Fréttablaðið - 19.09.2008, Side 30
4 föstudagur 19. september
kreppuráð
6
4
1
2
3
5
núna
✽ allt fyrir ástina...
Hafðu lambahjörtu í matinn.
Þú getur fætt heila fjölskyldu
fyrir tæpan 200 kall.
Stundaðu nóg
af kynlífi, það
kostar ekki
neitt. Ef það er
hins vegar farið
að halla undan
fæti á þeim vígstöðvum gæti
margborgað sig að fjárfesta
í Kynlífsbiblíunni.
Djammaðu
frekar á Face-
book en á
börunum
niðri í bæ.
Þessu fylgja
margir kostir,
þú getur
setið heima á nærbuxunum
og daðrað við fólk og þarft
varla að hafa áhyggjur af
einhverjum skandölum.
Hættu að kaupa vín
– bruggaðu sjálfur
þínar veigar.
Fækkaðu sjoppu-
ferðum á kvöldin –
svo er það líka grenn-
andi.
Ekki segja upp áskriftinni að
Stöð 2 – hún margborgar sig
þegar þú húkir heima nema
þú skilir flatskjánum sem þú
keyptir á raðgreiðslum.
Á sunnudaginn hefst Dagvakt-
in á Stöð 2. Ragnar Bragason,
leikstjóri Dagvaktarinnar, fór
ekki yfir lækinn þegar hann
réð búningahönnuð í verkið
því hann fékk eiginkonuna,
Helgu Rós Hannam, til liðs við
sig. „Samstarfið gengur alltaf
ágætlega og við erum yfirleitt
sammála um hlutina,“ segir
Helga Rós og segir að leikar-
anir hafi líka sinn atkvæðis-
rétt enda bjuggu þeir sjálfir
til sína karaktera. Aðspurð
segir hún þau hjón þó ekki
hafa unnið mikið saman. „Við
gerðum Stelpurnar saman á
sínum tíma, en annars hef
ég unnið meira með öðrum.
Ég var til dæmis að vinna
annað verkefni á meðan það
var verið að skjóta Dagvakt-
ina og var þá ekki á settinu,
enda eigum við börn svo við
þurfum að vera í hvort í
sínu lagi í tökum og sjá-
umst þá voðalega lítið
á meðan. En vonandi
eigum við eftir að gera
bíómynd saman, það
væri skemmtilegt.“ segir
Helga Rós að lokum. - ag
Hjónin Ragnar Bragason og Helga Rós Hannam unnu saman í Dagvaktinni
Hann leikstýrði – hún gerði búningana
Verkið Fýsn eftir Þórdísi Elvu Bachmann var frumsýnt
í Borgarleikhúsinu síðastlið-
ið föstudagskvöld. Verkið fékk
þrusugóðar viðtökur og ætl-
uðu frumsýningargestir ekki að
geta hætt að klappa. Stjörnu-
lögmaðurinn Sveinn Andri
Sveinsson kom mörgum á
óvart og mætti með nýju
kærustuna upp á arm-
inn. Sú heitir Unnur Guðný
Gunnars dóttir og er flug-
freyja.
Listræn Davíð Pitt arkítekt og Guð-
rún Edda Þórhannesdóttir sagnfræð-
ingur létu sig ekki vanta. Þess má
geta að hann hefur teiknað nokkur
af fallegustu húsum Reykjavíkur eins
og Árland 1 sem er í eigu Steingríms
Wernerssonar.
Sveinn Andri Sveinsson frumsýndi kærustuna
Nældi sér í
flugfreyju
Ástin blómstraði
Einar Kárason rit-
höfundur mætti með
frúna sína, Hildi
Baldursdóttur.
Helga Rós Hannam Hún er
ánægð með samstarfið við eigin-
manninn Ragnar Bragason.
Spengileg
Sveinn Andri
Sveinsson lög-
maður og Unnur
Guðný Gunnars-
dóttir flugfreyja.
Svava Johansen og Björn
Sveinbjörnsson festu kaup á
einbýlishúsi í Kvistalandi 1 og
fengu það afhent í vikunni.
Nú hafa þau lagt inn umsókn
til skipulagsfulltrúa um að fá
að breyta húsinu og stækka
það um rúma 100 fm. Auk
stækkunarinnar felst breyting-
in meðal annars í sér að síkka
glugga og grafa frá kjallara.
Sagan segir að ofursmiðurinn
Gulli Helga sé í startholunum
því hann hefur verið hirð smiður
Svövu um margra ára skeið.
Málið er núna hjá
skipulagsstjóra.
Framkvæmdagleði
í Fossvogi
EKKI MISSA AF FUSION FITNESS Unnur Pálmarsdóttir líkamsræktar-
drottning stendur fyrir fusion fitness-hátíðinni sem haldin verður í World Class
dagana 26.-28. september. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin og ætti
enginn að missa af henni. Hver vill ekki hrista kroppinn undir flottum tónum
Páls Óskars eða Hara-systra?
smiðjuvegi 4 • sími 552 2500
skólavörðustíg 12 og 16 • sími 552 1412
Myndlistarvörur
í 30 ár
Vandaðar myndlistarvörur
fyrir listamenn og skólafólk.
Verið velkomin í