Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 24. september 2008 Kammerhópurinn Nordic Affect hefur vetrartónleikaröð sína í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfis- götu í kvöld kl. 20. Á þessum fyrstu tónleikum starfsvetrarins, sem bera yfirskriftina „Fram og til baka“, verður efnisskráin til- einkuð tilbrigðatónsmíðum. Fjöl- breytnin ræður ríkjum og flakkað verður um í tíma því flutt verða allt frá tilbrigðum 17. aldar fiðlar- ans David Mell við lagið „John Come Kiss Me“ til tveggja nýrra tónsmíða eftir Gunnar Andreas Kristinsson. Verk Gunnars eru samin sérstaklega fyrir Nordic Affect og byggja tónsmíðarnar á hringitónum. Kammerhópurinn Nordic Affect hefur á tónleikum sínum á Íslandi og erlendis flutt allt frá danstón- list 17. aldar til hinnar spennandi raftónsköpunar nútímans. Hópur- inn hefur fengið afbragðs dóma fyrir leik sinn og vakið athygli fyrir stílinnlifun og þróttmikinn leik. Listrænn stjórnandi hópsins er Halla Steinunn Stefánsdóttir. Miðaverð á tónleikana í kvöld er 2.000 kr., en námsmenn og eldri borgarar fá miðann á 1.500 kr. - vþ Tilbrigðatónsmíðar í kvöld NORDIC AFFECT Hefur vetrartónleikaröð sína í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 24. september ➜ Tónleikar 20.00 Guðbjörg R. Tryggvadóttir sópran og Elsebeth Brodersen píanó leikari halda tónleika í Norræna húsinu þar sem þær flytja frönsk og ítölsk ljóð. Norræna húsið, Sturlugötu 5. 20.00 Feðgarnir Berg- þór Pálsson og Bragi Bergþórsson, ásamt Þóru Fríðu Sæmundsdóttur píanóleikara, verða með tónleika í Iðnó þar sem þau flytja lög eftir Inga T. Lárusson. Iðnó, vonarstræti 3. ➜ Fyrirlestrar 20.00 Sigurbjörn Einarsson bisk- up - ævi, störf, guðfræði Hjalti Hugason heldur fyrirlestur á vegum Vísindafélags Íslendinga, í hátíðarsal Háskóla Íslands. ➜ Myndlist Gyða Ölvisdóttir er með myndlista- sýningu á veitingahúsinu Af lífi og sál, Laugavegi 55. Sýningin er opin frá kl. 11-23 alla daga . Á ferð með fuglum Listasafn Ár nes- inga sýnir verk Höskuldar Björnssonar. Sýningin stendur til 28. sept. og er opin alla daga frá 12-18. Lista safn Árnesinga, Austurmörk 12, Hvera gerði. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Miðvikudagurinn 24. september kl. 11.45 Rannsóknir og nýsköpun á tímum efnahagslægðar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Guðrún Nordal, formaður Vísinda- nefndar Vísinda- og tækniráðs, ræða um rannsóknir og nýsköpun á opnum fundi í Valhöll. Vísinda- og nýsköpunarnefnd Sjálfstæðisflokksins heldur fundinn og fundarstjóri er dr. Hafliði Pétur Gíslason, prófessor. Fimmtudagurinn 25. september kl. 17.00 Þau hlutu hæstu einkunn fyrir þjónustu! Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og Sigríður Ólafsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent Gallup, ræða árangur sveitarfélaganna þriggja sem öllum er stjórnað af sjálfstæðismönnum og komu best út í könnun Capacent Gallup um þjónustu við íbúa sveitarfélagsins, á opnum fundi í Valhöll. Sjálfstæðisflokkurinn heldur fundinn og fundarstjóri verður Ásdís Halla Bragadóttir. Föstudagurinn 26. september kl. 12.00 Hvor hefur forskot eftir landsfundina? Þórlindur Kjartansson, formaður SUS, Illugi Gunnarsson, alþingismaður, og Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræðingur, tala um stöðuna í bandarísku forsetakosningunum í aðdraganda fyrstu kappræðnanna og nýliðna landsfundi flokkanna á opnum fundi í Valhöll. Landsamband sjálfstæðiskvenna heldur fundinn og fundarstjóri er Katrín Helga Hallgrímsdóttir, varaformaður LS. Allir velkomnir! Tölum saman Fjölmargir opnir fundir eru á vegum Sjálfstæðisflokksins í viku hverri. Á þessa fundi eru allir velkomnir. Nánari upplýsingar um fundina og flokksstarfið má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is eða í síma 515-1700.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.