Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 8
8 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR Titill Griffill Office 1 Hagkaup Eymundsson Nettó Krónan Bónus Heimsmetabók Guinness 3D 4.342 4.921 4.990 5.200 4.053 3.749 3.748 Stórhættulega strákabókin 3.517 3.986 3.990 4.200 3.283 3.039 3.038 Ég, ef mig skyldi kalla 3.517 4.241 3.490 3.040 3.283 3.040 3.038 Myrká 3.592 4.241 3.990 4.300 3.493 2.993 2.992 Saga af forseta 5.242 5.941 5.990 6.000 4.893 4.690 4.543 Vetrarsól 3.742 4.241 3.690 4.200 3.493 3.393 3.392 Samtals 23.952 kr. 27.571 kr. 26.140 kr. 26.940 kr. 22.498 kr. 20.904 kr. 20.751 kr. Nú í jólabókaflóðinu vildi ég athuga verðlagið og skoðaði verð á sex bókatitlum hjá sjö söluaðilum. Bækur fást vitanlega á mun fleiri stöðum. Ég valdi bækurnar af handahófi, passaði bara að þær fengjust alls staðar, en búðirnar voru Griffill, Office 1 í Skeifunni, Hagkaup í Kringl- unni, Eymundsson í Kringlunni, Nettó í Mjódd, Kringlan á Höfða og Bónus í Kringlunni. Verðið er það sem ég hefði fengið bækurnar á á þeim tíma sem ég kom í búðirnar, sem var á þriðjudag og miðvikudag. Bókaverð breytist ört þessa dagana og bækur fara á tilboð, svo ég get ekki ábyrgst að verðið sé það sama í dag. Niðurstaðan er sú að bækurnar voru ódýrastar hjá Bónus. Krónan fylgir fast á eftir, er í mörgum tilfellum með bækurnar aðeins einni krónu dýrari en Bónus. Fulltrúar hefðbundinna bókabúða munu eflaust telja að hér sé verið að bera saman epli og appelsínur. Stórmarkaðir fleyti rjómann af bókaútgáfunni og bjóði aðeins upp á sirka 100 vinsælustu titlana. Bækur séu eins konar „skraut“ hjá þeim og framlegðinni sé náð með sölu á öðrum vörum. Bókabúðirnar sinni hins vegar bóksölu allan ársins hring og séu með breiðara úrval. Þetta ber vitanlega að hafa í huga, þótt sparnaður upp á mörg þúsund krónur sé vissulega lokkandi. Neytendur: verðkönnun Dr. Gunna Hvað kosta jólabækurnar? ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is 1 Hvað hefur Þorvaldur Gylfa- son prófessor skrifað margar greinar í Fréttablaðið? 2 Hvað kostar bókin Flóra Íslands eftir Eggert Pétursson? 3 Til hvaða franska félagsliðs hyggst knattspyrnumaðurinn Veigar Páll Gunnarsson fara? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 70 LÖGREGLUMÁL Jafet Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri VBS fjárfestingabanka, hefur verið ákærður fyrir brot gegn lögum um fjármálafyrirtæki. Honum er gefið að sök að hafa árið 2006 rofið trúnað við Geir Zoëga með því að láta Sigurði G. Guðjónssyni í té upptöku af sam- tali sínu við Geir. Félag í eigu Sigurður ætlaði á sínum tíma að kaupa hlut Geirs í Tryggingamiðstöðinni. Sigurður fékk Jafet til að annast milli- gönguna. Geir hætti hins vegar við söluna og sagði við Jafet í símtali að hann hefði ákveðið að selja öðrum hlutinn. Jafet hljóð- ritaði símtalið og leyfði Sigurði að heyra tíðindin. Sigurður taldi maðk í mysunni, með þessu hefði Geir skapað sér yfirtökuskyldu, og sendi Fjármálaeftirlitinu upp- tökuna til rannsóknar. Geir var óánægður með að Jafet skyldi láta hljóðupptökuna af hendi og kvartaði yfir því við Fjármálaeftirlitið. Fjármáleftir- litið tók að lokum ákvörðun um að kæra háttsemi Jafets til lög- reglu. Ákæra efnahagsbrota- deildar Ríkislögreglustjóra á hendur Jafeti var svo þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur gær. Jafet Ólafsson hafnar öllum ásökunum um trúnaðarbrot. Fjármálaeftirlitið hafði málið til meðferðar í hálft annað ár og Ríkislögreglustjóri í hálft til við- bótar. - sh Fjármálaeftirlitið hafði símtal Jafets Ólafssonar til rannsóknar í hálft annað ár: Jafet ákærður fyrir að rjúfa trúnað JAFET ÓLAFSSON Jafet var for- stjóri VBS