Fréttablaðið - 08.11.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Allt í einu var ástandið farið að minna mig á verkfallið mikla
haustið 1984. Þá bárust mér spurn-
ir af því að nýtt lag með Kate Bush
trónaði í efsta sæti breska vin-
sældalistans, „Running Up That
Hill“. Ég hafði aldrei heyrt það en
það skipti nú minnstu því það var
þegar orðið uppáhaldslagið mitt.
Fyrir nokkru langaði mig allt í einu
í geisladisk, tilfinning sem grípur
mig sárasjaldan, en þá bar svo við
að diskurinn var uppseldur.
„KEMUR hann aftur fyrir jól?“
spurði ég afgreiðslufólkið í búð-
inni. „Já, örugglega,“ svaraði það
en yppti um leið öxlum eins og þeir
gera sem eru einmitt ekkert sér-
staklega öruggir. Ég lötraði út í
þungum þönkum. Kreppan hafði
læðst upp að mér, blásaklausri
konu sem aldrei hafði gerst svo
fræg að taka myntkörfulán og fór
með tramparana þrisvar til skó-
smiðs áður en þeir voru grafnir í
sínum upprunalega kassa úti í
garði – hér er engu hent. Það var
ekki hægt að fá einn skitinn geisla-
disk! Þetta hlaut að vera vöruskort-
urinn sem varað hafði verið við.
OFAN á allt annað var komin
blússandi verðbólga og því góð ráð
sjaldan verið jafnfokdýr. Ég vissi
að tilgangslaust var að spyrja vin-
konur mínar hvort þær ættu disk-
inn því þær hlusta ekki á rokk.
Samt var ég ekki alveg viss á hvað
þær hlustuðu þá. Einhvers staðar á
ævinni hafði ég hætt að spyrja vini
mína um tónlistarsmekk þeirra og
dæma þá síðan eftir svarinu. Sem
er auðvitað bara þröngsýni. Eftir
nokkrar vangaveltur rifjaðist það
upp fyrir mér að hafa séð skrifað
um diskinn langþráða í Mogganum
og brá á það ráð að hringja í gagn-
rýnandann, enda hafði hann eitt
sinn birst heima hjá mér í mýflugu-
mynd. Ég spurði hann hvort hann
vildi lána mér diskinn.
GAGNRÝNANDINN hélt það nú
og litlu síðar var ég komin með
diskinn í hendurnar. Og það sem
meira var, þá mátti ég bara eiga
hann. Gaf ég gagnrýnandanum
óðara fimm stjörnur fyrir gjaf-
mildina. Diskurinn reyndist jafn-
mikið ekkisens afbragð og mig
hafði grunað. Fátt er jafnindælt og
að láta kröftugt rokk löðrunga sig
veggja á milli þar til maður stendur
á öndinni. Mér leið ekki ósvipað og
þegar ég fékk loks að heyra „Runn-
ing Up That Hill“ fyrir 24 árum.
STUNDUM geta hlutir sem
maður hefur orðið að hafa eilítið
fyrir að eignast orðið dýrmætari
en þeir sem koma of auðveldlega
upp í hendurnar á manni. Það
eykur manni þol, hef ég heyrt, að
hlaupa upp í móti.
Póstkort frá
brúninni
9.35 13.11 16.47
9.32 12.56 16.19
Í dag er laugardagurinn
8. nóvember, 313. dagur ársins.
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
KALLT merkimiðar.
Ýmsir litir 295,-/12 í pk.
KALLT skrauthjörtu.
H9cm. Ýmsir litir
595,-/4 í pk.