Fréttablaðið - 26.08.2008, Blaðsíða 2
2 26. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR
NÁTTÚRA Á Íslandi hafa myndast
nokkrar séríslenskar trjá- og
plöntutegundir samkvæmt
nýútkominni grein Leifs A.
Símonarsonar og Friðgeirs
Grímssonar.
„Tvær nýjar beykitegundir
hafa fundist og kallast arnarbeyki
og hrútabeyki,“ segir Leifur.
Tegundirnar hafa myndast hér og
ekki verið til neins staðar annars
staðar. Einnig hafa fundist tvær
séríslenskar hlyntegundir og
önnur þeirra hefur að geyma
stærsta hlynaldin í heimi.
Elstu beykileifarnar sem
fundust í rannsókn þeirra eru um
fimmtán milljóna ára gamlar. - vsp
Séríslenskar plöntur fundnar:
15 milljón ára
beyki fannst
STJÓRNSÝSLA Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir mennta- og
íþróttamálaráðherra greiddi ekki
fyrir seinni ferð sína til Kína úr
eigin vasa. Ferðin, sem og allt
uppihald, var greitt af mennta-
málaráðuneytinu eins og fyrri
ferð ráðherrans.
Ekki var að svo stöddu hægt að
fá upplýsingar um kostnaðinn við
ferð Þorgerðar til Kína. Upplýs-
ingar fengust heldur ekki um
hvort ráðuneytið hefði einnig
greitt ferðakostnað Kristjáns
Arasonar, eiginmanns Þorgerðar.
Því verður hins vegar svarað í
vikunni. - vsp
Þorgerður Katrín á ÓL í Kína:
Ráðuneytið
borgaði ferðina
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
Fremst meðal jafningja á handbolta-
landsleik. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BRETLAND Danir eru hamingju-
samasta þjóð heims, samkvæmt
nýrri könnun sem framkvæmd
var í Bretlandi. Íslendingar eru í
fjórða sæti, á eftir Sviss og
Austurríki. Íbúar Simbabve og
Búrúndí eru hins vegar óham-
ingjusamastir.
Þessar niðurstöður fengust með
því að kortleggja svör 80 þúsund
manns, víðs vegar um heiminn,
við spurningum um hamingju
þeirra. Samkvæmt niðurstöðun-
um veltur hamingja þjóða mest á
góðu heilbrigðiskerfi, hagsæld og
menntun. - þeb
Hamingja kortlögð:
Mest hamingja
í Danmörku
GÓÐGERÐARMÁL Lampi sem hannað-
ur er af Ólafi Elíassyni listamanni
verður til uppboðs á góðgerðar-
markaði í Perlunni á laugardaginn.
Verkið kallast „Local Career Lamp“
og talið er að lágmarksboð í lamp-
ann verði um 1,3 milljónir.
„Það er einstakt að fá verk eftir
Ólaf Elíasson á uppboðið enda einn
af okkar fremstu listamönnum,“
segir Áslaug Hulda Jónsdóttir sem
vinnur að skipulagningu uppboðs-
ins.
Samkvæmt upplýsingum frá i8
galleríi, umboðsmanni Ólafs, er
lampinn frá 2007 og er sjötíu sentí-
metrar í þvermál. Lampinn var
upphaflega hannaður fyrir lista-
kaffihúsið Karriere Bar í Kaup-
mannahöfn.
„Ólafur er alltaf mjög duglegur
að gefa til góðgerðarmála og rekur
sín eigin góðgerðarsamtök,“ segir
Börkur Arnarson, framkvæmda-
stjóri og eigandi i8 gallerís.
Björk Guðmundsdóttir mun einn-
ig leggja markaðnum lið með kjól
úr sinni eigu. Áslaug segir ekki loku
fyrir það skotið að um margfrægan
svanakjól Bjarkar gæti verið að
ræða sem hún var í á óskarsverð-
launahátíðinni 2001. Það er hins
vegar óráðið.
„Það er frábært hvað allir hafa
tekið þessu vel og verið tilbúnir að
leggja sitt af mörkum á markað-
inn,“ segir Áslaug. Allt sem verður
á uppboðinu hafa einstaklingar og
fyrirtæki gefið og því rennur allt
óskipt til verkefnisins.
Markaðurinn er til að safna pen-
ingum til styrktar fátækum börn-
um og konum í Jemen. Samhliða
markaðnum verður uppboð á alls
kyns hlutum og viðburðum sem
hver sem er getur boðið í, að sögn
Áslaugar.
„Allir geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Þetta er allt frá hádegismat
með Sveppa og Audda og upp í ferð
fyrir tvo með Jóhönnu Kristjóns-
dóttur til Jemen,“ segir Áslaug.