fjár- festingabanka þegar málið kom upp. SAMGÖNGUR Bæjarráð Vestmanna- eyja bókar að ástandið í sam- göngumálum til og frá Eyjum sé með öllu óviðunandi. Hafi það versnað til allra muna seinustu mánuði. Flug á Bakka hefur lagst af með öllu og Herjólfur er nú orðin það gamall og slitinn að hann bilar nú orðið nánast vikulega og falla þá samgöngur við Vest- mannaeyjar niður með öllu, segir í bókun ráðsins. Bæjarráð samþykkti að óska sem fyrst eftir heimsókn frá Kristjáni L. Möller samgönguráð- herra til að ræða samgöngumál. - shá Samgöngur til Eyja: Ástandið með öllu óviðunandi EITTHVAÐ SEM ALLAR ELSKA SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR! Ný r Or ku lyk ill NÝ JU NG 5 kr. afsláttur þegar þú notar Orkulykilinn í fyrsta sinn! Alltaf 2 kr. afsláttur af dæluverði Bensínorkunnar sem kannanir sýna að er lægra en hjá öðrum! www.orkan.is SAMFÉLAGSMÁL Umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verða að hafa staðist próf í íslensku sam- kvæmt breytingum sem verða á reglum um íslenskan ríkisborg- ararétt um áramótin. Hætta er á að ólæsir innflytjendur eigi litla möguleika á að ná prófinu ef þeir þurfa á lestrar- og ritunarkunn- áttu að halda þegar þeir þreyta prófið. Námsmatsstofnun mun annast undirbúning og framkvæmd próf- anna og verða þau haldin minnst tvisvar á ári í Reykjavík. „Þetta er mjög opið og sett í hendurnar á prófdómara hversu miklar kröfur eru gerðar. Vonandi hanna þeir þann veruleika sem útlendingar búa við,“ segir Ingibjörg Hafstað, verkefnastjóri í Alþjóðahúsi. Hún bendir á að það sé miklu erfiðara og taki lengri tíma fyrir fólk sem talar tungumál frá Afríku og Asíu að læra íslensku. „Ef það á að vera einn mælikvarði fyrir alla hópa þá þarf prófið að vera ofboðs- lega auðvelt,“ segir hún. Minnst eitt þúsund innflytjend- ur eru ólæsir annað hvort á eigið móðurmál eða latneskt letur. Fá íslenskunámskeið hafa verið í boði fyrir ólæsa og víða úti á lands- byggðinni eru ekki nægilega mörg námskeið í boði. Þetta fólk telur Ingibjörg að eigi litla möguleika á að standast íslenskuprófið. Að sama skapi hljóti það að draga úr möguleikum þeirra á að fá íslensk- an ríkisborgararétt og jafnvel þótt ekki séu neinar hömlur á því hversu oft megi þreyta prófið. Í vefriti dómsmálaráðuneytis- ins er fjallað um nýju reglurnar. Þar segir að þó að umsækjandi hafi fengið búsetuleyfi og lokið íslenskunámi eða prófi þurfi hann samt að fara í íslenskupróf vegna umsóknar sinnar. Undanþágur geti þeir fengið sem hafi náð 65 ára aldri og átt lögheimili hér á landi síðustu sjö ár og þeir sem séu í skóla eða undir grunnskóla- aldri. Júlíus Björnsson, framkvæmda- stjóri Námsmatsstofnunar, segir að kröfurnar verði afskaplega hógværar. Útlendingar verði að geta lesið fyrirsagnir í blöðum, sagt til nafns og haldið uppi ein- földum samræðum. Ekkert verði prófað úr málfræði. „Kröfurnar eru afskaplega mildar og próftök- um í hag,“ segir hann. Júlíus segir að hugmyndin sé alls ekki sú að einhver hópur verði útilokaður. Þá eigi eftir að móta undanþágurnar nánar. ghs@frettabladid.is Íslenskupróf til að fá ríkisborgararétt Innflytjendur verða að hafa staðist íslenskupróf til að geta fengið íslenskan ríkisborgararétt. Hætta er á að ólæsir eigi litla möguleika á að ná prófinu. Kröfurnar „próftökum í hag“ segir framkvæmdastjóri Námsmatsstofnunar. KRÖFURNAR MILDAR „Kröfurnar eru afskaplega mildar og próftökum í hag,“ segir Júlíus K. Björnsson, framkvæmda- stjóri Námsmatsstofnunar. OFBOÐSLEGA AUÐVELT „Ef það á að vera einn mælikvarði fyrir alla hópa þá þarf prófið að vera ofboðslega auðvelt,“ segir Ingibjörg Hafstað, verkefnastjóri í Alþjóðahúsi. VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.