Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 38
 24. september 2008 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is > TVÖFÖLD HAMINGJA Enn bætist í hóp tvíburaforeldra í Holly- wood. Heimildir herma nú að fyrrum klámstjarnan Jenna Jameson og kærasti hennar, Tito Ortiz, eigi von á tvíburum. Þau hafa verið saman frá árinu 2006, þegar þau kynntust í gegnum vefsíð- una Myspace. Næsta mánudag opnar veitinga- staðurinn Segurmo á barnum Bos- ton á Laugavegi. Númi Thomasson er aðalkokkur staðarins, en hann hefur starfað sem einkakokkur Bjarkar Guðmundsdóttur á nokkr- um túrum söngkonunnar. „Það var frábær reynsla sem nýtist mér vel í því sem ég er að gera í dag. Er Björk matvönd? Nei, hún er jafn nýjungagjörn þegar kemur að mat og í tónlistinni.“ Sjálfur hefur Númi komið nálægt tónlist, hann spilaði á trommur með Andhéra og tromm- ar nú með Borko. Hann segir að á Segurmo verði boðið upp á bæði hádegis- og kvöldmat og aðal- áherslan verður á ferska hollustu- rétti á sanngjörnu verði. „Ég held áfram með plokkfiskinn og kjöt- súpuna sem Boston hefur verið með og svo verða kjöt-, fiski- og grænmetisréttir í boði. Ég ætla að skipta um matseðil vikulega. Mig langar til að hafa þetta eins ódýrt og ég get án þess að fara á haus- inn.“ Hristuleikari Singapore Sling, Sigurður Finnsson, hefur ráðið sig sem aðstoðarkokk á Segurmo. „Ég hef aldrei verið kokkur og kann ekki neitt. Númi er að kenna mér að skera lauk núna. Svo læri ég vonandi meira. Þetta lítur rosa- lega vel út. Hann Númi er svo dug- legur.“ - drg Einkakokkur Bjarkar opnar veitingastað OPNAR VEITINGASTAÐINN SEGURMO Númi Thomasson segist reynslunni ríkari eftir að hafa kokkað ofan í Björk og hennar lið. Flóra Íslands með litmynd- um eftir listmálarann Egg- ert Pétursson er dýrasta bókin sem kemur út fyrir þessi jól. Bókin kostar 75 þúsund krónur og verður einungis gefin út í fimm hundruð tölusettum eintök- um, árituðum af Eggerti. „Miðað við að gangverð á verkum hans er nokkrar milljónir þá er þetta bara tombóluverð,“ segir Kristján B. Jónasson hjá forlaginu Crymogea sem gefur bókina út. „Þetta er mjög ódýr kostur ef maður ætlar að eignast verk eftir Eggert Pétursson.“ Bókin er 560 blaðsíður, gefin út í A3-broti og innbundin í krossvið- aröskju og því greinilegt að um engan venjulegan grip er að ræða. Eingöngu er hægt að panta hana hjá forlaginu og þegar eru tæp hundrað eintök farin. Bókin er nokkurs konar endurútgáfa af handbókinni Íslensk flóra með lit- myndum með teikningum Eggerts sem kom út árið 1983 en er nú upp- seld. „Eggert er einn ástsælasti sam- tímalistamaður okkar Íslendinga og þetta er grundvöllurinn að hans höfundarverki. Hann tekur þetta verkefni að sér að teikna 270 myndir af íslensku flórunni og þessar myndir voru ofan í kjallara hjá honum þangað til við fengum þessa hugmynd að gefa þetta út. Þessar litmyndir hafa aldrei verið sýndar í sinni raunverulegu stærð,“ segir Kristján, sem játar að bókin sé sú dýrasta sem hann hafi selt. Spurður segist hann aldrei hafa fengið kvartanir um verðið og tekur fram að engir auðjöfrar hafi enn þá tryggt sér eintak. „Þeir sem á annað borð hafa áhuga á þessu virðast ekki velta þessu verði fyrir sér. Þeir vilja bara eiga þennan grip því þetta er í senn listrænt og gefur mynd af okkar náttúru,“ segir Kristján. „Það kemur á óvart að sjá að þetta er eingöngu ósköp venjulegt fólk og stofnanir sem panta eintök og þarna er ekkert stórt nafn úr við- skiptaheiminum.“ freyr@frettabladid.is Dýrasta jólabókin FLÓRA ÍSLANDS Á 75 ÞÚSUND Kristján segir að miðað við gangverð á verkum Eggerts Péturssonar sé Flóra Íslands seld á tombóluverði. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Sikiley

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.