Fréttablaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 24
 9. október 2008 FIMMTU- DAGUR 2 D-VÍTAMÍN stuðlar ásamt kalki að heilbrigði beina. Það er að finna í mjólk, eggjarauðu og feitum fiski, svo sem lax, síld og lúðu. því er bætt við smjörlíki, hveiti og sumar gerðir af brauði. D-vítamín mynd- ast í húð við áhrif frá sólarljósi. Nánar á vefsíðunni www.islenskt.is. „Þetta er ekki bara leikfimi fyrir móður og barn, heldur einnig pabba sem vilja gera eitthvað skemmtilegt með barninu sínu. Eða þá ömmur og afa, en nám- skeiðið er í raun fyrir alla í kjarna- fjölskyldunni á einu verði,“ segir Hrafnhildur Sigurðardóttir, grunn- skóla-, tónlistar- og STOTT-Pilat- eskennari, sem fer af stað með námskeiðið Gaman saman í Heilsu- setrinu í Faxafeni í október. „Ég hef áður kennt mæðrum með ung börn STOTT Pilates, en þetta er í fyrsta sinn sem það býðst íslenskum börnum. Æfingakerfið styrkir miðsvæði líkamans og auð- velt að yfirfæra lærða líkamsbeit- ingu yfir á daglegt líf,“ segir Hrafnhildur sem kennir foreldr- um með börn frá eins til tíu ára að gera styrkjandi og liðkandi æfing- ar saman. „STOTT Pilates hentar fólki í öllu líkamsformi. Ég mun leggja áherslu á þær æfingar, en einnig jógastöður, dans og gleði, því ég spila út frá leikgleði og sakleysi barna. Það er dásamlegt að kenna litlum börnum, sem vitaskuld ná ekki fullkomnum tökum á æfing- um, en fá hjálp fullorðinna, og víst að báðir aðilar læra mikið hvor af öðrum,“ segir Hrafnhildur sem kennir Gaman saman á þriðjudög- um, sex vikur í röð. „Margir trega að setja börn sín í áframhaldandi pössun eftir langan leikskóladag og vilja síður spilla helgarfríi fjölskyldunnar með lík- amsrækt fyrir sjálfa sig. Þannig situr heilsurækt foreldra á hakan- um vegna tímaleysis og samvisku- bits. Hér er hins vegar hægt að slá tvær flugur í einu höggi. Fara saman í leikfimi og styrkja tengsl milli barns og uppalenda um leið,“ segir Hrafnhildur. „Við munum leika með stóra og litla bolta, teygj- ur og hringi, og gnótt afþreyingar fæst fyrir þau minnstu sem ekki hafa eirð í sér til að gera æfingar. Æfingar heita sniðugum nöfnum, eins og sögin, planki og brú, og rúlla eins og bolti. Svo dönsum við saman og víst að frjálslegt dill barna smitar þá fullorðnu og veld- ur um leið andlegri upplyftingu.“ Nánari upplýsingar á www.med- anotunum.is. thordis@frettabladid.is Smitandi barnsleg gleði Börnum finnst óborganlegt að sjá pabba rúlla um gólfin eins og bolta, mömmu breytast í sög og dilla sér saman í sætum fjölskyldudansi, en þannig draumastundir bjóðast nú á haustlegum eftirmiðdögum. Ekki er talið ráðlegt að borða stóra og þunga mál- tíð rétt fyrir svefninn því það eykur líkur á meltingar- truflunum og getur ruglað svefnmynstrið. Best er að borða kvöldmat að minnsta kosti tveimur tímum fyrir svefninn. www.visindavefur.is Ástæða fyrir of bráðu sáðláti er talin vera af erfðafræðilegum toga samkvæmt nýlegri rann- sókn. Einn þriðji karlmanna er talinn þjást af of bráðu sáðláti, en niður- stöður úr nýlegri rannsókn benda til að orsökin sé fyrst og fremst af erfðafræðilegum toga. Hingað til hefur ástæðan meðal annars verið rakin til andlegrar líðanar en rannsóknin sem fram- kvæmd var við Utrecht-háskóla í Hollandi hrekur þá kenningu. Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknarinnar tengist of brátt sáðlát serótónframleiðslu við heilann. Þannig virtist framleiðslan ekki vera eins virk í heilastarfsemi þeirra 89 karlmanna sem þjáðust af of bráðu sáðláti miðað við hina 91 karlmanninn sem rannsóknin tók mið af. Er talið að ástæðuna megi rekja til sérstakrar útgáfu af geni, sem stýrir framleiðslu á ser- ótóni við heilann. Verið er að þróa lyf sem vinnur bug á vandanum. Frá þessu er greint á www.bbc. co.uk. - rve Erfðafræði- legur vandi Einn þriðji karlmanna er talinn þjást af of bráðu sáðláti. Ástæðan er hugsanlega erfðafræðileg. NORDICPHOTOS/GETTY Hrafnhildur Sigurðardóttir er kennari á mörgum sviðum og fjögurra barna móðir. Hér er hún í skemmtilegum leikfimiæfingum með yngstu börnum sínum, Ásdísi, 4 ára og Theodóri Snorra, eins árs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA • Hjarta og æðakerfi • Kólesteról í blóði • Blóðþrýsting • Liði • Orkuflæði líkamans • Minni og andlega líðan • Námsárangur • Þroska heila og miðtaugakerfi fósturs á meðgöngu • Rakastig húðar Í fitusýrum er að finna tvo undirstöðuþætti sem eru okkur lífsnauðsynlegir á sama hátt og prótín, kolvetni, vítamín og steinefni. Omega fitusýrur byggja upp ónæmiskerfið á marga vegu og hafa jákvæð áhrif á: Udo‘s Choice fæst í apótekum og heilsubúðum Fullkomin blanda! Udo's choice 3•6•9 olíublandan er fullkomin blanda af lífsnauðsynlegum fitusýrum. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsu okkar. Udo’s 3•6•9 olíublandan er sérvalin blanda náttúrulegra, óunninna, lífsnauðsynlegra fitusýra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.