Annað sem hægt er að bjóða í er
flugferð fyrir þrjá með Ómari
Ragnarssyni í kringum höfuð-
borgarsvæðið, golfhringur með
Birgi Leifi Hafþórssyni, leikmunir
úr Latabæ og listaverk eftir Hall-
grím Helgason, Pétur Gaut, Magn-
ús Ó. Kjartansson og Guðrúnu Ein-
arsdóttur og margt fleira.
Markaðurinn verður í Perlunni
frá kl. 10-18 næstkomandi laugar-
dag. vidirp@frettabladid.is
Lampi Ólafs og kjóll
Bjarkar á uppboði
Ólafur Elíasson gefur lampa á uppboð markaðar í Perlunni á laugardag til
styrktar fátækum börnum og konum í Jemen. Lágmarksboð verður um 1,3
milljónir. Björk gefur kjól á uppboðið sem mögulega er svanakjóllinn frægi.
LAMPINN Lampinn Local Career Lamp
eftir Ólaf Elíasson verður til uppboðs á
laugardaginn í Perlunni.
SVANAKJÓLLINN? Ekki er loku fyrir það
skotið að Íslendingar geti boðið í svana-
kjól Bjarkar, þó ekki sé það staðfest. Að
minnsta kosti geta gestir markaðarins
boðið í kjól í eigu Bjarkar.
Flug fyrir tvo báðar leiðir til Köben
undir leiðsögn Friðriks Weiss-
happel.
Listaverk eftir Tedda.
Listaverk sem Edda Jónsdóttir og
Kogga gerðu saman á samsýningu
fyrir nokkrum árum.
Leiðsögn á Njáluslóðum með
Arthúri Björgvini Bollasyni.
Íslenskur sunnudagshádegisverður
heima hjá Guðrúnu Ögmunds-
dóttur.
Útlitsráðgjöf með Björgu Ingadóttur
í Spaksmannsspjörum.
Veiði í Laxá í Kjós með gistingu og
mat.
Ragnheiður Arngrímsdóttir ljós-
myndari kemur heim og tekur
myndir.
Halló Akureyri – Lúðvík hjá Saga
Capital flýgur með hóp norður á
Akureyri.
Detox-meðferð fyrir tvo með
Jónínu Benediktsdóttur.
AÐRIR HLUTIR OG VIÐBURÐIR Á UPPBOÐI
flugfelag.is
Gríptu augnablikið!
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Flugvallarskattar innifaldir, takmarkað sætaframboð, einungis bókanlegt á netinu.
Akureyri frá 3.990 kr.
FLUG Flugvél frá Icelandair Cargo flutti hergögn frá
Bandaríkjunum til Georgíu í lok síðasta mánaðar.
Um var að ræða óhlaðna riffla að sögn Gunnars
Más Sigurfinnssonar, framkvæmdastjóra Icelandair
Cargo. Hann segir flutninga sem þessa ekki
flokkast undir flutning á hættulegum gögnum. Átök
brutust út á milli Georgíumanna og Rússa í byrjun
ágúst.
„Við myndum aldrei taka þátt í svona flutningum
nema þeir væru 100 prósent löglegir og öruggir. Við
myndum aldrei taka að okkur flutninga í stríði,“
segir Gunnar Már. Hann segir flugfélög víða sinna
flutningum sem þessum alla daga og engum þyki
það fréttnæmt. „Það er ekkert fragtflugfélag sem
gefur sig út fyrir að flytja ekki svona. Svona vörur
eru til dæmis oft fluttar á milli Bandaríkjanna og
Vestur-Evrópu, og jafnvel til Íslands þegar heræf-
ingar eru hjá Nató og annað.“
Gunnar segir svona flutninga vera gerða með
fullri vitneskju og samþykki allra þeirra landa sem
flogið sé yfir. Þó flokkast flutningur á óhlöðnum
rifflum ekki undir flutning á hættulegum gögnum.
Engin skotfæri voru um borð. Fragtflugfélög þurfa
sérstök leyfi til að flytja hættuleg gögn og Ice-
landair Cargo hefur slíkt leyfi. - þeb
Flugvél frá Icelandair Cargo flaug með hergögn frá Bandaríkjunum:
Fluttu óhlaðna riffla til Georgíu
ICELANDAIR CARGO Flugfélög sinna flutningum á hergögn-
um eins og öðrum vörum. Óhlaðnir rifflar teljast þó ekki til
hættulegra gagna og þarf ekki sérstakt leyfi til að flytja þá, að
sögn Gunnars.
