Fréttablaðið - 06.10.2008, Blaðsíða 36
20 6. október 2008 MÁNUDAGUR
Á níunda áratug síðustu aldar blómstraði
nokkuð öflug jaðarrokkmenning víða í hinum
vestræna heimi. Hún var þó á fáum stöðum í
jafnmiklum blóma eins og í norðvesturhluta
Bandaríkjanna þar sem misskildar týpur
höfðu frelsi til að rokka frá sér allt vit án þess
að umheimurinn hefði nokkuð út á það að
setja. Svo fór allt fjandans til í byrjun tíunda
áratugarins þegar tvær af þessum jaðar-
hljómsveitum, Nirvana og Pearl Jam skömmu
síðar, slógu rækilega í gegn og grugg-stefnan
svokallaða varð að tískufyrirbæri um heim
allan.
Í kjölfar vinsældanna var náttúrlega úti um
jaðarrokk sem slíkt; það liggur í hlutarins eðli
að vinsælt efni getur ekki tilheyrt jaðrinum.
Allar götur síðan hefur vinsældapopp
miskunnarlaust nýtt sér útlit, sögu og
hljóðheim jaðarrokksins til að markaðssetja
horbjóð ýmiss konar ofan í ráðvillta unglinga.
Eiginlegt jaðarrokk hefur að sama skapi tekið
upp ýmsa vanhugsaða takta úr heimi
vinsældatónlistar. Misskilið og pirrað fólk á
sér fá athvörf í tónlistarheiminum nú til dags.
Tónlistarfræðingar eru þó flestir sammála
um að sökina á þessari leiðu þróun beri Pearl
Jam fremur en Nirvana, þó svo að síðar-
nefnda hljómsveitin hafi í raun verið sú sem
hratt jaðaræðinu af stað á sínum tíma.
Ástæðan fyrir því er einföld: Pearl Jam er
skipuð mönnum sem hafa áhuga á keppnis-
íþróttum (hljómsveitin kom meðal annars
einu sinni fram undir nafninu Mookie
Blaylock, auk þess sem söngvarinn Eddie
Vedder spilaði hafnabolta í frístundum
sínum). Ljóst er að karlmenn sem hafa áhuga
á íþróttakappleikjum tilheyra svo sannarlega
ekki jaðrinum á einu né neinu og eru því að
sigla undir fölsku flaggi þegar þeir selja sig
sem vini hins misskilda. Kurt Cobain varð
vissulega vinsæll, en hann hafði rænu á að
hafna íþróttaáhuga alveg til hins síðasta.
Vedderinn drap jaðarinn
NOKKUR ORÐ
Vigdís
Þormóðsdóttir
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Almenna
flutningafyrirtækið
Takið eftir!
Hafragrjón eru á
tilboði!
Og kardemommudrop-
ar líka! Í þessa átt!
Ég held nú ekki
að hafragrjón séu
á tilb...
My mistake!
Getum við
verið svo-
lítið fljót að
þessu?
Hvað er klónun
eiginlega?
Ja...
... eins og ég skil þetta
þá eru vísindin að reyna
að finna aðra leið til að
skapa manneskju en þá
venjulegu.
Þetta er
athyglisvert
umræðu-
efni!
Aðeins fullorðnu
fólki finnst eitthvað
áhugavert, þegar
búið er að útiloka
það skemmtilega.
Mjáááá
si!
Kall náttúrunnar.
DÝNUR ALLAN SÓLARHRINGINN
Dýnur allan sól-
arhringinn, get ég
aðstoðað?
Má ég spyrja að
einu?
Skjóttu!
Áttu 180 sentímetra
breiða kojudýnu?
Skriðu krakk-
arnir upp í
rúm til þín?
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ | TÓNABÚÐIN | SÍÐUMÚLA 20 | 108 REYKJAVÍK
111.486
57.147
78.672
20.000
0
40.000
60.000
80.000
100.000
120.000
Meðallestur á tölublað m.v. allt landið, 12–54 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Þjóðin veit hvað hún vill
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnis-
aðila sína eins og síðasta könnun Capacent
Gallup ótvírætt sýnir. Við erum rífandi stolt af
þessum góða árangri og bendum auglýsendum
á að notfæra sér forskotið okkar þegar þeir
velja auglýsingamiðil.
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Það mælist í tugum þúsunda hvað miklu fleiri lesa
Fréttablaðið en Morgunblaðið og 24 stundir