Fréttablaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 58
38 21. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Harðjaxlinn Heiðar Helguson var enn á Möltu, þar sem hann skoraði eina mark Íslands í vináttulandsleik í fyrradag, þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. Hann hefur ákveðið að ganga í raðir Coca Cola Championship-deildarfélagsins QPR á lánsamningi frá úrvalsdeildarfélaginu Bolton til loka janúar. Heiðar hefur til þessa ekki fengið mörg tækifæri til að spreyta sig undir stjórn Gary Megson hjá Bolton og hefur stöðugt verið orðaður við félög á borð við Charlton, Watford, Sheffield United, Nottingham Forest en QPR varð á endanum fyrir valinu. „Ég var hættur að taka eftir því að verið væri að orða mig við hin og þessi félög þar sem þetta var orðinn nánast daglegur viðburður. Þetta dæmi með QPR kom fyrst upp fyrir svona hálfum mánuði síðan en svo kom eitthvað bakslag í þetta fyrir viku eða svo og þá leit út fyrir að ekkert yrði af þessu. Þetta var svo allt í einu komið aftur á í gær og ég er bara ánægður með það. Fyrst stóð til að þeir ætluðu að kaupa mig en þar sem ég hef ekki spilað reglulega í nokkuð langan tíma þá vildu þeir til að byrja með fá mig á láni og svo kemur bara í ljós hvað verður í janúar. Það fer bara eftir því hvernig maður stendur sig,“ segir Heiðar. Heiðar viðurkennir að hann geti varla beðið eftir því að fara að spila reglulega á ný eftir að hafa þurft að verma tréverkið löngum stundum hjá Bolton. „Það þýðir ekki að sitja bara á afturendanum og horfa á aðra spila fótbolta hvern einasta laugardag. Það er ekkert varið í það. Ég er því gríðarlega spenntur yfir þessu tækifæri og vonast náttúrulega til þess að fá að spila sem mest. Ég hef spilað mikið í þessari deild með Watford og átti frábæran tíma þar og ég veit alveg út á hvað þetta gengur. Það verður ekkert sem kemur mér á óvart þar en deildin er reyndar alltaf að verða sterkari og sterkari,“ segir Heiðar sem verður að öllum líkindum í leikmannahópi QPR gegn sínum gömlu félögum í Watford á laugardaginn. HEIÐAR HELGUSON: Á LÁNI TIL QPR TIL LOKA JANÚAR MEÐ MÖGULEIKA UM AÐ GANGA Í RAÐIR FÉLAGSINS EFTIR ÞAÐ Það þýðir ekkert að sitja bara á afturendanum Subwaybikar karla í körfub. Snæfell-KR 73-79 (43-49) Stig Snæfells: Sigurður Á Þorvaldsson 26, Jón Ólafur Jónsson 16, Hlynur Bæringsson 14 (14 frák.), Slobodan Subasic 10, Atli Rafn Hreinsson 3, Magni Hafsteinsson 2, Gunnlaugur Smárason 2. Stig KR: Jakob Örn Sigurðarson 27, Jón Arnór Stefánsson 22 (5 frák. 4 stoðs.), Fannar Ólafsson 10 (9 frák.), Helgi Már Magnússon 6, Darri Hilm- arsson 4, Skarphéðinn Freyr Ingason 3, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 3, Baldur Ólafsson 2, Jason Dourisseau 2. FSu-Þór Ak. 55-63 (34-34) N1-deild karla í handbolta Valur-Stjarnan 28-22 (14-11) Mörk Vals (skot): Arnór Gunnarsson 8/5 (12/5), Elvar Friðriksson 7 (13), Sigurður Eggertsson 6 (7), Orri Freyr Gíslason 3 (3), Heimir Örn Árnason 2 (4), Ingvar Árnason 1 (1), Sigfús Sigfússon 1 (3), Gunnar Harðarson (1) Varin skot: Ólafur Gíslason 2 (7/1) 22%, Pálmar Pétursson 16/1 (31/1) 52% Hraðaupphlaup: 1 (Sigurður) Fiskuð víti: 5 (Sigurður 3, Elvar, Orri) Utan vallar: 10 mín Mörk Stjörnunnar (skot): Fannar Friðgeirsson 6/1 (11/2), Hermann Björnsson 5 (7), Guðmund- ur Guðmundsson 3 (9/1),Ragnar Helgason 2 (2), Kristján Kristjánsson 2 (3), Fannar Þorbjörnsson 1 (3), Jón Heiðar Gunnarsson 1 (1), Daníel Ein- arsson 1 (1), Gunnar Jóhannsson 1 (1), Jón Arnar Jónsson (2), Hrafn Ingvarsson (1) Varin skot : Styrmir Sigurðsson 9 (27/4) 33%, Árni Þorvarðarson 4 (14/1) 28% Hraðaupphlaup : 2 (Kristján, Jón Heiðar) Fiskuð víti : 3 (Fannar 3) Utan vallar : 2 mín Dómarar : Arnar Sigurjónsson og Svavar Ó. Pétursson. Voru sæmilegir ÚRSLIT HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason mun leggjast undir hnífinn næsta þriðjudag vegna þrálátra meiðsla í hné. Það er liðþófinn sem er að trufla Arnór en hann meiddist á sama liðþófa fyrir ári síðan. „Meiðslin uppgötvuðust eftir Makedóníuleikina í sumar en það var eðlilega