Fréttablaðið - 06.10.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
EINS og allir vita sem fylgjast
með fréttatilkynningum frá land-
læknisembættinu og heilsuvernd-
arstofnunum getur sannleikurinn
valdið bæði kvíða og áhyggjum,
einkum meðal sauðsvarts
almúgans. Því ber að varast fyrir
ráðamenn þjóðarinnar og fjölmiðla
að birta vondar og neikvæðar
fréttir sem gera ekkert annað en
að vekja óöryggi og kvíða hjá fólki
sem þarf að einbeita sér að vinnu
sinni og fylgjast með Britney
Spears og bresku knattspyrnunni.
Konum og börnum, öðrum aum-
ingjum og hjartveiku fólki, eink-
um með fokdýra gangráða, er því
bent á að hætta að lesa þessa grein
NÚNA STRAX og snúa sér heldur
að sjónvarpsdagskránni sem er að
finna inni í blaðinu.
Í þeirri bullandi kreppu því tíma-
bundna óvissuástandi sem nú kaf-
færir þjóðina má sjá fregnir um í
óvönduðum fjölmiðlum er svo-
nefndur vinnustaðahúmor er sú
olía það lífræna eldsneyti sem var-
ast ber umfram allt að bæta á eld
óttans. Því hefur verið ákveðið að
niðurgreiða úr ríkissjóði verð á
eyrnatöppum úr sílíkoni vaxi og
bómull svo að viðkvæmar sálir
þurfi ekki að heyra kaldlynd
ruddamenni gantast með:
AÐ fyrsta verk Alþingis til að
sýna samstöðu og alvöru málsins
ætti að vera að hætta að draga
lappirnar af þvermóðskugræðgi
og afnema eftirlaunaósómann
reglur um eftirlaun þing- og emb-
ættismanna áður en leitað verður
samráðs við kommúnistakommiss-
arana forystumenn verkalýðs-
hreyfingar og lífeyrissjóði. Það er
að segja strax í dag.
AÐ skipta um stjórn í Seðlabank-
anum eigi síðar en í dag og fela
óspilltum fagmanni eins og próf-
essor Þorvaldi Gylfasyni húsverð-
inum að taka við lyklunum að
sjoppunni. Að smala saman ofur-
launahyskinu og láta það skila
aftur þeim peningum sem ekki
hafa þegar farið í ofurneyslu og
láta það standa í gapastokki á Aust-
urvelli fram á Þorláksmessu. Að
afnema verðbætur á skuldir nema
laun verði einnig verðtryggð. Að
taka upp Matadorspeninga og
hefja nýja umferð í leiknum evru
og ganga í Efnahagsbandalagið.
AÐ opna sendiráð í Simbabve og
Túrkmenistan.
AÐ aðhafast ekkert. Láta eins og
ekkert sé og vera bjartsýn. Þetta
reddast einhvern veginn eins og
venjulega.
Ekki lesa þetta!
Krepputal!
Í dag er mánudagurinn
6. október, 279. dagur ársins.
7.52 13.16 18.38
7.40 13.01 18.20