Fréttablaðið - 09.10.2008, Page 28
9. OKTÓBER 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Íslendingar búa svo vel að eiga
á heimavelli þvottaefni sem
slá öðrum út og skila fallegum
þvotti og skínandi hreinum
húsum. Hreingerningavörurn-
ar frá Mjöll-Frigg eru sérhann-
aðar fyrir íslenskt vatn og
vistvænum tegundum fjölgar.
„Í mínum huga eiga Íslendingar
að styðja íslenskar vörur og fram-
leiðslu eins og mögulegt er að því
tilskildu að varan sé samkeppnis-
hæf í gæðum og verði og alls ekki
kaupa íslenskt bara af því að það
er íslenskt,“ segir Guðmundur
Gíslason, sölu- og markaðsstjóri
hjá Mjöll-Frigg, sem er eina ís-
lenska fyrirtækið sem framleiðir
allt sem þar til hreingerninga.
„Nýir eigendur tóku við fyr-
irtækinu um síðustu áramót og
gríðarlegar breytingar sem hafa
átt sér stað síðan. Fyrri eigend-
ur höfðu sett þvottaduft á plast-
brúsa sem Íslendingum hugnaðist
ekki að kaupa enda vanir þvotta-
dufti í kössum. Við höfum því
sett allt okkar þvottaefni aftur í
kassa og bætt bleikiþvottaefni og
blettahreinsi í Maraþon-línuna,“
segir Guðmundur um þvottaefni
Mjallar-Friggjar sem ásamt Mar-
aþon eru Milt fyrir barnið, sem
íslenskir læknar mæla með fyrir
fatnað ungbarna og þeirra sem
eru með viðkvæma húð, og C-11,
sem hvert mannsbarn þekkir úr
íslensku heimilishaldi frá ómuna-
tíð.
„Allt okkar þvottaefni er sér-
staklega framleitt fyrir íslenskt
vatn, sem fellur undir það sem
kallast mjúkt vatn og inniheldur
lítið af uppleystum kalk- og magn-
esíumjónum. Því þarf minna af
þvottadufti til að ná sömu þvotta-
virkni miðað við útlenskt vatn,
því talsvert magn af þvotta-
dufti þarf til að binda þessar
jónir á þeim stöðum þar sem
vatn er kalkríkt,“ segir Guð-
mundur og nefnir til samanburð-
ar 4,8 kg pakka frá Ariel.
Hvítasti þvotturinn
í þvottahúsinu
Guðmundur Gíslason, sölu- og markaðsstjóri Mjallar-Friggjar, með alíslenskar hreinlætisvörur fyrirtækisins í baksýn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þvottaduft Mjallar-Friggjar eru sérhönnuð fyrir íslenskt vatn og notadrýgri en erlend
þvottaefni. Gamla, góða Hreinolið og Vex henta í uppþvottinn. Þrif-úðinn hefur eign-
ast nýja og vistvæna fjölskyldumeðlimi á árinu. Nýjasta útspil Mjallar-Friggjar er svo
froðuhandsápan Ópera sem er notadrjúg, yndislega ilmandi og vistvæn.
„Þar eru upp gefnir 50 skammt-
ar á móti 100 skömmtum í sömu
stærðarpakkningu frá okkur, og
munar 600 krónum á verði, okkur
í hag. Um slíkt munar fyrir budd-
una. Við erum ekki að tala um 6
krónur heldur 600 í einum þvotta-
duftspakka,“ segir Guðmund-
ur, en þess má geta að þvottaefni
Mjallar-Friggjar eru vistvæn, lág-
freyðandi og rómuð fyrir snjó-
hvítan þvott, eins og notendur C-
11 þekkja og vilja ekki annað.
„C-11 og Hreinol hafa haldist
óbreytt í sömu umbúðum, með
sama innhald og sama fólkið hefur
keypt það frá því það kom á mark-
að. Hins vegar eru æ fleiri að upp-
götva þessi gömlu og góðu vöru-
merki sem og margt annað sem
við framleiðum. Á árinu höfum við
komið með ýmsar nýjungar sem
tekið hefur verið fagnandi. Þar á
meðal eru Þrif-úðavörurnar, vist-
vænn grill- og ofnahreinsir, stál-
hreinsir, gler- og speglahreinsir
og eldhús- og baðhreinsir, en
Þrif-sótthreinsiúðinn hefur sleg-
ið í gegn, enda æ fleiri meðvitað-
ir um bakteríur á skrifborðum,
lyklaborðum og eldhúsborðum,
eins og eftir kjúklingamatseld,“
segir Guðmundur um lítið brot af
vöruúrvalinu hjá Mjöll-Frigg sem
framleiðir 500 gerðir af hreinlæt-
isvörumnum.