ekkert gert út af Ólympíuleikunum. Ég hef nú ekkert verið sárþjáður en síðustu tvær vikur hafa verið erfiðar og ég verð því að láta laga þetta,“ sagði Arnór sem stefnir að því að vera kominn aftur í slaginn 7. febrúar er lið hans, FCK, mætir GOG í dönsku deildinni. Arnór verður því ekki með íslenska landsliðinu gegn Þjóðverjum í lok mánaðarins og getur heldur ekki tekið þátt í landsliðsverkefnunum í janúar. - hbg Meiðsli hrjá landsliðsmenn: Arnór á leið undir hnífinn ARNÓR Einn margra landsliðsmanna sem eru meiddir þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Gunnar Kristjánsson hefur ákveðið að ganga á ný í raðir uppeldisfélags síns, KR, eftir að verða laus allra mála hjá Vikingi þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár. Gunnar skrifaði undir samning við KR út leiktíðina árið 2010. Hinn tuttugu og eins árs gamli Gunnar hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og vann sér jafnframt sæti í landsliðshópi Eyjólfs Sverrissonar fyrir leikina gegn Liechtenstein og Svíþjóð í undankeppni EM 2008. - óþ Gunnar Kristjánsson: Kominn aftur í herbúðir KR KOMINN HEIM Gunnar Kristjánsson skrifaði undir samning við KR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Norskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöld að ellefu af fjórtán félögum í norsku úrvalsdeildinni hafi brotið reglur um skráningu á í það minnsta tuttugu leikmönnum í leyfiskerfi norska knattspyrnusambandsins á nýafstöðnu keppnistímabili. Noregsmeistarar Stabæk eru þar sagðir ekki hafa staðið sig við skráningu á fjórum leikmönnum og er Pálmi Rafn Pálmason einn þeirra. Annar Íslendingur er einnig á listanum en það er Birkir Már Sævarsson hjá Brann. Málið er allt hið skrýtnasta og verður að teljast ólíklegt að eitthvað verði frekar aðhafst í því þar sem svo mörg félög hafi ekki farið að settum reglum - óþ Leyfiskerfavandræði í Noregi: Birkir og Pálmi voru ólöglegir > ÍM í sundi hófst í gærkvöld Íslandsmeistaramótið í sundi í 25 metra laug hófst í Laugardalslaug í gærkvöld en mótið stendur fram á sunnudag. Þarna er samankomið flest af okkar besta sundfólki sem mun reyna við Íslandsmet sem og reyna að ná lágmörkum fyrir Evrópumeistara- mótið í 25 metra laug. Mótið hófst í gær á 800 metra skriðsundi kvenna þar sem Ólympíufarinn Sigrún Brá Sverrisdóttir úr Sunddeild Fjölnis fór með sigur úr býtum á tímanum 8 mínútur 58,57 sekúnd- ur. Tími Sigrúnar nægði þó ekki til þess að slá Íslandsmet Ingibjargar Arnardóttur úr Sundfélaginu Ægi, 8 mínútur 53,83 sekúndur, sem sett var árið 1992. KÖRFUBOLTI KR-ingar héldu sigur- göngu sinni áfram og eru komnir áfram í 16 liða úrslit Subway-bik- ars karla eftir að hafa slegið bik- armeistarana út á þeirra eigin heimavelli í Stykkishólmi í gær. KR vann 79-73 í spennandi leik þar sem KR-liðið var með frum- kvæðið stærsta hluta leiksins en Snæfellingar voru með í leiknum allt til enda. „Þetta var erfiður sigur því Snæfell er með gott lið. Þeir eru með stórt lið og það reyndist okkur erfitt í vörninni. Við hefðum vissu- lega getað spilað betur en þetta er bikarkeppni og þar er sigurinn það eina sem skiptir máli,“ sagði KR-ingurinn Jón Arnór Stefáns- son eftir leik. Hann og Jakob þurftu að taka af skarið í þessum leik og voru bestu menn liðsins. „Þetta var kannski svolítið ein- hæft um tíma en við reyndum bara að keyra á körfuna og vera leið- togar og stýra þessu liði til sig- urs,“ sagði Jón Arnór. Snæfellingar byrjuðu mjög vel og þetta leit ekkert alltof vel út fyrir KR í upphafi þegar þeir voru komnir fimm stigum undir, Jason Dourisseau var kominn útaf með þrjár villur og KR-bekkurinn komin með tæknivillu fyrir mót- mæli. Jón Ólafur Jónsson skoraði 9 fyrstu stig Hólmara sem voru í fínum gír. Jakob Örn Sigurðarson og Jón Arnór Stefánsson sýndu þá hversu þeir eru magnaðir og komu KR hreinlega aftur inn í leikinn, fyrst Jakob með 12 stigum á fyrstu sjö mínútum fyrsta leikhluta og svo Jón Arnór með því að skora 7 stig á einni mínútu. Það var hins vegar Darri sem kom KR yfir í lok fyrsta leikhluta með sóknarfrá- kasti og laglegri