Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 72
48 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Nýræktarstyrkirnir voru
áður tíðkaðir í landbúnaði
og veittir þeim bændum
sem bættu við tún sín. Í
gær voru veittir styrkir úr
nýjum nýræktarsjóði sem
stofnað hefur verið til af
hálfu ríkisins: blekbændur
fá nú styrki til nýræktar.
Í ágúst síðastliðnum auglýsti Bók-
menntasjóður í fyrsta skipti eftir
umsóknum um Nýræktarstyrk
sem ætlað er styðja við útgáfu á
nýjum íslenskum skáldverkum
sem hafa takmarkaða eða litla
tekjuvon en hafa ótvírætt menn-
ingarlegt gildi. Undir þetta svið
falla skáldverk í víðri merkingu
þess orðs til dæmis sögur, ljóð,
barnaefni, leikrit, eða eitthvað allt
annað, og leitað var eftir breidd og
fjölbreytni í umsóknum. Að þessu
sinni eru Nýræktarstyrkir fimm
talsins, að upphæð tvö hundruð
þúsund krónur hver. Lesendum
kann að þykja sú upphæð lág en
hún hefur víða úrslitaáhrif á það
hvort ráðist er í útgáfu nýsmíða
sem einyrkjar standa gjarnan að.
Það var menntamálaráðherra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
sem tilkynnti hverjir hlutu
Nýræktarstyrkinn að þessu sinni.
Athöfnin fór fram í Nýlistasafn-
inu. Að þessu sinni eru Nýræktar-
styrkir fimm talsins, að upphæð
tvö hundruð þúsund krónur hver.
Alls bárust níu umsóknir um
styrkina fimm. Styrkina að þessu
sinni hljóta þrjár ljóðabækur, ein
fjórföld „Bútgáfa“ (sería smærri
bóka – þrjár (ör)ljóðabækur og
eitt safn feminískra smágreina og
stuttra prósa skreytt klippimynd-
um) og eitt smásagnasafn.
Á næsta ári er hugmyndin að
úthluta Nýræktarstyrkjum að
vori, líklegast í viku bókarinnar í
lok apríl. Einnig er hugsanlegt að
styrkurinn verði með öðru sniði
en nú við fyrstu úthlutun, þegar
afhentir verða fimm 200 þúsund
króna styrkir til útgáfu á nýjum
íslenskum skáldskap. Bókmennta-
sjóður vonast til að geta haldið
áfram að styðja við fjölbreytta
nýrækt í íslenskum skáldskap og
bókmenntum á næstu árum.
Þeir sem hljóta styrkinn að
þessu sinni eru þessi:
Bútgáfur Nýhils (Sería smærri
bóka. Þrjár (ör)ljóðabækur og eitt
safn feminískra smágreina og
stuttra prósa skreytt klippi-
myndum).
Ritstjóri: Kristín Svava Tómas-
dóttir. Höfundar: Hildur Lilli-
endahl Viggósdóttir, Bryndís
Björgvinsdóttir, Ingólfur Gísla-
son, Dr. Usli (Kristín Svava Tóm-
asdóttir & Jón Örn Loðmfjörð).
Útgefand: Nýhil.
Með villidýrum (ljóðabók) –
komin út. Höfundur : Kári Páll
Óskarsson. Útgefandi: Nýhil.
Refur (ljóðabók) – komin út.
Höfundur: Emil Hjörvar Peder-
sen. Útgefandi: Nykur.
Á meðan (ljóðabók). Höfundur:
Ragnar Ísleifur Bragason. Útgef-
andi: Ragnar Ísleifur Bragason.
Hálmstrá (smásögur) – komin
út. Höfundur: Magnús Sigurðsson.
Magnús hlaut Tómasarverðlaunin
2008 fyrir ljóðabók sína Fiðrildi,
mynta og spörfuglar Lesbíu fyrr á
þessum vetri. Útgefandi: Upp-
heimar.