„Við framleiðum mjög svo sam-
keppnishæfa vöru hvað verð og
gæði varðar og notum eins vist-
væn efni og bjóðast til að vernda
náttúru Íslands. Okkar vörur
eru því að mörgu leyti vel fyrir
ofan það sem býðst af innfluttum
hreingerningavörum.“ - þlg
Íslenskir hönnuðir hafa verið duglegir við að leita sér fanga í
þjóðararfinum. Einn þeirra er Sigríður Ásdís Jónsdóttir.
Vöruhönnuðurinn Sigríður Ásdís Jónsdóttir hannaði fylgi-
hluti, umbúðir og leiðbeiningar utan um íslenska leiki. Verkefn-
ið vann hún í Listaháskólanum í samvinnu við Þjóðminjasafn ís-
lands. Markmiðið var að hanna hlut í anda gamla tímans en nú-
tímavæða hann um leið.
„Ég vann heilmikla rannsóknarvinnu og skoðaði muni Þjóð-
minjasafnsins auk þess sem ég grúskaði í gömlum bókum. Ég
rakst á mjög skemmtilega bók sem heitir Íslenskar gátur, skemt-
anir (með einu m-i!) vikivakar og þulur. Í henni er að finna
ógrynni af skemmtilegu efni og þar fann ég mikið af gömlum
leikjum sem börn léku í gamla daga,“ segir Sigríður.
Hún ákvað að nota leikina sem efnivið og hvetja nútímabörn
til hreyfingar. „Meðal þeirra leikja sem ég fann voru Skollaleik-
ur, Blindkrækluleikur, Hnapphelda, Halarófuleikur, Róa í sel og
Músarleikur. Mér fannst mjög mikilvægt að varðveita þessa leiki
og koma þeim áfram til yngri kynslóða. Það væri algjör synd ef
við glötuðum þessum skemmtilega menningararfi.“
Þjóðminjasafnið valdi verkefni Sigríðar til sölu í safnbúðinni
en hún lét framleiða leikina hér á Íslandi. Hún saumaði fylgi-
hlutina með aðstoð vinkonu sinnar og naut ráðlegginga og aðstoð-
ar Snorra Más Snorrasonar í Formfast, hönnunar, ráðgjafa- og
framleiðslufyrirtæki í umbúðariðnaði.
„Það var mikill skóli fyrir mig að ráðast í framleiðslu og ég
þurfti auðvitað að spá í allan kostnað auk þess sem ég þurfti að
verðleggja vöruna en það er ekki auðvelt. Þetta er engin gróða-
maskína heldur snýst þetta um að koma sér á framfæri. Mér
fannst frábært að fá tækifæri til að selja vöruna mína í jafn
flottri búð og Safnbúð Þjóðminjasafnsins er og það er mikil
hvatning fyrir unga hönnuði að fá slíkt tækifæri.“
Nánar má forvitnast um hönnun Sigríðar á www.honnunarmid-
stod.is - rat
Leitað aftur í
menningararfinn
Sigríður Ásdís Jónsdóttir vöruhönnuður færði gamla íslenska leiki í nýjan
búning. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Patti ehf. er íslenskt innflutnings- og framleiðslufyrirtæki sem
býður upp á fjölþætta þjónustu á sviði húsgagna fyrir fyrirtæki
og heimili. „Ég hef framleitt húsgögn í þrjátíu ár en við höfum
framleitt undir þessu merki frá 2000,“ segir Gunnar Baldurs-
son, forstjóri Patta ehf. og bólstrunarmeistari. „Ég hanna hlutina,
síðan kemur kúnninn með sínar séróskir og við reynum að upp-
fylla þær.“
Að sögn Gunnars eru við-
skiptin alltaf að aukast. „Með
falli krónunnar hefur varan
lækkað hlutfallslega í verði og
er aðgengilegri og samkeppnis-
færari. Svo erum við með góða
vöru og þjónustu sem hefur
vakið lukku meðal kúnna.“
Patti hannar og framleið-
ir húsgagnamódel sem smíð-
að er eftir og hægt að velja um
áklæði. „Við erum með um 200
til 300 tegundir af áklæðum og
hönnunin einkennist af hreinum
línum. Við framleiðum
albólstruð húsgögn og
smíðum eftir máli.“
Einfalt er að láta
laga húsgögnin ef
eitthvað kemur fyrir
og ódýrt þar sem
þjónustan er innan
seilingar. - hs
Íslensk völundarsmíði
Húsgögnin frá Patta hafa
meðal annars fengist í Hag-
kaupum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN