Fréttablaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 30
4 föstudagur 21. nóvember
núna
✽ hvar fær maður svona gardínur?
FLOTTUSTU STÍGVÉL Í HEIMI
Þessi æðislegu lakkstígvél fást hjá Þráni skóara á Grettisgötunni.
Það góða við skóna hjá Þráni er að fólk getur gengið að gæðunum
vísum og svo er verðinu stillt í hóf. Það þarf því hvorki að gefa hand-
legg eða nýra fyrir þessa!
E
dduverðlaunin voru veitt
við hátíðlega athöfn í
Háskólabíói síðastliðið
sunnudagskvöld. Þótt verð-
launin væru örlítið smærri
í sniðum en venjulega spillti það
ekki gleðinni sem ríkti á hátíðinni.
- mmj
EDDUGESTIR
VORU PRÚÐBÚNIR
OG ELEGANT
Glæsileg
Rithöfundurinn Gerð-
ur Kristný skartaði kjól frá
Diane von Furstenberg
en taskan er frá hinni ít-
ölsku Prödu. MYNDIR/VALLI
Hafnarfjarðartískan er appelsínugul
Pacas og Beggi tóku sig vel út með Þorgerði Katrínu. Þau þrjú eiga það sameig-
inlegt að búa öll í Hafnarfirði og því má velta fyrir sér hvort appelsínugulur sé nýi
bæjarliturinn?
Myndarlegt kærustupar
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona mætti með
kærastanum, Magnúsi Viðari Sigurðssyni,
framkvæmdastjóra Saga Film, á Edduna.
Ilmur klæddist kjól og húfu frá hönnuð-
inum Steinunni Sigurðardóttur en hún er
einmitt systir Magnúsar Viðars.
Allt í gríni
Baggalúturinn Karl Sigurðsson mætti
með Kastljósdrottningunni Elsu Maríu
Jakobsdóttur sem skartaði flottustu
sokkum norðan Alpafjalla.
Hljómsveitarskvísur
Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona er hér
ásamt Ragnhildi Gísladóttur og Birki
Kristinssyni. Þær stöllur eru saman í
gamansveitinni Heimilistónum en lögin
þeirra fá fólk til að brosa hringinn.
Smarta fólkið
Hin undurfagra
Nadia Banine
er hér með tvo
stæðilega menn,
Sigfús Sigurðs-
son og Arnar
Gauta Sverr-
isson.
Athafnamaðurinn Einar Bárðarson lætur ekki deigan síga þótt það kreppi
að. Í síðasta mánuði skipti hann á íbúð sinni fyrir draumahúsið við Erlutjörn í
Njarðvík. Þegar Einar er spurður að því hvort húsakaupin hafi ekki verið glap-
ræði á tímum sem þessum segir hann í gríni að hann sé að halda
hjólum atvinnulífsins gangandi. „Þessi kaup voru
búin að vera lengi í burðarliðnum, fólkið sem við
keyptum af tók íbúðina okkar upp í. Í fyrra seld-
um við hæð sem við áttum í Vesturbænum í
Reykjavík og keyptum okkur íbúð sem við ætl-
uðum bara að búa í í smá tíma. Núna vildum við
taka skrefið til fulls,“ segir Einar og bætir því við
að á Reykjanesinu fái fólk meira fyrir
peninginn og Njarðvík sé í raun
eins og úthverfi frá Reykjavík. „Við
skoðuðum mikið af húsum víðs
vegar hérna á svæðinu. Okkur
leist svo vel á þetta hús því hér
var allt tilbúið og við þurftum
ekki að fara út í neinar æfing-
ar. Það hentar vel þegar maður
er að passa upp á þann litla aur
sem maður á eftir í buddunni,“ segir
Einar, alsæll í Njarðvík.
Einar Bárðarson er fluttur í framtíðarhúsnæðið
Heldur hjólum
atvinnulífsins gangandi
Erlutjörn
Einar segir að í Njarðvík fái fólk
mikið fyrir peninginn og það sé
örstutt að fara í bæinn.