Fréttablaðið - 19.09.2008, Page 24
19. september 2008
FÖSTU- DAGUR
2
„Spákonufell er mjög vinsæl pitsa
hjá okkur; raunar kom á óvart
hve vinsæl hún er,“ segir Guð-
finna Helga Þórðardóttir, einn
eigenda Eldbökunnar í Ögur-
hvarfi, um pitsu á matseðli
staðarins sem er hlaðin sniglum.
„Bakarinn Ásgeir Blöndal er hug-
myndasmiðurinn á bak við eigin-
lega allar pitsurnar okkar. Hann
hefur ástríðu fyrir
að prófa sífellt
eitthvað nýtt
og átti ein-
mitt hug-
myndina að
því að vera
með pitsu með
sniglum.“
Þótt pitsurnar
kunni sumar að
virðast framandi í augum lands-
manna eru heitin þjóðleg. „Allar
pitsurnar draga heiti sín af
íslenskum fjöllum. Sænautafell
og Baula eru dæmi um pitsunöfn-
in hér á Eldbökunni,“ segir Guð-
finna, sem á staðinn ásamt Guð-
mundi Jónassyni, Halldóri
Ólafssyni og Daníel Helgasyni.
Fleira en framandi álegg sker
Eldbökuna þó frá öðrum pitsu-
stöðum á höfuðborgarsvæðinu,
að sögn Guðfinnu. „Hér er boðið
upp á speltbotna í bæði litlar og
miðstærðar pitsur. Þar sem það
er erfiðara að vinna með spelt er
ekki hægt að bjóða upp á stórar
pitsur með speltbotni. Speltið er
einnig án sykurs og gers, sem
hentar fyrir þá sem hafa ger-
ofnæmi eða sykursýki.“
Eldbakan stendur svo að sjálf-
sögðu undir nafni þar sem eld-
bakaðar pitsur eru á boðstólum.
„Það er ekki hægt að bera eldbak-
aðar pitsur saman við þær ofn-
bökuðu þar sem þær eru mun létt-
ari. Maður er ekki afvelta eftir að
hafa hámað í sig pitsu eins og oft
er sagt,“ segir Guðfinna.
Ásamt því að vera með góðan
sal á efri hæð hússins fyrir þá
sem vilja koma og njóta máltíðar
á staðnum er Eldbakan með heim-
sendingarþjónustu. „Það eru þó
fríðindi við að borða á staðnum,
því hér eru fjórar olíur: hrein
ólífuolía, hvítlauks-, jalapeno- og
piparolía. Svo er líka ferskur
parmesanostur til staðar sem er
svolítil sérstaða hjá okkur.“
agnesosk@frettabladid.is
Spákonufell þakið sniglum
Þjóðleg heiti eru kannski í hávegum höfð á matseðli pitsustaðarins Eldbökunnar, en áleggið er hins
vegar oft framandi og þar stendur Spákonufellið kannski upp úr enda er sú pitsa hlaðin sniglum.
Alls kyns kræsingar eru í boði.Guðfinna Helga Þórðardóttir segir sniglapitsur vinsælar á Eldbökunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
800 g saltfiskur (þykkir
bitar)
4 stórar kartöflur
2 laukar
½ kúrbítur
1 græn paprika
1 rauð paprika
4-6 hvítlauksrif
nokkrar ólífur
rósmarín
ólívuolía
basil
steinselja
Veltið saltfiskinum upp
úr hveiti og steikið í
tvær mínútur á hvorri
hlið og leggið til
hliðar. Skerið kartöflur
í báta og steikið á
pönnunni, kryddið
með rósmaríni og smá
salti, setjið í eldfast
mót. Steikið því næst
lauk, paprikur og
kúrbít, setjið í eldfasta
mótið. Raðið síðan
fiskinum þar ofan á og
skreytið með nokkrum
ólífum. Bakið í ofni
í um 40 mínútur við
180 gráður.
Meðlætið:
Blandið saman 2 dl
af ólífuolíu, hvítlauk,
hálfu búnti af basiliku
og hálfu af steinselju.
Búið til mauk úr þessu
og berið fram með
fiskinum. Þar liggur
galdurinn.
heida@frettabladid.is
SALTFISKUR Í OFNI
Ofnbakaður saltfiskur FYRIR 4 frá Hönnu Maríu Karlsdóttur
Ofnbakaður saltfiskur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VEITINGASTAÐURINN VOX er á meðal þeirra veitingastaða
sem tilnefndir eru til heiðursverðlauna í Norrænni matargerðarlist
2008. Þema ársins í nýrri norrænni matargerðarlist er samkeppnis-
hæf norræn framleiðsluþróun í matargerðarlist, heilbrigði og lífsgæði.
Vörur úr lífrænni
ræktun er ávísun á betri
heilsu og bragð!
Heilsa býður upp á fjölbreytt úrval af lífrænt ræktaðri matvöru frá BIONA,
einum virtasta framleiðanda á sínu sviði. BIONA er fyrir kröfuharða
neytendur sem vilja hágæða vottaðar matvörur sem fullnægja
ströngustu kröfum um umhverfisvæna- og lífræna ræktun án
skordýraeiturs, tilbúins áburðar og erfðabreyttra matvæla.
BIONA hentar öllum sem kjósa hollustu og heilnæmt fæði.
BIONA vörurnar fást í Heilsuhúsinu, Heilsuhorninu Akureyri, Fjarðarkaupum, Nóatúni, Krónunni,
Samkaup/Úrval, Blómaval, Maður Lifandi, og Melabúðinni.