Fréttablaðið - 21.11.2008, Page 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Ilmur af íslenskri kjötsúpu tók á móti mér þegar ég kom heim úr
skólanum í gær. Ég brosti út í
annað enda benti lyktin til þess að
atvinnulausi bankamaðurinn á
heimilinu hefði ekki setið auðum
höndum þann daginn. Sú var líka
raunin. Þvottur hafði verið þveg-
inn, gólfin þrifin og á eldhús-
bekknum stóðu heilir staflar af
nýbökuðu bakkelsi. Að ógleymdri
kjötsúpunni ljúffengu sem beið á
hellunni og bankastarfsmaðurinn
fyrrverandi hrærði í af mikilli
natni líkt og hann væri að sjóða
saman viðkvæmar afleiður í stórri
skuldasúpu.
VITANLEGA var það bara blekk-
ing að það væri alvöruvinna að
fylgjast með tölum á tölvuskjá.
Afdankaði bankamaðurinn hefur
enda blómstrað þessa daga sem
liðnir eru síðan bankakerfið skil-
aði honum. Viku eftir hrunið mikla
var hann kominn norður í land og
farinn að vinna þar raunverulega
vinnu eins og að mjólka kýr og
dreifa skít. Menn segja að banka-
kreppan kenni okkur að meta
framleiðslustörfin á ný og banka-
starfsmaðurinn fyrrverandi á
eftir að sjá að maður uppsker eins
og maður sáir. Túnin sem hann jós
skít á dögunum munu skila góðri
sprettu næsta sumar. Ólíkt þeirri
sviðnu jörð sem blasir við eftir
mykjudreifarana sem á ferð voru
í fjármálaheiminum.
ÞAÐ hefur svona rétt hvarflað að
mér hvort ekki væri réttast að
senda ríkisstjórnina, seðlabanka-
stjórnina og bankastjórana í sveit
líkt og venja var með ódæla drengi
hér áður fyrr. Þar myndi þetta
ágæta fólk læra fyrir hvað orðið
„búskapur“ í hugtakinu „þjóðar-
búskapur“ stendur og hvers vegna
við segjum að kálfurinn launi
sjaldnast ofeldið. Sveitadvölin
hafði að minnsta kosti afar góð
áhrif á bankamanninn á mínu
heimili sem er hinn rólegasti þessa
dagana og hefur boðið upp á hefð-
bundinn íslenskan heimilismat í
hvert mál síðan hann sneri aftur í
bæinn.
ÞEGAR kjötsúpan kláraðist í gær
og búið var að kveikja á sjónvarps-
fréttunum helltust skyndilega yfir
mig gríðarlegar áhyggjur. Er ekki
bókstaflega allt farið fjandans til
hér á Íslandi? Ég reyndi að ræða
um ástandið við bankamanninn
sem virtist ekki heyra í mér, lagði
bara frá sér kökublað Gestgjafans
sem hann hafði verið að blaða í og
tjáði mér að hann hygðist hefja
smákökubaksturinn strax eftir
helgi. Mín vegna má kreppan vara
aðeins lengur. Ég þarf að minnsta
kosti ekki að hafa áhyggjur af því
að svelta.
Tilraunaeldhúsið
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Frábær jólatilboð
á betri kaffivélum
Sker epli í báta og skilur frá kjarna.
VERÐ 1.690 VERÐ 11.300VERÐ 2.950
Keramík steytill til að mylja hráefni. Brauðkassi úr stáli með glerloki.
Hágæða
áhöld í
eldhúsið
Hljómtæki og
heimabíó í
miklu úrvali
Hágæða LCD sjónvörp í öllum stærðum
Gæði á góðu verði
FULLT VERÐ 159.900
89.990
HÁTÍÐARVERÐ
FULLT VERÐ 139.900
79.990
HÁTÍÐARVERÐ
Saeco Talea Touch
Sjálfvirk 1300 w kaffivél með Digital
snertiskjá og SBS kerfi, 2 kötlum úr
ryðfríu stáli, keramík kvörn, 250g
baunahólfi ofl. Tekur einnig malað kaffi.
Saeco Incanto Deluxe
Sjálfvirk 1200 w kaffivél með Digital
skjá og SBS kerfi, 2 kötlum úr ryðfríu
stáli, keramík kvörn, 300g baunahólfi
ofl. Tekur einnig malað kaffi.
Gjafir sem gagn er að
Öflug 600w safapressa.
VERÐ 15.900 VERÐ 15.900VERÐ 10.690
Sjálfvirk brauðbakstursvél fyrir
brauð-, botna-, kökur ofl. 8 bolla kaffikanna sem sýður vatnið.
VERÐ 39.990 VERÐ 32.600
KitchenAid 5KIT780EWH
Hágæða brauðrist með tímastilli.
VERÐ 49.400
KitchenAid 5KFPM770H
650 W matvinnsluvél með fjölnota blaði
úr stáli, deigblaði, eggjaþeytara ofl.
KitchenAid 5KSB52EWH
500w blandari með 5 hröðum,
stórum stálhníf og glerkönnu.
Gjöf til framtíðar
WilliamBounds
Hágæða pipar-
og saltkvarnir
- margar gerðir
MEÐ SNERTISKJÁ
Í dag er föstudagurinn
21. nóvember, 325. dagur ársins.
10.17 13.12 16.10
10.20 12.58 15.36