Fréttablaðið - 21.11.2008, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 21. nóvember 2008 3
„Ég vinn hjá alþjóðadeild Micro soft
og starfið mitt felst í að vinna með
alþjóðastofnunum eins og Samein-
uðu þjóðunum, Evrópusambandinu,
NATO, Rauða krossinum og fleir-
um í því að nýta betur tölvutækn-
ina í viðbrögðum við náttúruham-
förum,“ segir Gísli Rafn Ólafsson,
tölvunar- og efnafræðingur.
„Við horfum bæði á það hvernig
hægt er að fyrirbyggja hluti eða
draga úr afleiðingum. Það getur
falist í að þjálfa fólk upp í að bregð-
ast fyrr við og svo horfum við líka á
hvernig viðbragðið sjálft er þegar
eitthvað gerist og hvernig hægt er
að bæta það með hjálp tölvutækn-
innar. Þá er til dæmis hægt að nýta
tölvutæknina til að miðla betur
upplýsingum sín á milli,“ útskýrir
Gísli áhugasamur. „Þegar ekki eru
náttúruhamfarir þá fer ég á milli
þessara stofnana og vinn með þeim
í að byggja upp og búa til lausnir
sem menn geta nýtt sér þegar eitt-
hvað gerist. Ég bendi þeim á leiðir
og dreg inn hópa innan Microsoft
sem eru í því að þróa og hanna og
tengi þá við alþjóðastofnanir þannig
að þeir vinni saman,“ segir Gísli og
nefnir að til að sinna þessu starfi
þurfi mjög breiða þekkingu á efn-
inu til að geta útskýrt það á manna-
máli fyrir samstarfsaðilum.
„Í augnablikinu er ég staddur í
Bandaríkjunum, í næstu viku verð
ég í Asíu og fyrir tveimur vikum
síðan var ég í Afríku þannig að ég
held því fram að ég haldi uppi flug-
félögunum,“ segir Gísli og hlær en
hann ferðast víða vegna vinnu sinn-
ar. „Það sem er gaman við þetta er
að undanfarin fimmtán ár hef ég
verið tengdur björgunarstarfi í
gegnum Slysavarnafélagið Lands-
björg sem sjálfboðaliði. Í gegnum
það tengdist ég síðan sveit sem
Sameinuðu þjóðirnar eru með og er
kölluð út þegar það eru stóráföll.
Nú er ég hins vegar búinn að tengja
saman áhugamálið og vinnuna
þannig að maður veit aldrei hve-
nær maður er í vinnunni og hvenær
maður er að stunda áhugamálið,“
útskýrir Gísli spenntur og nefnir
að toppurinn sé að geta tengt þetta
allt saman og námið líka.
„Ég útskrifaðist úr Kaupmanna-
hafnarháskóla með BS-gráðu í tölv-
unarfræði og MSc í efnafræði og nú
nýtist námið mér í starfinu sem og
áhugamálið. Þannig verður vinnan
skemmtileg þegar þú vaknar á
hverjum morgni og finnst áhuga-
vert það sem þú ert að fara að gera á
daginn,“ segir Gísli glaðvær og
bætir við að ef hann hefði ekki haft
þetta áhugamál hefði hann aldrei
lent í þessu skemmtilega starfi sem
hann nú gegnir. „Ég hef verið í þessu
starfi í eitt og hálft ár en mér bauðst
það í gegnum sjálfboðastarf mitt
hjá Sameinuðu þjóðunum. Þá var
Microsoft einmitt að leita að starfs-
manni til að hjálpa stofnunum á borð
við Sameinuðu þjóðirnar í því að
nýta tölvutækni í tengslum við nátt-
úruhamfarir. Segja má að ég hafi
verið réttur maður á réttum stað á
réttum tíma.“
hrefna@frettabladid.is
Gegnir draumastarfinu
Stundum geta áhugamál og menntun tvinnast skemmtilega saman en sú er raunin hjá Gísla Rafni Ólafs-
syni tölvunarfræðingi sem starfar hjá alþjóðadeild Microsoft og ferðast víða um heim.
Gísli ferðast um allan heim í tengslum við starf sitt hjá Microsoft og hér er hann
staddur í Kenýa. MYND/ÚR EINKASAFNI
www.tskoli.is
Raftækniskólinn
• Grunnnám rafiðna
• Grunnnám rafiðna - hraðferð
• Kvikmyndasýningastjórnun
• Rafeindavirkjun
• Rafveituvirkjun
• Rafvélavirkjun
• Rafvirkjun
• Hljóðtækni
Fjölmenningarskólinn
• Sérdeildir
• Nýbúabraut
Hársnyrtiskólinn
• Hársnyrtiðn
Upplýsingatækniskólinn
Upplýsinga- og fjölmiðlabraut
• Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina
• Bókband
• Grafísk miðlun (prentsmíð)
• Kvikmyndagerð
• Ljósmyndun
• Prentun
Tölvubraut
• Forritun, nettækni, tölvutækni
Margmiðlunarskólinn
Skipstjórnarskólinn
• Skipstjórn A (< 24 metrar)
• Skipstjórn B (< 45 metrar)
• Skipstjórn C (Öll fiskiskip + 3000 BT)
• Skipstjórn D (Öll skip, alþjóðaréttindi)
Véltækniskólinn
• Vélstjórn A (VA og ≤750 kW)
• Vélstjórn B ( ≤1500 kW)
• Vélstjórn C ( ≤3000 kW)
• Vélstjórn D (Vélfræðingur)
Hönnunar-
og handverksskólinn
• Grunnnám fataiðnbraut
• Fatatæknir
• Almenn hönnun
• Almenn hönnun – hraðbraut
• Fataiðnbraut - kjólasaumur
• Fataiðnbraut - klæðskurður
• Gull- og silfursmíði
• Handverkshönnun
Endurmenntunarskólinn
• Meistaraskólinn, dagskóli
• Meistaraskóli, kvöldskóli
• Framleiðslustjórnun
• Lýsingarfræði
• Mótun
• Rafeindavélfræði
• Diplóma nám í rekstri og stjórnun
• Hljóðtækni
Flugskóli Íslands
Næstu námskeið
• Bóklegt einkaflugmannsnámskeið
• Bóklegt atvinnuflugmannsnámskeið
• Flugkennaranámskeið
• MCC námskeið
Skráning hafin á www.flugskoli.is
Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2009 lýkur 21. nóvember.
Innritun í kvöldskóla og fjarnám lýkur 30. desember. Allar nánari upplýsingar á www.tskoli.is og í síma 514 9000.
Aðstoð við innritun verður frá kl. 12-16 dagana 20. og 21. nóvember (fimmtudag og föstudag) á Skólavörðuholti.
ækifæri
Kommóður
á tilboði
w
w
w
.h
ir
zl
a
n
.i
s
Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040
kr. 21.800 kr. 14.900
kr. 10.900 kr. 15.900
Auglýsingasími
– Mest lesið