Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 37
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
HÁSKÓLABALL verður haldið á skemmtistaðnum
Nasa annað kvöld, laugardaginn 20. desember. Páll
Óskar Hjálmtýsson sér um að halda uppi stuðinu en
húsið opnar klukkan 23.00. Aldurstakmark er 20 ár.
Anna Björk Hilmarsdóttir er nem-
andi í 10. bekk í unglingadeild
Álftamýrarskóla og sinnir einnig
starfi formanns nemendaráðs.
Hún er liðtæk við piparköku-
skreytingar en hún lenti ásamt liði
sínu í fyrsta sæti skreytinga-
keppninnar í fyrra og varð í öðru
sæti í ár.
„Við fengum plöturnar tilbúnar
en áttum að skreyta húsin sjálf.
Við höfðum 80 mínútur til að
skreyta og máttum koma með
aukadót og liti. Við gerðum ind-
jánahús og komum með indján-
astrumpa að heiman og líka auka-
liti sem við blönduðum í glassúr,“
segir Anna Björk en auk hennar í
liðinu voru Katrín Steinunn Ant-
onsdóttir, Karen Ósk Óskarsdóttir
og Soffía Lára Snæbjörnsdóttir.
Allir nemendur í 8., 9. og 10. bekk
skólans tóku þátt í keppninni en
einu sinni í viku er öll unglinga-
deildin saman í verkhring. Skreyt-
ingakeppnin er hluti af þeirri dag-
skrá.
Miðað við árangur Önnu Bjark-
ar í þeim skreytingakeppnum sem
farið hafa fram mætti ætla að hún
sé bakarameistari af lífi og sál og
láti til sín taka við smákökubakst-
ur fyrir jólin.
„Nei, ég er ekki dugleg að baka.
Ég er bara dugleg að skreyta, en
ég baka stundum Betty Crocker.
Ef foreldrar mínir baka þá hjálpa
ég kannski til. Ég borða samt rosa-
lega mikið af smákökum fyrir
jólin.“
En ætlar Anna Björk sér stóra
hluti skreytingu piparkökuhúsa í
framtíðinni eftir glæstan árangur
í skólanum? „Já, ég stefni á að
taka þátt í heimskeppnum,“ segir
hún hlæjandi en þar sem þetta er
síðasti veturinn hennar í skólan-
um tekur hún ekki þátt á næsta
ári. „En það er aldrei að vita nema
ég sendi hús í keppnina í
Kringlunni.“ heida@frettabladid.is
Kökuhús Pocahontas
Álftamýrarskóli hefur staðið fyrir skreytingakeppni á piparkökuhúsum síðustu tvö ár. Nemendur í ungl-
ingadeild skólans taka þátt í liðakeppni um best skreytta húsið.
Anna Björk Hilmarsdóttir varð í öðru sæti með indíánahúsið ásamt Katrínu Steinunni Antonsdóttur, Karen Ósk Óskarsdóttur og
Soffíu Láru Snæbjörnsdóttur. Sigurvegarar í keppninni voru Ástrós Arnarsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Rakel Tara Þórarinsdóttir og Sylvía
Kristín Stefánsdóttir. Stúlkurnar eru allar í tíunda bekk Álftamýrarskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
H
ri
n
g
b
ro
t
Nýársveisla
1. janúar 2009
Þrettándakvöld í Perlunni, 6. janúar 2009
Fjölskyldustemmning og flugeldar!
Gjafabréf
Perlunnar
Gefðu ein
staka kvö
ldstund í
jólagjöf!
Þórir Baldurs og Þrjár raddir spila kvöldverðartónlist
& hljómsveit Þóris Baldurs spilar fyrir dansi.
9.990 kr.
Verð með fjórum glösum af víni 14.500 kr.
Spariklæðnaður — Húsið opnar kl. 19:00
Pantið borð í síma 562 0200 eða með tölvupósti perlan@perlan.is.
Steikt hörpuskel
með blönduðum skógarsveppum og blómkálsfroðu
Humarsúpa
Rauðvínssoðin pera
með foie gras ís og portvínsgljáa
Kryddlegið hreindýrafille
með steiktum kantarellum,
seljurótarmauki og „pomme Anna“ kartöflum
Logandi „créme brûlée“
með súkkulaðiís
Kaffi og heimalagað konfekt