Fréttablaðið - 19.09.2008, Side 46
26 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hvíldu í friði
Keli
Fæddur: 1992
Látinn: 1994, 1996,
1997, 1997, 1999,
2000, 2001, 2004
og 2006
Ansans! Skila-
boð frá Gróu
Sigþrúði! Nú vill
hún fara í bíó! Og?
Ég held hún
sé skotin
í mér, en
ég er ekki
skotinn í
henni! Hvað
geri ég?
Geturðu ekki
bara reynt
að afþakka
pent?
Vertu bara
skemmtilegur
og léttur á
því!
Kældu þig
niður!
Takk! Bara
lauflétt!
Maður þarf
nú ekki að
særa fólk!
Nei,
nákvæm-
lega.
Þvílíkur
ruslahaugur! Það er ekki hægt að finna neitt
hérna inni!
Jú, víst.
Ég vaknaði og
fann þig hérna
inni, ekki satt?
Ó, hvað ég vildi fara
heim og leggjast í
gott mjólkurbað! Gerilsneytt?
Nei! Bara
upp að höku.
Í hverju viltu
fara í skólann í
dag, Solla?
Fötum
einhvers
annars.
Ekki aftur...
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Í lok ágúst réðu Íslendingar sér vart fyrir kæti. Lífið var ljúft, smáfuglar kvökuðu við raust og fólki fannst rigningin góð.
Ástæðan fyrir óstjórnlegri kátínu heillar
þjóðar var býsna léttvæg. Ólympíusilfur-
verðlaun í handbolta, einhverri þrautleiðin-
legustu keppnisgrein mannkynssögunnar,
þóttu nægt tilefni til að gera sér glaðan dag
og líta framtíðina björtum augum. Fyrir-
sagnir fjölmiðla sögðu sína sögu. „Silfur-
strákarnir okkar!“, „Hetjurnar komnar
heim!“, „Stórasta land í heimi!“. Jákvæðnin
réði svo sannarlega ríkjum á
köldu landi ísa.
Nú, tæpum mánuði síðar, er
allt í volli. Fellibyljir herja á
landið. Mávagargið á
tjörninni er allsendis
óþolandi. Stöðugur frétta-
flutningur af síversnandi
gengi krónunnar og gjald-
þroti hvers milljónabankans á fætur öðrum
er einungis rofinn með einstaka tíðindum af
viðurstyggilegum kynferðisbrotum og
líkamsárásum. Hve þungt er yfir bænum.
Það er á stundum sem þessum sem
einhvers konar skilningur myndast á því
hvers vegna íþróttir þjóna nánast sama
hlutverki og trúarbrögð í mörgum fátækari
löndum. Gott gengi landsliðs í íþróttum
megnar nefnilega að leiða huga fólks frá
hversdagslegum erfiðleikum um hríð. Heilu
þjóðirnar þjappa sér saman í trausti og trú á
íþróttahetjurnar sínar. Marx sagði að trúin
væri ópíum fólksins. Íþróttir eru e-pillur
krepputímanna.
Með hliðsjón af þessu gætu yfirvöld gert
margt vitlausara en að dæla aurum í hvers
kyns íþróttastarfsemi. Skítt með krónuna,
evruna, okurprísa, spillingu og bruðl með
almannafé. Ef strákarnir okkar ná gullinu á
næsta móti verður allt gott aftur.
Alsæla kreppunnar
NOKKUR ORÐ
Kjartan Guð-
mundsson