Fréttablaðið - 26.09.2008, Side 2
2 26. september 2008 FÖSTUDAGUR
LÖGGÆSLUMÁL Birgir Ármannsson,
formaður allsherjarnefndar, segir
fjölmiðlaumfjöllun um málefni
lögreglustjórans á Suðurnesjum
hafa verið mjög einhliða. Ekki
megi gleyma hvert upphaf málsins
sé.
„Það sem kom af stað þeim óróa
sem verið hefur í kringum lög-
reglustjóraembættið er langvar-
andi hallarekstur þess, fyrst á
Keflavíkurflugvelli og svo í sam-
eiginlegu embætti. Tillögur dóms-
málaráðherra miðuðu að því að
breyta stjórnsýslulegri og fjár-
hagslegri aðkomu ráðuneyta að
embættinu og taka á þessum
vanda,“ segir Birgir.
Aðspurður hvort viðvarandi
hallarekstur í mörg ár bendi ekki
til að frekari fjárheimildir hafi
vantað, svarar Birgir: „Það má vel
vera, en á því verður að taka við
fjárlagagerð. Einstakir embættis-
menn geta ekki keyrt fram úr fjár-
lögum ár eftir ár. Tillögur dóms-
málaráðherra miðuðu að því að
leysa þann vanda í eitt skipti fyrir
öll. Þessar skipulagsbreytingar fá
meðal annars stuðning í skýrslu
Ríkisendurskoðunar frá því í vor.“
Karl V. Matthíasson er fulltrúi
Samfylkingar í allsherjarnefnd.
„Mér finnst upplýsingaleysi frá
báðum aðilum einkenna málið. Það
er dapurlegt þegar við verðum
vitni að átökum á sviði löggæslu og
almannaheilla. Mér finnst þetta
sorglegt og ég hvet menn til að
finna farsæla lausn á samskipta-
vanda embættisins og ráðuneytis-
ins.“ - kóp
HELGI HJÖRVAR Vill stofna auðlindasjóð
fyrir komandi kynslóðir og geyma í
honum orku, fisk og hugsanlega olíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÖRYGGISMÁL Sendiráð Bandaríkj-
anna hyggst enn herða viðbúnað
sinn í öryggismálum á Laufás-
vegi. Þannig hefur sendiráðið
óskað eftir því við byggingaryfir-
völd í Reykjavík að fá heimild til
að koma fyrir rimlum fyrir
glugga byggingar sinnar og
hækka girðingu og hlið umhverfis
húsið. Einnig vilja Bandaríkja-
menn koma fyrir „klifurhindrun“
í nálægan ljóstaur. Afgreiðslu
málsins var frestað vegna
athugasemda skipulagsstjóra um
hæð girðingarinnar.
Miklar viðbótar öryggisráðstaf-
anir voru gerðar við bandaríska
sendiráðið á Laufásvegi í kjölfar
hryjuverkaárásanna í september
2001. - gar
Sendiráð Bandaríkjanna:
Víggirðast enn
á Laufásvegi
SENDIRÁÐSBYGGINGIN Hækka á
girðingu og setja rimla fyrir glugga
bandaríska sendiráðsins.
Þorbjörg Helga, leysist þetta
ekki í fyllingu tímans?
„Ég býst fyllilega við því.“
Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur
hefur lýst yfir áhyggjum vegna umhverfis-
áhrifa fyrirhugaðrar landfyllingar í
Kársnesi. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir er
formaður ráðsins.
VIÐSKIPTI Nafni flugfélagsins
Latcharter, dótturfélagi Icelandair
Group í Lettlandi, hefur verið
breytt í SmartLynx Airlines.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, og Garðar
Forberg, framkvæmdastjóri
Latcharter, afhjúpuðu nýtt nafn og
útlit við athöfn í Ríga í Lettlandi í
gær. Þar var um leið fimmtán ára
starfsafmæli félagsins fagnað.
SmartLynx er alfarið í eigu
Icelandair Group, en í flota
félagsins eru tvær Boeing 767
breiðþotur og átta Airbus 320
vélar. Starfsmenn eru 260 talsins.
SmartLynx er annað stærsta
flugfélag Lettlands. - óká
Skip um nafn á afmælisári:
Latcharter verð-
ur SmartLynx
STJÓRNMÁL „Það var gott hjá Evr-
ópunefndinni að kalla eftir endan-
legum svörum í Brussel og ég held
að hún hafi fengið þau. Það er
mikil vægt að nefndarmennirnir
heyri svarið. Svarið er nei,“ segir
Helgi Hjörvar þingmaður Sam-
fylkingar.