VIÐSKIPTI Lánavextir Íbúðalána-
sjóðs verða óbreyttir um sinn, 4,9
prósent og 5,4 prósent án
uppgreiðsluákvæðis. Þetta kemur
fram á heimasíðu sjóðsins.
Sjóðurinn bauð út íbúðabréf fyrir
helgi og var mjög mikil eftir-
spurn eftir bréfum. Tilboð bárust
fyrir um 21 milljarð króna.
Sjóðurinn tók tilboðum fyrir
fimm milljarða.
Mjög mikil eftirspurn hefur
verið eftir íbúðabréfum. Heildar-
veltan með bréfin er um 175
prósentum meiri en í fyrra, að því
er fram kemur í síðustu mánaðar-
skýrslu sjóðsins. Þar sagði einnig
að lán hefðu ekki verið jafn mikil
frá því um mitt ár 2004.
- ikh
Útboð Íbúðalánasjóðs:
Óbreyttir vextir
ÓLYMPÍULEIKAR Íslensku ólympíu-
förunum verður fagnað í miðborg
Reykjavíkur á morgun, miðviku-
dag. Þeir munu fara í opnum
vagni frá Hlemmi niður Lauga-
veginn og að Arnarhóli, þar sem
þeir verða hylltir af þjóðinni, að
því er fram kemur í tilkynningu
frá menntamálaráðuneytinu.
Það eru ríkisstjórn Íslands,
Reykjavíkurborg og Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands sem
standa fyrir fögnuðinum. Að sögn
Örnu Hauksdóttur hjá mennta-
málaráðuneytinu er búist við því
að allir ólympíufararnir komi til
Íslands og verði við fögnuðinn á
miðvikudag. - þeb
Ólympíuförunum fagnað:
Í opnum vagni
niður Laugaveg
Tilraunaholur í Snæfellsnes
Verið er að bora fjórar 100 til 200
metra tilraunaholur við Eysteinsdal
og eina holu við Búrfell í Snæfellsbæ
til að athuga hvort hægt sé að finna
heitt vatn á þessu svæði sem ekki
hefur verið kannað áður.
SNÆFELLSNES
GEORGÍA, AP Rússneska þingið sam-
þykkti einróma í gær að biðja
Dmitrí Medvedev forseta um að
viðurkenna sjálfstæði Abkasíu og
Suður-Ossetíu, héraðanna tveggja í
Georgíu sem í reynd hafa stjórnað
sér sjálf í hálfan annan áratug.
Ályktun þingsins er ekki bind-
andi fyrir Medvedev forseta, og
óvíst hvort hann muni lýsa yfir við-
urkenningu á sjálfstæði þeirra.
Átök rússneskra og georgískra her-
manna um Suður-Ossetíu síðustu
vikurnar hafa tekið sinn toll og
óvíst hvort Rússar vilji láta reyna á
það, hvort Vesturlönd standi við
bakið á Georgíu í öðru stríði.
Ályktunin er engu síður sögð
styrkja stöðu hans í samninga-
viðræðum við Vesturlönd, sem
leggja allt kapp á að halda aðskiln-
aðarhéruðunum tveimur áfram
innan Georgíu.
Ekkert ríki heims hefur til þessa
viðurkennt sjálfstæði héraðanna,
þótt þau bæði hafi í reynd, með
hjálp Rússa, verið sjálfstæð eftir
skammvinn stríð við Georgíuher í
beinu framhaldi af hruni Sovétríkj-
anna. Rússar hafa stutt bæði héruð-
in fjárhagslega og hernaðarlega.
Í gær sagðist Medvedev ætla að
þrýsta á Moldóvustjórn um lausn á
annarri svipaðri deilu, um héraðið
Transnistríu, sem tilheyrir Mold-
óvu en hefur þó í reynd verið sjálf-
stætt í hálfan annan áratug og vill
sameinast Rússlandi.
- gb
Rússneska þingið styður sjálfstæði Abkasíu og Suður-Ossetíu:
Óvíst hvað Medvedev gerir
ABKASÍULEIÐTOGI Á RÚSSNESKA ÞING-
INU Sergei Bagapsh, leiðtogi Abkasíu,
ávarpaði í gær rússneska þingið.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Frank, ætlar þú að koma í veg
fyrir stórbruna?
„Ég byrja á því að koma í veg fyrir
smábruna því hann getur orðið að
stórbruna.“
Frank Höybye Christensen rekur fyrirtæki
sem sérhæfir sig í brunavörnum en
hann hefur einnig verið kallaður frægasti
dvergur Íslands.
SPURNING DAGSINS