Var að vonum fögnuður í gær á
gólfinu í Nýló og var ekki annað að
sjá en menntamálaráðherrann
væri glaður eftir að hafa komið
þessum útgáfum og höfundunum
til aðstoðar í útgáfunni.
pbb@frettabladid.is
Nýræktin styrkt í gær
BÓKMENNTIR Frá veitingu nýræktarstyrkja Bókmenntasjóðs í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Starfsfólk í bókaverslunum hefur sín á
milli óformleg samtök sem hafa um nokk-
urra áraskeið veitt viðurkenningar um
þetta leyti árs höfundum í nokkrum flokk-
um. Tilkynnt var um tvo þeirra í Kastljósi
ríkissjónvarpsins á miðvikudag: bestu
skáldsöguna, Ofsa, eftir Einar Kárason, og
bestu barnasöguna, Garðinn, eftir Gerði
Kristnýju. Besta þýdda barnabókin var
valin Hver er flottastur eftir Mario Ramos,
besta handbókin/fræðibókin var valin
Dýrin eftir David Burnie, besta þýdda
skáldsagan var að áliti bóksölufólks Bóka-
þjófurinn eftir Markus Zusak. Þá er ótalinn
flokkur ljóðabóka og ævisögur, en Páll
Ólafsson vann í ljóðabókaflokki fyrir safn
kvæða, Ég skal kveða um þig alla daga, og
Sigmundur Ernir Rúnarsson á bestu ævi-
sögu á markaði fyrir þessi jól: Magneu.
- pbb
Bóksalar veita viðurkenningar
BÓKMENNTIR Besta ljóðabókin er eftir nítjándu
aldar mann, Pál Ólafsson.
Tvær ungar og bráðefnilegar tónlistarkon-
ur, Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari og
Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari,
skapa franska stemningu, með franskri
eðaltónlist, í Iðnó í kvöld. Á efnisskránni
eru verk eftir Gaubert, Debussy og Varese.
Melkorka hefur lokið prófum við tónlistarháskóla í
Haag, Amsterdam og London, en lærði síðast í
París hjá Patrick Gallois og lauk hjá honum
Premier Prix og Prix de Exellance, hvorutveggja
með heiðursverðlaunum dómnefndar. Hún mun
leika flautukonsert Atla Heimis Sveinssonar á
tónleikum með SÍ í mars 2009 og verður með
tónleika í Tíbrá í Salnum í apríl.
Guðrún Dalía hefur lært píanóleik í Reykjavík og
í Stuttgart í Þýskalandi, en stundar nú frekara nám
hjá Thérése Dussaut í París. Í nóvember 2006 hlaut
hún fyrstu verðlaun í píanókeppni EPTA í Salnum,
Kópavogi.
Á undanförnum árum hefur Guðrún Dalía leikið
á fjölmörgum tónleikum á Íslandi og í Þýskalandi,
bæði sem einleikari og meðleikari.
Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20.30. - pbb
TVÆR FLINKAR Í IÐNÓ
TÓNLIST Stöllurnar við æfingar í Iðnó í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> Ekki missa af
Síðustu helgi sýningarinn-
ar Jólakjólar. Á sýningunni
eru fjórtán rauðir jólakjólar
sem jafnmargir íslenskir
hönnuðir létu sauma sér-
staklega fyrir sýninguna,
einnig málverk af konum
í eigu Listasafns ASÍ eftir
nokkra listamenn t.d. Júlí-
önu Sveinsdóttur, Nínu
Tryggvadóttur og Jón Engil-
berts. Sýningarstjóri er
Steinunn Helgadóttir. Síð-
asti sýningardagur er 21.
desember.
kl. 21
Í kvöld er bossanova í Fríkirkjunni
við Tjörnina. Brasilíubúinn Ife
Tolentino leikur ásamt íslenskri
stoðsveit sem skipa: Ágústa Eva
Erlendsdóttir söngkona, Ómar
Guðjónsson gítarleikari, Davíð Þór
Jónsson píanóleikari, Mattías M. D.
