Fréttablaðið - 04.10.2008, Page 8
8 4. október 2008 LAUGARDAGUR
ALÞINGI Ögmundur Jónasson, for-
maður þingflokks VG, lagði til við
upphaf þingfundar í gærmorgun
að umræðu um fjárlagafrum-
varpið yrði frestað. Sagði hann
óvissuna í efnahagsmálum slíka
að engu þjónaði að ræða frum-
varpið fyrr en betur lægi fyrir til
hvaða ráðstafana yrði gripið.
Jón Magnússon, þingflokks-
formaður Frjálslynda flokksins,
var á sama máli enda hefði frum-
varpið aðeins spádómsgildi.
Siv Friðleifsdóttir, þingflokks-
formaður Framsóknarflokks, tók
undir að umræðan yrði ómark-
tæk en flokkur hennar vildi engu
að síður að umræðan færi fram.
Sturla Böðvarsson þingforseti
kvað eðlilegt að gengið yrði til
umræðunnar svo hægt væri að
vísa frumvarpinu til meðferðar
fjárlaganefndar.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra var á sama máli. „Ég skil út
af fyrir sig ábendingarnar, við
vitum öll af óvissunni. Það breyt-
ir ekki því að eðlilegt er að ræða
frumvarpið,“ sagði Geir. Mikil-
vægt sé að koma frumvarpinu í
vinnslu og framvindan muni ráð-
ast af ákvörðunum sem kunni að
verða teknar.
Lúðvík Bergvinsson, þing-
flokksformaður Samfylkingar-
innar, sagði það þýða óvissu ef
þingið myndi fara á svig við
stjórnarskrána og fresta umræð-
unum. Sagði hann að umræðan
gæti átt þátt í að skapa stöðug-
leika. - bþs
Rætt um fjárlagafrumvarpið þótt forsendur þess séu brostnar og óvissan algjör:
Vildu fresta meðferð fjárlaga
RÝNT Rætt var um fjárlagafrumvarpið
á Alþingi þótt flestir séu sammála um
að forsendur þess séu þegar brostnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FANGELSISMÁL Fyrstu tveir litháísku
fangarnir sem hafa afplánað refs-
ingu sína í fangelsum hér hafa
verið sendir til síns föðurlands.
Þriðji fanginn fer væntanlega heim
í næstu viku.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra ræddi við dómsmálaráðherra
Litháens fyrr á árinu um flutning
Litháa, sem íslenskir dómstólar
hafa dæmt til fangavistar, til
afplánunar í ættlandi sínu. Varð
samkomulag um þá tilhögun.
Fyrstu tveir fangarnir voru látn-
ir yfirgefa landið síðastliðinn
þriðjudag. Þriðji maðurinn, sem nú
afplánar dóm sinn hér, verður send-
ur utan í næstu viku þar sem hann
mun, eins og hinir tveir fyrri, ljúka
afplánuninni í föðurlandinu.
„Hér eftir fara mál fólks frá
þessu landi, sem dæmt hefur verið
í óskilorðsbundið fangelsi, strax í
ferli eftir að því hefur verið vísað
brott og það verður sent heim,“
segir Páll Winkel, forstjóri Fang-
elsismálastofnunar. „Þetta er virki-
lega gott frumkvæði hjá dómsmála-
ráðuneytinu.“ - jss
LITLA-HRAUN Litháískir brotamenn sem
dæmdir eru hér verða nú sendir heim til
afplánunar.
Fangelsismálastofnun fagnar frumkvæði ráðuneytis:
Fyrstu fangarnir
farnir til LitháensDÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli Þóru Guð-
mundsdóttur gegn Eiríki
Jónssyni blaðamanni þess efnis
að Eiríkur greiði Þóru fimm
hundruð þúsund krónur í
skaðabætur.
Um er að ræða grein sem
birtist í Séð og heyrt undir
fyrirsögninni „Þóra er blönk“ og
er Eiríkur höfundur greinarinn-
ar. Málið varðaði einbýlishús
sem Þóra lét byggja fyrir sig og
að þeim sem það gerði hafi
gengið erfiðlega að fá greitt
fyrir vinnu sína.
Mikael Torfasyni, þáverandi
ritstjóra Séð og heyrt, var einnig
stefnt en hann var sýknaður.
Þorsteinn Svanur Jónsson sem
seldi Þóru einbýlishúsið var
einnig sýknaður. - jss
Dómur Hæstaréttar:
Eiríkur greiði
Þóru bætur
ÁSTRALÍA Sjö ára strákur braust
inn í vinsælan dýragarð í gær og
gekk um í drápshug. Pilturinn
kom þrettán dýrum fyrir kattar-
nef á hálftíma.
