveðið að hætta
að bjóða ferðamönnum upp á vél-
sleðaferðir upp á jökulinn vegna
þess hve snjólítill hann sé.
Sprungur séu nú mun fleiri og
varasamt að vera á jöklinum um
þessar mundir.
Oddur segist þó ekki telja að
jökullinn sé hættulegri yfirferð-
ar en áður en að fólk skuli þó
sýna aðgát þegar farið er um
hann. - kdk
Jarðfræðingur segir misskilning að Snæfellsjökull bráðni nú með ógnarhraða:
Snæfellsjökull stærri en hann sýnist
SNÆFELLSJÖKULL Í VETRARHAM Þegar
þessi mynd var tekin úr Perlunni fyrir
tveimur árum virtist jökullinn fagur og
stór. Þeir sem borið hafa hann augum í
sumar þykir hann nú vart svipur hjá sjón.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Góður undirbúningur
Kvennalandslið Íslands
í körfubolta er tilbúið
í slaginn í B-deild
Evrópukeppninnar.
ÍÞRÓTTIR 26
VÍÐA VÆTA Í dag verður víða
suðvestan 5-10 m/s en norðaust-
an 8-13 m/s vestanlands. Víða
dálítil rigning eða skúrir en þurrt að
mestu og bjart austanlands. Hitinn
verður á bilinu 8-15 stig.
VEÐUR 4
8
12
14
1010
KOMINN Í KAUPSTAÐ Nokkrar umferðartafir urðu á Kringlumýrarbraut í gær þegar ökumaður fagurgrænnar Deutz-dráttarvélar
truflaði umferðina á háannatíma. Akstur dráttarvéla er bannaður á helstu stofnbrautum borgarinnar eins og Kringlumýrarbraut
milli klukkan 7.30 og 9 árdegis og milli klukkan 16.30 og 18.30. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKIPULAGSMÁL Meirihlutaflokkarn-
ir í borgarstjórn Reykjavíkur eru
ósamstíga um framtíðarstaðsetn-
ingu Reykjavíkurflugvallar. Sam-
kvæmt málefnasamningi nýs
meirihluta er nú unnið að skipu-
lagningu svæða í Vatnsmýrinni
sem þrengja að flugvellinum.
„Við framsóknarmenn höfum
verið þeirrar skoðunar að flugvöll-
urinn eigi að vera annaðhvort í
Vatnsmýrinni eða á Lönguskerj-
um,“ segir Guðni Ágústsson, for-
maður Framsóknarflokksins. Júlí-
us Vífill Ingvarsson, formaður
skipulagsráðs, hefur hins vegar
sagt að hann vilji flugvöllinn úr
Vatnsmýrinni.
Í málefnasamningi Ólafs F.
Magnússonar og sjálfstæðismanna
sagði að ekki yrði tekin ákvörðun
um flutning hans á kjörtímabilinu.
Aðspurður hvort það séu ekki von-
brigði fyrir sjálfstæðismenn að
ekki skuli vera eining um málið
með nýja samstarfsflokknum segir
Júlíus Vífill: „Nei, alls ekki.
Flugvallar málið er þannig mál að
þar fer skoðun manna ekki eftir
flokkslínum. Í raun væri engin leið
að mynda nokkurn meirihluta í
borgarstjórn þar sem fullkominn
samhljómur væri í afstöðu borg-
ar fulltrúa til vallarins.“ Hann efast
um að endanleg niðurstaða fáist í
málið á þessu kjörtímabili.
Óskar Bergsson segir að þó að
skipulagsvinna í Vatnsmýrinni sé
komin á fullt þýði það ekki dauða-
dóm fyrir flugvöllinn þar.
„Það er afar athyglisvert í þessu
máli að sjálfstæðismenn geta skipt
algjörlega um skoðun eftir því
með hvaða smáflokki eða einstakl-
ingi þeir vinna hverju sinni,“ segir
Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam-
fylkingar.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri mun eiga fund í næsta
mánuði með Kristjáni Möller sam-
gönguráðherra þar sem hún mun
gera honum grein fyrir áætlunum
meirihlutans varðandi Reykjavík-
urflugvöll. - jse / sjá síðu 4
Nýr meirihluti ósam-
stíga um flugvöllinn
Framsóknarflokkurinn vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri en formaður skipu-
lagsráðs vill hann burt. Hann efast um að niðurstaða liggi fyrir á þessu kjör-
tímabili. Unnið er að skipulagninu Vatnsmýrar sem þrengir að flugvellinum.