Fréttablaðið - 06.10.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 06.10.2008, Blaðsíða 8
8 6. október 2008 MÁNUDAGUR LÍTTU Í EIGIN BARM Sýndu stuðning þinn í verki og settu slaufu í barminn bleikaslaufan.is 0 8 -1 8 4 8 / H V ÍT A H Ú S Ð I / S ÍA 1 Hvað er talið að risavíkinga- myndin, sem bandarískir kvikmyndagerðarmenn stefna á að taka hér á landi á næstunni, muni kosta? 2 Hver er langtekjuhæsti rithöf- undur heims? 3 Hversu oft hafa KR-ingar orðið bikarmeistarar? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 STJÓRNSÝSLA Síðan núverandi ríkis- stjórn tók við hafa ráðherrar þegið rúmlega 18,4 milljónir í dagpen- inga. Upphæðirnar eru mismun- andi eftir ráðherrum, en allir hafa þó þegið eitthvað. Fimm makar ráðherra hafa þegið dagpeninga, samtals ríflega tvær milljónir. Nokkurn tíma tók að fá svar við fyrirspurn Fréttablaðsins um dag- peninga. Þess vegna hafa sumir ráðherra þegið meira fé en kemur fram hér, þeir hafa farið í ferðalög á meðan beðið var eftir svörum annarra. Eðli málsins samkvæmt hefur utanríkisráðherra þegið mest. Síðan ríkisstjórnin tók við og fram til 15. september þáði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tæpar átta millj- ónir í dagpeninga. Ingibjörg fór í 32 ferðir. Maki ráðherra hefur enga dagpeninga þegið. Síðan þá hefur ráðherra í það minnsta farið til New York og væntanlega þegið dagpeninga fyrir það. Nokkra athygli vekur að Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur þegið tæplega 2,9 milljónir króna í dag- peninga. Maki hennar hefur aldrei fengið greidda dagpeninga. Þor- gerður hefur fengið um milljón meira í dagpeninga en forsætis- ráðherra. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur greitt tæplega 2,2 milljónir í dagpeninga fyrir Björn Bjarnason ráðherra og um 470 þúsund fyrir maka hans. Ráðuneytið er ekki stórt en málefni Schengen eru á þess könnu. Í svari forsætisráðuneytisins frá 10. september kemur fram að Geir H. Haarde hafði þegið 1,9 milljónir í dagpeninga og maki hans 540 þús- und. Síðan þá hefur forsætisráð- herra farið á allsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur fengið lægsta fjárhæð greidda í dagpen- inga, eða 527 þúsund. Tveir aðrir ráðherrar hafa þegið minna en milljón; Kristján Möller samgöngu- ráðherra með 628 þúsund og Jóhanna Sigurðardóttir með 605 þúsund. Enginn maka þessara ráð- herra hefur þegið dagpeninga. Aðrir ráðherrar hafa allir þegið yfir milljón krónur. Forseti Íslands er hluti af ríkis- ráðinu. Frá því að núverandi ríkis- stjórn tók við og fram í september á þessu ári hafa verið greiddar út tæpar 2,8 milljónir í dagpeninga til forsetans. Dorrit Moussaieff hefur aldrei þegið dagpeninga. kolbeinn@frettabladid.is Á þriðja tug milljóna í dagpeninga Ríkisráð Íslands, ráðherrar og forseti, hafa fengið rúmlega 21 milljón í dagpeninga frá því að núver- andi ríkisstjórn tók við og makarnir tvær miljónir. LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningar um þrettán líkams- árásir aðfaranótt sunnudags. Í einu tilfellinu réðust tveir menn að manni í miðborginni, börðu hann illa og rændu af honum veskinu. Maðurinn var fluttur á slysadeild en lögregla leitaði árásarmannanna enn í gær. Þá var maður laminn með kylfu í Hafnarfirði. Hann var fluttur á slysadeild með kúlu á höfði en ofbeldismaðurinn færður í fangageymslu. Einn var fluttur á slysadeild eftir að hafa lent í áflogum í Austurstræti. Um fimmleytið réðust svo tveir menn á konu sem var á leið til vinnu og rændu hana. - kdk Þrettán árásir tilkynntar: Ofbeldi og rán í höfuðborginni KÓPAVOGUR „Hækkunin er sem olía á verðbólgubál og kemur því á versta tíma,“ segir einróma bæjarráð Kópavogs sem mótmælir harðlega ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur um 10 prósent hækkun á heitavatnsgjaldi. Bæjarráðið segir skjóta skökku við að hækkunin sé rökstudd með vísan til fjárfestinga Orku- veitunnar. Það geti vart hafa verið ætlunin að þær myndu leiða til slíkra verðhækkana hjá almenn- ingi: „Bæjarráð Kópavogs skorar á eigendur Orkuveitunnar, þar sem Reykjavíkurborg fer með lang- stærstan eignarhlut, að endurskoða ákvörðunina.“ - gar Hækkun OR á heitu vatni: Sögð vera olía á verðbólgubálið RÍKISRÁÐIÐ Ráðherrar og forseti hafa þegið rúmlega 21 milljón króna í dagpeninga síðan ríkisstjórnin tók við. Makar hafa þegið rúmar tvær milljónir, en ekki þiggja allir makar dagpeninga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fo rs æ tis D óm s- o g ki rk ju Fé la gs - og tr yg gi ng a H ei lb rig ði s M en nt am ál a Sj áv ar - la nd bú na ða r U ta nr ík is 8 6 4 2 0 M illjónir króna Fo rs et i Í sl an ds Ráðuneyti Makar DAGPENINGAR RÍKISRÁÐS FRÁ 23. MAÍ 2007 10.9 17.9 17.9 23.9 5.9 9.9 9.9 5.9 1.10 15.9 15.9 8.9 12.9 Fj ár m ál a Ið na ða r Sa m gö ng u U m hv er fis Vi ðs ki pt a Samtals: 23.250.574 Svar barst NÁTTÚRA Talið er að minkur sé horfinn í Tjörneshreppi. „Að baki þessum árangri liggur mikil vinna og árvekni veiðimanna okkar,“ segir á vefsíðu svæðisins tjornes- hreppur.is. Róbert Arnar Stefánsson líf- fræðingur segir að með mjög markvissu átaki hafi það sýnt sig víða um land að mjög góður árang- ur geti náðst í baráttunni við mink- inn. Það sé hins vegar erfitt að meta hvort tekist hafi að útrýma minkunum. „Tómar gildrur gefa þó vísbendingu um að góður árangur hafi náðst,“ sagði hann þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. Á Tjörnesi var ákveðið að hefja skipulagðar veiðar árið 2006 með því markmiði að útrýma mink af svæðinu. Ári síðar fannst ekkert greni en í október það ár veiddist í gildru eitt dýr og síðan ekki söguna meir til dagsins í dag, eins og segir á síðu svæðisins. Ef ekkert dýr finnst í gildrum veiðimanna í okt- óbermánuði vona sveitungar að sýnt þyki að hægt sé að halda útbreiðslu minks í skefjum. Minkaveiðar hófust fljótlega eftir að minkar fóru að breiðast um landið, en árið 1939 var byrjað að greiða fyrir veiðarnar úr opinber- um sjóðum til að reyna að stemma stigu við fjölgun þeirra í landinu. Tjörneshreppur er utan þess svæð- is sem ríkið hefur veitt 160 milljón- um til, vegna sérstaks átaks í bar- áttunni við minkinn. - kdk Sveitungar í Tjörneshreppi ötulir við minkadráp: Minkar hverfa af Tjörnesi TJÖRNES Tjörnes er skagi á milli Skjálfandaflóa og Axarfjarðar. Kaupstaðurinn Húsa- vík sem nú er hluti af sveitarfélaginu Norðurþingi stendur sunnarlega á vestanverðu nesinu en byggðin í Tjörneshreppi nær frá Reyðará sem fellur til sjávar í Héðinsvík. SVÍÞJÓÐ, AP Mannréttindasinnar frá Kína og Rússlandi eru taldir líklegastir til að fá friðarverðlaun Nóbels, sem afhent verða í vik- unni. Ítali, Sýrlendingur og Ísraeli eru hins vegar efstir á blaði þegar bókmenntaverðlaunin ber á góma. Á meðan verðlaunanefndirnar sitja sveittar yfir afrekum ársins á sviðum vísinda, friðar og bók- mennta fara getspekingar mikinn og eru háar fjárhæðir lagðar undir á þá sem taldir eru munu hreppa hnossið og verðlaunaféð upp á 1,3 milljónir dala. Valið í læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði og hagfræði er venju- lega afgreitt í vísindasamfélag- inu en valið hjá friðar- og bók- menntanefndunum er yfirleitt umdeildara. Einn meðlima sænsku Nóbels- stofnunarinnar, sem veitir verð- launin í bókmenntum á fimmtu- dag, vakti mikla reiði meðal bókmenntaunnenda í Bandaríkj- unum, þegar hann sagði Banda- ríkjamenn of þröngsýna og fáfróða til að standast Evrópubúum snúning í bók- menntaheiminum. Horace Engdahl, formaður Nóbelsnefndarinnar, hafnar því að stjórnmál hafi nokkuð með val nefndarinnar að gera. Nóbelsverðlaunin eru afhent 10. desember en þann dag árið 1986 lést Alfreð Nóbel, stofnandi verðlaunanna. - kdk Mannréttindafrömuðir frá Kína og Rússlandi líklegir Nóbelsverðlaunahafar: Friðarverðlaun til Kínverja eða Rússa NÓBELSVERÐLAUN Halldór Laxnes fékk bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1955. LÖGREGLUFRÉTTIR Fjórir ökumenn handteknir Fjórir ökumenn voru handteknir á Suðurnesjum aðfaranótt sunnudags. Einn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og þrír vegna akstur undir áhrifum áfengis. Saga rafstöðva við Sogið Sveitarstjórn Grímsness- og Grafn- ingshrepps hyggst láta skrifa sögu Grafningshrepps og rafstöðva við Sog. SUÐURLAND VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.