Hann mataði 200 kílóa krókódíl
með nokkrum dýrum, þar á meðal
ástsælli 20 ára gamalli eðlu. Því
næst barði hann nokkrar eðlur í
mask með grjóti. Öryggismynda-
vélar náðu pilti á mynd og sýna að
hann sýndi engin svipbrigði á
meðan slátrunin gekk yfir.
„Þetta er ansi ógeðfelldur sjö
ára strákur,“ segir Rex Neindorf
dýragarðsstjóri.
Sökum aldurs verður drengur
ekki kærður. - kóþ
Sjö ára „ógeðfelldur“ strákur:
Var í drápshug í
dýragarðinum
1 Í hvaða bæjarfélagi hefst
fimm manna fjölskylda við í
skútu við höfnina?
2 Hvað heitir barinn á Selfossi
þar sem halda á svokallað
Sóðakvöld eða Dirty Night um
helgina?
3 Eftir hvern er nýr söngleikur
um Janis Joplin sem frumsýndur
var í Íslensku óperunni í gær?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 54
STJÓRNMÁL Breyttar forsendur
gera það að verkum að auka þarf
framlög til Fæðingarorlofssjóðs
um rúmlega 2,2 milljarða króna á
næsta ári.
Á þessu ári voru framlögin
ákveðin 8,8 milljarðar en verða 11
milljarðar á því næsta.
Framlögin – og þar með áætlað-
ar greiðslur – aukast um rúman
milljarð króna þar sem fæðingum
hefur fjölgað umtalsvert. Undan-
farna tólf mánuði hafa fæðst um
4.800 börn sem er fjölgun um 300-
400 börn ef miðað er við árin 2003-
2005.
Þá sýnir samanburður á fyrri
helmingi þessa árs og sama tíma-
bils í fyrra að foreldrum sem taka
fæðingarorlof hefur fjölgað um
rúm sjö prósent.
Vegna þessarar fjölgunar hafa
greiðslur á yfirstandandi ári auk-
ist talsvert og í fjáraukalögum
fyrir árið 2008 verður farið fram
á 700 milljóna króna viðbótarfjár-
heimildir til Fæðingarorlofssjóðs.
Launahækkanir í gerðum og
ógerðum kjarasamningum hafa
einnig sitt að segja en fæðingar-
orlofsgreiðslur eru hlutfall af
tekjum fólks. Vegna þess er ráð
fyrir gert að greiðslur úr sjóðn-
um aukist um 900 milljónir. Taka
framlög í hann mið af því.
Rúmar þrjú hundruð milljónir
eru svo tilkomnar vegna breyt-
inga á viðmiðunum greiðslna.
Breyttust lög í vor á þann veg að í
stað þess að leggja til grundvallar
tvö almanaksár fyrir fæðingarár
barns er miðað við tólf mánaða
samfellt tímabil sem lýkur sex
mánuðum fyrir fæðingardag
barns.
Fyrir nokkrum misserum
breyttust lög um fæðingarorlof
þannig að að hvort foreldri um
sig á sjálfstæðan og óframseljan-
legan rétt til fæðingarorlofs í allt
að þrjá mánuði. Að auki eiga for-
eldrarnir rétt til greiðslna í þrjá
mánuði til viðbótar sem annað
foreldrið getur tekið í heild eða
þeir skipt á milli sín. Réttur til
fæðingarorlofs gildir þar til barn-
ið verður átján mánaða.
bjorn@frettabladid.is
Fleiri fara í
fæðingarorlof
Auka þarf framlög til Fæðingarorlofssjóðs um rúma
tvo milljarða á næsta ári. Fæðingum hefur fjölgað,
fleiri taka fæðingarorlof og greiðsluviðmið hafa breyst.
HVÍTVOÐUNGUR Fæðingum hefur fjölgað umtalsvert á síðustu tveimur árum og
foreldrum sem taka fæðingarorlof hefur einnig fjölgað.
MENNING Sérkennilegur fengur
barst í Kópavog í gær, en þar var
á ferð 175 ára gamalt mannshöf-
uð. Höfuðið, sem eitt sinn til-
heyrði ættarhöfðingja og töfra-
manni Shuar-indíánaþjóðflokksins
í Ekvador, er hluti af suður-amer-
ískri menningarhátíð sem sett
var í gær.
Höfuðið má sjá í Náttúrufræði-
stofu Kópavogs, auk skjalda af
risaskjaldbökum. Þær eru þær
stærstu sinnar tegundar og eiga
heimkynni á Galapagoseyjum.
Í Gerðarsafni er yfirlitssýning
listmuna og málverka frá 4.000
fyrir Krist og til okkar daga. Þar
getur að líta forna leirmuni,
Inkagull og ýmislegt fleira.
- kóp
Suður-amerísk menningarhátíð í Kópavogi:
Mannshöfuð á sýningu
TÖFRAMAÐURINN Hér sést stærð höf-
uðsins í samanburði við eldspýtustokk.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEISTU SVARIÐ?