Fréttablaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 4
4 9. október 2008 FIMMTUDAGUR Opinn fundur um gjaldeyrismál Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi boðar til opins fundar um gjaldeyrismál. Staðsetning: Digranesvegi 12 Tímasetning: laugardaginn 11. október kl.11.00 Frummælandi: Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrverandi alþingismaður, og formaður nefndar Framsóknarfl okksins um gjaldeyrismál. Allir velkomnir Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 15° 14° 11° 15° 18° 17° 17° 20° 18° 23° 25° 20° 18° 25° 23° 29° 19° 5 Á MORGUN 5-10 m/s LAUGARDAGUR 3-8 m/s 7 6 6 6 8 10 11 10 10 9 13 9 6 10 8 8 13 10 15 18 13 7 7 4 4 5 86 HELGARHORFUR Helgin verður tvískipt. Á laugardag verður minnkandi norðanátt með rigningu eða slyddu norðan til á landinu en syðra léttir smám saman til um og eftir hádegi. Á sunnudag verður suðaustan strekk- ingur sunnan til og vestan annars hæg- ari. Einhver rigning syðst en bjart með köfl um norðan til og austan. 8 108 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur EFNAHAGSMÁL „Ég held að flestir Bretar geri sér grein fyrir því að þetta vandamál er ekki sértækt fyrir íslenska banka. Fólk er frekar pirrað út í ófremdar- ástand í fjármálum almennt en Íslendinga sérstaklega,“ segir Sindri Traustason, tölvunarfræð- ingur og forritari, sem býr í King´s Cross- hverfinu í London. Sindri segist verða var við mikla umfjöllun um málefni Icesave allt í kringum sig, en enginn hafi komið að máli við hann persónulega. „Ég held að þetta mál breyti ekkert viðhorfi Breta gagnvart Íslendingum, hvorki ferðamönnum né öðrum,“ segir Sindri. - kg Íslendingur í London: Breytir ekki viðhorfi Breta SINDRI TRAUSTASON ALÞINGI „Ytri aðstæður valda því að nýjar upplýsingar berast daglega. Þar af leiðandi er verklagið annað en venjulega,“ segir Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, um gerð fjárlaga næsta árs. Fjárlagafrumvarpinu var vísað til nefndarinnar á föstudag og samkvæmt starfsáætlun fer önnur umræða fram undir lok nóvember. „Ég veit að þingið mun standa undir nauðsynlegu vinnulagi,“ segir Gunnar en auk stöðugt nýrra upplýsinga setja annir starfs- manna fjármálaráðuneytisins vegna efnahagsaðstæðna og - aðgerða áætlanir úr skorðum. - bþs Formaður fjárlaganefndar: Nýjar upplýs- ingar daglega EFNAHAGSMÁL Reiði í garð Íslend- inga braust út í Bretlandi í gær- morgun eftir að Alistair Darling fjármálaráðherra sagði að íslensk stjórnvöld hygðust ekki standa við skuldbindingar um að tryggja inni- stæður Icesave-reikninga Lands- bankans í Bretlandi. Gat hann þess um leið að bresk stjórnvöld myndu ábyrgjast sparnaðinn. Skömmu síðar sagði Gordon Brown forsætisráðherra að stæði íslenska ríkið ekki við skuldbind- ingarnar myndi breska ríkið höfða mál gegn því íslenska til að leita réttar síns. Í kjölfar þessa hófust umleitanir sem miðuðu að því að koma málinu í vinsamlegri í farveg. Eftir hádegi gekk Sverrir Haukur Gunnlaugs- son sendiherra á fund háttsettra embættismanna í forsætis- og fjár- málaráðuneytum Bretlands þar sem ákveðið var að taka upp form- legar viðræður um samráð og nauðsynlegar aðgerðir. Samhliða gaf Geir H. Haarde forsætisáðherra út yfirlýsingu þar sem sagði að með breyttum lögum yrðu innistæður forgangskröfur ef til gjaldþrots kæmi. Góðar líkur væru á að eignir Landsbankans myndu standa undir stærstum hluta innistæðna Icesave-reikn- inganna. Var þess og getið að ríkis- stjórn Íslands væri staðráðin í að láta ekki núverandi stöðu á fjár- málamörkuðum skyggja á ára- langa vináttu ríkjanna. Á blaðamannafundi síðdegis í gær sagði Geir H. Haarde að óvissa hefði komið upp í Bretlandi þar sem málinu hafði ekki verið komið í farveg. Um yfirlýsingar Browns um málshöfðun sagði hann í sjálfu sér ekkert athugavert við að dómstólar leystu úr ágreiningi ef ekki tækist að gera það í góðu samkomulagi milli ríkjanna. „Það verður að sjálfsögðu samið við Bretana um þetta mál. Það ætlar enginn að hlaupa frá einu eða neinu, að sjálfsögðu ekki. Við tökum á þessu máli eins og á öllum öðrum vandamálum eins og siðað samfélag,“ sagði Björgvin G. Sig- urðsson viðskiptaráðherra. Landsbankinn starfrækti líka Icesave í Hollandi. Að sögn Geirs eru viðræður um tryggingamál við þarlend stjórnvöld ekki jafn langt komnar og í tilviki Bretlands. Á blaðamannafundinum gat Geir þess að hann hefði talað við kol- lega sína á hinum Norðurlöndun- um og alls staðar mætt velvilja. Hann hefði ekki leitað aðstoðar og hún ekki boðin fram. bjorn@frettabladid.is Reynt að róa Bretana Krísa kom upp í samskiptum Íslands og Bretlands í gær þegar óvissa ríkti um tryggingar á innistæðum Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi. Lausna var leitað eftir að forsætisráðherra Bretlands boðaði lögsókn vegna málsins. MÁLIN SKÝRÐ Geir H. Haarde forsætisráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra greindu frá nýjustu upplýsingum í efnahags- og fjármálakrísunni og svörðu spurningum íslenskra og erlendra blaðamanna í Iðnó í gær. FRÉTTABLAÐIÐSTEFÁN EFNAHAGSMÁL Góðgerðarsamtökin Spes sem rekið hafa barnahjálp í Afríku finna nú óþyrmilega fyrir samdrættinum á Íslandi auk ýmissa annarra samtaka sem íslenskir bankar og almenningur hafa styrkt í gegnum tíðina. Til- gangur Spes er að byggja og reka þorp fyrir foreldralaus börn og hefur til að mynda verið útbúið um hundrað barna heimili í Afr- íkuríkinu Tógó. Það hefur kostað í kringum 77 evrur á mánuði að styrkja eitt barn þar í landi. Njörður P. Njarð- vík, formaður samtakanna, segir að þótt Spes sé starfrækt í fleiri löndum en Íslandi hafi um það bil 70 prósent framlaga komið héðan. Nú sé svo komið að útgjöld þeirra Íslendinga sem vilji leggja málinu lið hafi hækkað mjög vegna geng- ishruns krónunnar auk þess sem gengi hennar sé nú svo mjög á reiki að mjög erfitt sé að eiga við öll útgjöld. Tógó er sárafátækt land. Þriðj- ungur íbúa er undir fátæktar- mörkum. Fátækt og eyðni leiða til þess að fjölmörg börn fara for- eldralaus á vergang en Njörður segir heimilin hafa gefið þeim von. „Við höfum nú þungar áhyggj- ur af börnunum okkar,“ segir hann. - kdk Samtök sem notið hafa góðs frá íslenskum almenningi og bönkum: Óttast um hag barnanna LÖGREGLUMÁL Ríkislögreglustjóra er kunnugt um að almenningi hér á landi hafi borist símtöl að utan þar sem fólki er boðið að leggja fjármuni sína inn á bankareikn- inga í útlöndum. Vitað er að í einu tilviki, hið minnsta, barst símtalið frá óskráðu GSM-símanúmeri í Danmörku. Í því tilfelli kynnti viðkomandi sig sem starfsmann tiltekins banka í Danmörku, kvaðst vita um bágt efnahags- ástand á Íslandi og bauð viðmæl- anda að flytja fjármuni sína á reikning í bankanum. Ríkislögreglustjóri hvetur fólk til að vera á varðbergi berist því slík símtöl. - jss Embætti ríkislögreglustjóra: Varar við gylli- boðum í síma TÓGÓ Njörður Njarðvík og eiginkona hans, Bera Þórisdóttir með börnum í Togo. Fyrirhuguð lántaka: Rætt við Rúss- ana á þriðjudag Vel má vera að gengið verði frá lánveitingu Rússlands til Íslands á fundi ytra á þriðjudag. Geir H. Haarde forsætisráðherra greindi frá þessu á blaðamannafundi í gær. Sagðist hann telja rússneska ríkið vel aflögufært vegna mikilla tekna af olíusölu. Spurður hvort aðkoma Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að málefnum Íslands væri útilokuð sagði hann svo ekki vera. Geir var spurður hvort hann teldi tímabært að Seðlabankinn lækkaði stýrivexti og kvaðst hann myndu koma því á framfæri annars staðar þegar hann teldi það tímabært. Gat hann þess jafnframt að staða bankastjórnar Seðlabankans væri óbreytt. - bþs Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra segir unnið að því að tryggja „að minnsta kosti hluta“ inneigna í peningamarkaðssjóð- um bankanna. Slíkir sjóðir njóta ekki sömu tryggingaverndar og hefðbundnar innistæður. Helgast það af eðli þeirra en þeir eru meðal annars ávaxtaðir í hlutabréfum sem rýrnað hafa að verðgildi. Eru sum raunar algjörlega verðlaus. Björgvin segir ekki hægt að tryggja allar innistæður í peninga- markaðssjóðum, „en það er hægt að finna leiðir til að lágmarka mjög skaðann.“ - bþs Peningamarkaðssjóðir: Reynt að lág- marka skaðann GENGIÐ 08.10.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 230,0012 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,5 127,1 220,83 221,91 172,16 173,12 23,063 23,197 20,368 20,488 17,73 17,834 1,2667 1,2741 193,7 194,86 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.