Helgi líkir hugmyndum um að
Íslendingar fái að nota evru án
þess að ganga í ESB við að
evrulöndin séu beðin um að lána
mynt sína og gerast bakhjarlar
íslenskra banka, svo að þeir geti
keppt við evrópska banka með
hærri innlánsvöxtum. Án þess að
vilja ganga í klúbbinn.
„Það er svo galið að ætla lengra
í þeim leiðangri að það er
furðulegt að menn séu að ræða
það í alvöru,“ segir Helgi.
- kóþ / sjá síðu 12
Helgi Hjörvar um evruna:
Nefndarmenn
heyri svarið
Formaður allsherjarnefndar um lögreglustjórann á Suðurnesjum:
Framúrkeyrsla er rót vandans
BIRGIR
ÁRMANNSSON
KARL V.
MATTHÍASSON
HAFNARMÁL „Menn sjá ekki fram
úr hvernig á að reka þessar hafn-
ir til lengri tíma öðru vísi en að
það komi til aðgerðir, bæði frá
höfnunum sjálfum og frá ríkinu
líka,“ segir Gísli Gíslason, for-
maður stjórnar Hafnarsambands
Íslands.
Aðeins þrjár hafnir af um
fjörtíu höfnum
landsins standa
undir sér. Þetta
eru Faxaflóa-
hafnir, Hafnar-
fjarðarhöfn og
höfnin í Fjarð-
arbyggð.
Gísli Gísla-
son bendir á að
í fyrra hafi 65
prósent allra
rekstrartekna
allra hafna og
85 prósent af
öllum vöru-
gjöldum af
hafnarrekstri
stafað frá fyrr-
nefndum þrem-
ur höfnum.
Skuldir allra
hafna á landinu voru samtals um
ellefu milljarðar króna í ársbyrj-
un.
„Tekjurnar í heildina eru hins
vegar ekki nema fimm milljarðar
á ári. Þannig að það sér það hver
maður að það er ekki hægt að
reka þetta svona,“ segir Gísli.
Hafnarsambandsþing hófst á
Akureyri í gær. „Niðurstaðan hjá
okkur er sú að mikilvægt sé að
setja upp starfshóp sem leggi til
stefnumótun í málefnum hafna til
lengri tíma. Samgönguráðherra
hefur tekið vel í að það verði sest
yfir heildarstefnumótun í þessu
og það er ekki seinna vænna. Það
verður ekki áfram haldið á þess-
ari braut,“ segir Gísli.
Verst allra hafna stendur
Reykjaneshöfn. Skuldir hennar
nema nú 2,7 milljörðum króna
sem er um tveimur milljörðum
umfram eignir. „Fjárhagsvandi
hennar er gríðarlegur og að
óbreyttu verður ekki séð að hægt
verði að halda rekstri hennar
áfram í sömu mynd,“ sagði Hag-
stofa Íslands í úttekt frá í vor.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, segir höfnina
vissulega hafa verið gríðarlega
mikinn bagga um árabil. Þróunin
í gengismálum að undanförnu
hafi síðan gert illt verra.
„En höfnin er um leið gríðar-
mikið tækifæri til framtíðar með
uppbyggingu álvers og annarrar
hafnartengdrar starfsemi í
Helguvík. Þar verður loksins
kominn fastur grunnur til þess að
við getum unnið okkur út úr vand-
anum,“ segir bæjarstjórinn sem
ítrekar að um sé að ræða verkefni
til tíu eða fimmtán ára. „Á meðan
höfum við öll tök á að axla þennan
bagga.“ gar@frettabladid.is
Milljarðar í mínus
hjá Reykjaneshöfn
Aðeins þrjár af fjörutíu höfnum landsins eru reknar án taps. Skuldir Reykjanes-
hafnar eru tveir milljarðar króna umfram eignir. Öxlum baggann og vinnum
okkur út úr vandanum segir bæjarstjórinn. Hafnarsambandið vill nýja stefnu.
HÖFNIN Í HELGUVÍK Reykjaneshafnir standa gríðarlega illa en bundnar eru vonir við
að rekstrargrundvöllur fáist með álveri í Helguvík. MYND/ODDGEIR
GÍSLI GÍSLASON
ÁRNI SIGFÚSSON
EFNAHAGSMÁL Willem Buiter,
prófessor í stjórnmálahagfræði
við London School of Economics,
segir í grein í Financial Times að
það sé of dýrt fyrir fjármálalíf
Englands að halda úti sjálfstæð-
um gjaldmiðli.
