Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 74
19. desember 2008 FÖSTUDAGUR
Úthlutað hefur verið úr sjóðnum
Gjöf Jóns Sigurðssonar. Að þessu
sinni voru veittar tólf viðurkenn-
ingar fyrir samtals 6,5 milljónir
króna.
Hæsti styrkurinn var 700.000
krónur sem fór til Jóns M. Ásgeirs-
sonar og Þórðar Inga Guðjónssonar
fyrir verkið Frá Sýrlandi til Íslands.
Arfur Tómasar postula. Tómasar-
guðspjall, Tómasarkver, Tómas
saga postula. Aðrir styrkir voru á
bilinu 200 til
600.000 krónur.
Meðal þeirra
sem fengu 600.000 voru Sverrir
Tómasson o.fl. fyrir útgáfu á Heila-
gramanna sögum; Margrét Egg-
ertsdóttir fyrir Barokkmeistarann.
Listir og lærdómur í verkum Hall-
gríms Péturssonar sem kom út í
fyrra; Lára Magnúsardóttir fyrir
rit sitt Bannfæring og kirkjuvald á
Íslandi 1275-1550. Lög og rannsókn-
ar-forsendur sem hún hlaut dokt-
orsnafnbót fyrir; Hrefna Róberts-
dóttir fyrir Wool and Society.
Manufacturing Policy, Economic
Thought and Local Production in
18th-century Iceland; Ragnheiður
Kristjánsdóttir: Nýtt fólk. Þjóðerni
og íslensk verkalýðsstjórnmál 1901-
1944; Friðrik G. Olgeirsson fyrir
tvö verk sín á liðnum misserum:
Snert hörpu mína. Ævisaga Davíðs
Stefánssonar frá Fagraskógi og
Sáðmenn sandanna. Saga land-
græðslu á Íslandi 1907-2007; Guðni
Th. Jóhannesson fyrir Óvinir ríkis-
ins. Ógnir og innra öryggi í kalda
stríðinu á Íslandi; Jörgen Pind fyrir
Frá sál til sálar: Ævi og verk Guð-
mundar Finnbogasonar sálfræð-
ings.
Sjóðurinn var stofnaður sam-
kvæmt erfðaskrá Ingibjargar Ein-
arsdóttur, ekkju Jóns Sigurðssonar,
12. desember 1879. Sjóðurinn veitti
um skeið allmörgum fræði- og vís-
indamönnum viðurkenningu fyrir
vel samin vísindarit og styrkti
útgáfu þeirra. Á úthlutun má ráða
að menn eru enn á þeirri línu: Flest
verkanna eru komin út og fela í sér
frumrannsóknir á sviði hugvísinda.
Árið 1974 ákvað Alþingi að efla
sjóðinn með ákveðnu framlagi. Skal
árleg fjárveiting til sjóðsins eigi
nema lægri upphæð en sem svarar
árslaunum prófessors við Háskóla
Íslands.
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sig-
urðssonar er kosin af Alþingi. Í
henni eiga nú sæti Árelía Eydís
Guðmundsdóttir, Jón G. Friðjóns-
son og Ragnheiður Sigurjónsdóttir.
- pbb
Gjöf Jóns og Ingibjargar
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 19. desember 2008
➜ Tónleikar
17.00 Kimi Records og fatabúðin
Vintage standa fyrir tónleikum í verslun-
inni á Laugavegi 25 alla daga fram að
jólum. FM Belfast spilar í dag.
20.30 Bubbi Morthens verður með
tónleika á 800 bar við Eyrarveg á Sel-
fossi. Á efnisskránni verður nýtt efni í
bland við eldra. Húsið opnar kl. 20.
21.00 Ife Tolentino heldur brasilíska
hátíðartónleika Fríkirkjunni. Auk hans
koma fram Ágústa Eva Erlendsdóttir,
Ómar Guðjónsson, Davíð Þór Jónsson,
Mattías M. D. Hemstock og Óskar Guð-
jónsson.
21.00 Geir Harðarson og hljómsveit og
Blússveit Þollýar leika á Café Rót í Hafn-
arstræti. Aðgangur ókeypis.
22.20 Snatan: Ultra verður með tón-
leika á Bar 11 við Laugaveg. Enginn
aðgangseyrir
23.00 Tónleikar verða í Langholtskirkju
við Sólheima þar sem kór kirkjunnar
ásamt Gradualekórnum flytja jólalög.
Einsöngvarar með kórnum verða Eivör
Pálsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
Bragi Bergþórsson.
23.00 Hjómsveitin Menn ársins spila á
Dillon Rokkbar við Laugaveg.
00.00 Sálin spilar á Players við Bæjar-
lind í Kópavoginum í kvöld.
00.00 Janis Joplin Tribute Show með
Bryndísi Ásmundsdóttur verður á Dillan
Sportbar við Trönuhraun í Hafnarfirði.
Húsið opnar kl. 23.
➜ Klúbbakvöld
00.00 President Bongo úr GusGus og
Casanova spila á Dátanum við Geisla-
götu á Akureyri. Húsið opnar kl. 23.00
➜ Opnanir
21.00 Lost Horse Gallerý, Skólastræti
1, opnar á ný eftir breytingar. Þar opnar
samsýning eftirfarandi listamanna:
Davíð Örn Halldórsson, Guðmundur
Thoroddsen, Harpa Dögg Kjartansdóttir
og Alexander Zaklynsky.
