Fréttablaðið - 24.09.2008, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 24.09.2008, Qupperneq 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 UPPLÝSINGAR O s ng Mjódd Verktakinn og fararstjórinn Örn Kjærnested hefur haft óbilandi áhuga á útivist og ferðalögum alla tíð. Hann byrjaði í skátunum sem barn og var keppnismaður á skíðum en stundaði síðan hesta- mennsku um áratuga skeið. Þá hefur hann stundað göngur af kappi og þá bæði hefðbundnar göngur og fjallaskíðagöngur sem hann segir njóta vaxandi vin- sælda. Örn hefur skíðað víða og þekkir skíðabrekkur í Noregi, Austurríki, Sviss, á Ítalíu og í Colorado í Bandaríkjunum eins og lófann á sér, en allra best kann hann þó við sig í Madonna di Campiglio, einum þekktasta skíðabæ Ítalíu. Þar hefur hann dvalið á hverju ári síðastliðin tíu ár, bæði á eigin vegum og sem fararstjóri hjá Úrvali-Útsýn. „Ég fer yfirleitt út í desember og er á skíðum fram í mars. Fólk kemur svo að jafnaði í eina viku og nýtur lífsins. Brekkurnar eru bæði fyrir byrjendur og lengra komna og á veturna er sól sjö daga af tíu. Bærinn er líflegur og heimamenn gestrisnir. Engin bílaumferð er í gegnum bæinn og er mikið úrval af góðum ítölskum veitingastöðum og kaffihúsum. Jólastemningin í bænum er einstök og ætla ég að halda jólin þar í fimmta sinn með fjölskyldunni. Ítalir koma til bæj- arins víðs vegar að og er stemning- in svipuð og á Þorláksmessu í Reykjavík dag eftir dag,“ lýsir Örn. Í júní liggur leið hans aftur til Madonna en þá fer hann með gönguhópa um Dólómítafjöll. „Mikil göngumenning er í Mad- onna eins og víðar á Ítalíu og fylgj- um við tilbúnum göngustígum. Við byrjum í 1.500 metra hæð og förum hæst upp í 2.900 metra og horfum yfir fjölbreytt landslag og fjöll þakin kalksteini og granít. vera@frettabladid.is Paradís að sumri sem vetri Örn Kjærnested stundar útivist og ferðamennsku af miklum móð. Hann þekkir suma staði betur en aðra og í fjallaþorpinu Madonna di Campiglio á Ítalíu er hann öllum hnútum kunnugur. Örn fer með gönguhópa um Dólómítafjöll á hverju sumri. Hér heldur hann á potti sem er notaður til að elda á hlóðum. MYND/ÚR EINKASAFNI ENDURVINNSLUVIKA var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í síðustu viku. Samkvæmt nýrri könnun hefur hlutfall þeirra sem flokka sorp til endurvinnslu hækkað frá árinu 2006, en þá flokkuðu 84 prósent sorp. Nú flokka um 91 prósent sorp til endurvinnslu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.