Buiter ber í greininni saman
stöðu Englands og Íslands, og
efast um að Englandsbanki sé
trúverðugur lánveitandi til
þrautavara. Að mati Buiter eru
aðeins þrjár leiðir færar: Að
fjármálalíf Englands veslist upp,
England gerist fimmtugasta og
fyrsta ríki Bandaríkjanna, eða
taki upp evru. - msh / sjá síðu 16
Sterlingspundið of dýrt:
Líkir pundinu
við krónuna
Nýr safnaðarprestur
Ragnheiður Laufdal verður vígð til
embættis safnaðarprests Boðunar-
kirkjunnar á morgun. Vígslan hefst
klukkan 11 að Hlíðarsmára 9.
TRÚMÁL
VERÐLAUN „Þetta var rosalega skemmtilegt og mikill
heiður, bæði fyrir mig persónulega sem og Latabæjar-
verkefnið í heild sinni,“ segir Magnús Scheving, sem í
gær var sæmdur PROTOS-verðlaunum Universidad
de Panamericana í Mexíkóborg, eins virtasta háskóla
Mexíkó.
Þetta er annað árið sem PROTOS-verðlaunin eru
veitt, en þau koma í hlut aðila sem náð hafa framúr-
skarandi árangri í að miðla upplýsingum til samfélags-
ins á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Í fyrra voru
verðlaunin veitt sjónvarpsfréttakonunni Valentínu
Alazraki, fyrir framúrskarandi fréttaflutning um
Vatíkanið í 25 ár, en Mexíkó er næstfjölmennasta
kaþólska þjóð heims.
Magnús segist hafa fundið fyrir miklum áhuga á
Latabæ á mánaðarlöngu ferðalagi sínu víðs vegar um
heiminn, sem lýkur á morgun. „Ég fór meðal annars til
Ástralíu og Nýja-Sjálands, og sá að þau svæði eiga
eftir að verða mjög stór markaður fyrir Latabæ. Svo
var ég í Sviss, þar sem ég átti fundi með heilbrigðis-
yfirvöldum þar í landi, auk þess sem ég fundaði með
þreföldum Wimbledon-meistara, Þjóðverjanum Boris
Becker. Hann býr í Sviss og hefur mikinn áhuga á að
vinna með okkur að heilbrigðum lífsstíl barna og
unglinga þar í landi, en hann er mikill aðdáandi
þáttanna,“ segir Magnús.
Magnús fundar með umboðsmönnum í Hollywood í
dag með það fyrir augum að gera kvikmynd um
Latabæ. Eftir það er förinni heitið til Íslands. - kg
Magnúsi Scheving veitt verðlaun eins virtasta háskólans í Mexíkó:
Mexíkóar verðlauna Magnús
HEIÐUR Magnús Scheving tekur við PROTOS-verðlaununum úr
hendi dr. Carlos Sanchez hjá Universidad de Panamericana.
ORKUMÁL Fulltrúar Geysir Green
Energy í stjórn orkuútrásarfyrir-
tækisins Enex vilja sameina Enex
og fyrirtækið Exorku sem einnig
er í verkefnum erlendis.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins lögðu fulltrúar Geysir
Green það til á stjórnarfundi í
Enex á miðvikudag að hlutafé yrði
aukið í fyrirtækinu með samein-
ingu við X-orku og að það yrði
staðfest á hluthafafundi í næstu
viku. Geysir Green á Exorku að
öllu leyti en 75 prósent í Enex á
móti dótturfyrirtæki Orkuveit-
unnar, Reykjavik Energy Invest.
Ásgeir Margeirsson, formaður
stjórnar Enex og forstjóri Geysir
Green, segist ekkert vilja
staðfesta í þessum efnum. - gar
Fyrirtæki í orkuútrás:
Vilja sameina
Enex og X-orku
LÖGGÆSLUMÁL Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra segir að
tilkynnt verði eftir helgi hverjir
muni fylla skörð þeirra sem
ákveðið hafa að
segja upp
störfum sínum
hjá Lögreglu-
stjóraembætt-
inu á Suðurnesj-
um. Spurður um
orðróm þess
efnis að Sig ríður
Björk Guðjóns-
dóttir aðstoðar-
ríkislögreglustjóri myndi gegna
starfi lögreglustjóra á svæðinu
tímabundið neitar Björn því. „Þeir
sem segja það eru á rangri leið.
Þetta er eitthvað sem kemur frá
Suðurnesjum til að æsa fólk upp,“
segir Björn. Hann neitaði að tjá sig
frekar um málið. - kg
Björn Bjarnason:
Orðrómur til að
æsa fólk upp
BJÖRN BJARNASON
Mikið slasaður karlmaður var í gær
fluttur með þyrlu á Landspítalann eftir
að hafa ekið bíl sínum út af veginum
við Refsstaði í Hálsasveit um tvöleytið.
Ökumaðurinn var einn í bílnum.
SLYS
SPURNING DAGSINS