➜ Uppákomur
11.00 Jólasveinarnir koma við á Þjóð-
minjasafninu við Suðurgötu, alla daga
fram að jólum. Í dag kemur Skyrgámur
til byggða. Aðgangur ókeypis.
12.34 Lifandi jóladagatal í Norræna
húsinu við Sturlugötu. Í dag verður nítj-
ándi glugginn opnaður. Í gær var hljóm-
sveitin Reykjavík! í glugganum. Hver
skyldi vera þar í dag?
➜ Dansleikur
23.00 Jólaball Háskólans verður á
Nasa við Austurvöll þar sem fram koma
FM Belfast, Who Knew og Gullfoss og
Geysir. Húsið opnar kl. 23.
➜ Tónlist
12.15 Sólveig Samúelsdóttir, messó-
sópran, Sigurbjörn Bernharðsson fiðlu-
leikari, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari
og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari
flytja tónlist eftir Johannes Brahms. Von,
hús SÁÁ, Efstaleiti 7.
20.30 Melkorka Ólafsdóttir flautuleik-
ari og Guðrún Dalía Salómonsdóttir
píanóleikari flytja tónlist eftir Gaubert,
Debussy og Varese í Iðnó við Vonar-
stræti.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Saga um stelpu, eftir Kristínu R.
Thorlacius, stendur ákaflega vel
undir nafni. Hér er á ferðinni
lítil saga um stelpu í sveit norður
á Silfrastöðum í „gamla daga“
þegar börn hjálpuðu til í sveit-
inni við að reka kýrnar í haga.
Þrátt fyrir ábyrgðarstöðu er
stelpan ekki eldri en svo að hund-
ur nágrannanna á Bólu er henni
töluverð ógn við að sinna starfi
sínu. Raunveruleiki ógnarinnar
af hundinum er áþreifanlegur og
úrvinnslan góð.
Erla Sigurðardóttir mynd-
skreytir bókina afar fallega og í
góðu samhengi við textann.
Myndirnar og textinn spila jafn
stór hlutverk á hverri opnu og
hvorugt yfirgnæfir hitt. Letrið
er stórt þannig að krakkar sem
eru farnir að stautlesa ættu að
ráða við að lesa bókina sjálfir.
Þeir sem eru farnir að lesa en
ráða þó ekki við mikinn texta
hafa ekki úr mörgum bókum að
velja, sem ekki eru beinlínis
merktar sem lestrarbækur,
myndabækur þar sem textinn er
hvorki óyfirstíganlega mikill eða
kjánalega lítill.
Þrátt fyrir gríðarlegan fjölda
myndabóka sem út koma ár hvert
er furðanlega lítið af bókum þar
sem samhengi milli texta og
mynda er jafn gott og í Sögu um
stelpu. Þær Kristín og Erla hafa
mikla reynslu af barnabókaheim-
inum, Erla sem myndskreytir og
Kristín bæði sem þýðandi og höf-
undur. Þessi reynsla skilar sér
með skemmtilegri sögu um lítið
atvik, sem mögulega henti höf-
undinn sjálfan. Saga um stelpu
er bók fyrir krakka sem vilja
lesa sjálfir eða heyra spennandi
sögu sem er bara mátulega
ógnvænleg. Hildur Heimisdóttir
Saga um stelpu fyrir krakka
BÓKMENNTIR
Saga um stelpu
Kristín R. Thorlacius
Erla Sigurðardóttir
★★★★
Gott samhengi texta
og mynda
VÍSINDI Arfur
Jóns Sigurðsson-
ar veitir árlega
styrki til hugvís-
inda
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2008
Guðni Elísson fjallar um
Sigurjónsmálið í DV
Rætt við Sölva Björn
Sigurðsson sem þýddi Árstíð í
helvíti eftir Rimbaud
Njóttu laugardagsins til fulls.
Tryggðu þér áskrift á mbl.is/
askrift eða í síma 569 1122
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. (LSS), kt. 580407-1100, hefur birt lýsingu vegna töku
skuldabréfa félagsins til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf.
Eftirfarandi skuldabréfafl okkur hefur verið gefi nn út:
Skuldabréfafl okkur að fjárhæð kr. 5.000.000.000 var gefi nn út þann 26. mars 2008. Nafnverðseiningar
eru kr. 10.000.000 og því er fjöldi bréfanna 500. Auðkenni fl okksins er LSS 08 1 og verða bréfi n tekin
til viðskipta þann 19. desember 2008. Skuldabréfi n eru verðtryggð og er verðtryggingin bundin vísitölu
neysluverðs (VNV). Greitt er af bréfunum með jöfnum afborgunum á sex mánaða fresti ásamt föstum
ársvöxtum 5,3%. Fyrsti vaxtagjalddagi var 26. september 2008 en vextir reiknast frá og með útgáfudegi
skuldabréfanna þann 26. mars 2008. Lokagjalddagi skuldabréfanna er 26. mars 2034. ISIN númer bré-
fanna er IS0000017622.
Lýsinguna má nálgast á prentuðu formi hjá útgefanda, Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105
Reykjavík og á vefsetri útgefanda, http://www.lanasjodur.is, í 12 mánuði frá dagsetningu tilkynningar þes-
sarar.
Umsjónaraðili vegna töku bréfanna til viðskipta er Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
19. desember 2008.