körfu um leið og leiktíminn rann út. KR var komið í gang, hafði tökin í öðrum leikhluta og leiddi með sex stigum í hálf- leik, 43-49. Snæfellingar voru ekki á því að gefast upp og það tók þá aðeins tvær og hálfa mínútu að jafna leik- inn í seinni hálfleik. KR-ingar voru áfram aðeins á undan en heimamenn gáfu ekki eftir og allur seinni hálfleikurinn var mjög spennandi. Jón Arnór Stefánsson var mjög áræðinn í lokaleikhlut- anum og kom hlutunum á hreyf- ingu í lokaleikhlutanum með því að fara sterkt á körfuna. Afmælis- barnið Fannar Ólafsson skoraði líka sex mikilvæg stig á þessum tíma og átti góðan leik. KR-ingar voru sterkari á loka- sprettinum og lönduðu sigrinum þrátt fyrir að leyfa sér að klikka á fjórum vítum á lokamínútunni. „Þetta spilaðist eins og við vild- um en við náðum bara ekki að klára þetta í lokin. Mér fannst ekk- ert að vörninni en Jón og Jakob voru að hitta þvílíkt vel í fyrri hálfleik og þeir eru erfiðir. Við áttum möguleika á að vinna leik- inn og við töluðum um það fyrir leikinn að þar vildum við vera,“ sagði Sigurður Þorvaldsson, annar þjálfara Snæfells og besti maður liðsins, með 26 stig. Sigurður sér framfarir hjá sínum mönnum. „Liðið er á réttri leið og það er allt annað að sjá sóknina hjá okkur eftir að hún var búin að vera mjög stirð framan af vetri. Við erum samt ekki alveg nógu klárir í að klára leikina í vetur og þá sérstak- lega hérna á heimavelli,“ sagði Sigurður að lokum. Hlynur Bær- ingsson var einnig sterkur að vanda en Slobodan Subasic, sem lék sinn fyrsta leik í gær, er ekki í leikæfingu og þarf tíma til þess að hjálpa liðinu meira en hann gerði í gær. ooj@frettabladid.is Jón og Jakob voru erfiðir KR-ingar slógu bikarmeistara Snæfells út úr bikarkeppninni í Stykkishólmi í gær og eru komnir áfram í sextán liða úrslit eftir 73-79 sigur í spennandi leik. HART BARIST Snæfellingar veittu KR-ingum harða keppni í Fjárhúsinu í Stykkishólmi í gærkvöld en bikarmeistararnir urðu að lokum að sætta sig við 73-79 tap og KR er því komið áfram í 16 liða úrslit. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Það var vel mætt í Vod- afonehöllina að Hlíðarenda í gær- kvöldi þegar Valur og Stjarnan mættust í N1-deild karla. Leikur- inn var jafn og spennandi í fyrri hálfleik en í þeim síðari stungu Valsmenn af og unnu að lokum öruggan sigur gegn fremur lán- lausum Stjörnumönnum. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn eins og áður segir. Stjörnu- menn byrjuðu betur og náðu tveggja marka forystu en þá lok- uðu Valsmenn vörninni, skoruðu sex mörk í röð og sóknarleikur Stjörnunnar virtist frekar ráða- laus. Valsmenn náðu þó ekki að hrista Stjörnuna alveg af sér og var munurinn þrjú mörk í hálf- leik 14-11. Í upphafi síðari hálfleiks virtist sem Stjörnumenn ætluðu að halda í við Valsmenn en þegar Pálmar Pétursson fór í gang í marki Vals- manna héldu þeim engin bönd og þeir náðu góðu forskoti sem þeir héldu allt til enda. Stjörnumenn voru í stökustu vandræðum í sínum sóknarleik allan leikinn og helst fyrrum Valsmaðurinn Fann ar Friðgeirsson sem ógnaði af viti.Mestur varð munurinn átta mörk en lokatölur voru 28-22. „Pálmar kom sterkur inn í markið í dag og vörnin var allt í lagi. Við höfum ekki verið að fá á okkur mjög mikið af mörkum sem er jákvætt, sérstaklega þar sem við eigum Sigfús Sigurðsson inni. Það vantaði kannski aðeins upp á hraðann hjá okkur, en það var margt jákvætt í dag,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, og bætti við: „Við eigum tvo erfiða leiki eftir í deildinni fram að jólum og svo einn bikarleik. Umgjörðin í dag var frábær, mig langar að hrósa stjórninni og Valsmönnum fyrir það. Við erum enn ósigraðir á heimavelli í vetur og það er auð- vitað gott mál,“ sagði Óskar Bjarni að lokum. - sjj Valsmenn áttu ekki í miklum vandræðum með Stjörnuna í N1-deild karla í handbolta í gærkvöld: Valsmenn komnir á toppinn í deildinni ÖFLUGUR Elvar Friðriksson átti fínan leik fyrir Valsmenn í gærkvöld og skoraði sjö mörk í 28-22 sigri heimamanna í Vodafonehöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.