Hemstock leikur á trommur og
Óskar Guðjónsson leikur á saxófón.
Menn munu dilla sér á Fríkirkju-
bekkjunum í kvöld í tvöföldum bossa-
nova-takti.
Sýningar Íslenska dansflokksins á
Festival Les Boréales í Frakklandi
nú í lok nóvember fengu góðar við-
tökur hjá áhorfendum og frábæra
dóma gagnrýnenda. Dansflokkur-
inn sýndi alls fimm verk á tveimur
kvöldum og var svo til fullt hús
bæði sýningarkvöldin.
Fyrra kvöldið, þann 20. nóvem-
ber, var hið verðlaunaða verk Kvart
eftir Jo Strömgren sýnt og einnig
Happy New Year eftir Rui Horta.
Morgunblaðið Ouest-France hafði
meðal annars eftirfarandi um fyrri
sýninguna að segja: „kraftmikil
verk full af hráum tilfinningum og
kímni … samstilling dansaranna
var frábær.“
Seinna sýningarkvöldið, 22. nóv-
ember, tók Festival Les Boréales
upp hugmynd ÍD um „fjölskyldu-
sýningu“ og sett var saman dagskrá
með verkum sem höfða sérstaklega
til ungs fólks. Verkin voru Critic´s
Choice eftir Peter Anderson,
Maðurinn er alltaf einn eftir Ólöfu
Ingólfsdóttur og Endastöð eftir
Alexander Ekman.
Gagnrýnandi frá vefsíðunni
evene.fr gaf seinni sýningunni fjór-
ar stjörnur af fimm mögulegum.
Stór hluti af starfsemi Dans-
flokksins er nú sýningarhald í
öðrum löndum og er flokkurinn eft-
irsóttur til sýninga víða um heim.
Hluti af rekstrarfé flokksins er
fenginn með sýningarferðalögum.
- pbb
Lof um dansflokkinn
LEIKLIST Íslenski dansflokkurinn fer víða
um lönd og fær víða hrós: Steve Lorenz
í Ambra sem flutt var í Bergen í vor
MYND ÍD
Xerodent 28,6 mg/0,25 mg munnsogstöflur.
Notkunarsvið og skömmtun: Hver tafla inniheldur eplasýru 28,6 mg og natríumflúoríð samsvarandi 0,25
mg af flúor. Xerodent er lyf til varnar tannskemmdum notað við meðhöndlun einkenna vegna munnþurrks
og fyrirbyggjandi við tannskemmdum hjá sjúklingum með munnþurrk.
Skammtastærðir fyrir fullorðna: 1 tafla eftir þörfum, venjulega 6 sinnum á dag. Við mikinn munnþurrk má
auka skammtinn í 12 töflur á dag í takmarkaðan tíma. Töfluna á að láta bráðna hægt í munni. Dreifa skal
skammtinum jafnt yfir daginn.
Varúðarreglur: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna ættu ekki að nota
Xerodent. Við meðhöndlun með Xerodent skal forðast að nota önnur lyf sem innihalda flúor. Xerodent má
ekki nota á landsvæðum þar sem flúorinnihald drykkjarvatns er hátt. Vegna þess að Xerodent inniheldur
xylitól getur það haft hægðalosandi verkun.
Meðganga/brjóstagjöf: Engin þekkt áhætta við notkun á meðgöngu. Natríumflúoríð skilst ekki út í
brjóstamjólk. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. 29. nóvember 2007.
Þreföld virkni Xerodents
Eplasýra – örvar munnvatnsframleiðslu
Flúor – ver tennurnar gegn skemmdum
Xylitol – hemur bakteríuvöxt í munni
Xerodent
Við munnþurrki