Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 46
6 föstudagur 19. desember
núna
✽ horfðu á kvöldvaktina...
Getur þú lýst þínum stíl? Ég
er klárlega allar týpurnar í Spice
Girls. Undanfarið hef ég tekið
Þóru vinkonu mína mér til fyr-
irmyndar og er farin að nota
sparifötin meira hversdags. Ég á
svo endalaust af sparifötum sem
eru alltaf að bíða eftir jólunum
og liggja síðan óhreyfð allt árið.
Hvað dreymir þig um að
eignast núna? Góða skó. Mig
vantar hælalaus stígvél og svo
ég er að reyna að mana mig upp
í flotta hælaskó. Mér finnst ég
alltaf vera eins og risi en mig
dreymir um að vera á monster-
hælum, strákunum í vinnunni til
mikillar skelfingar.
Hvað keyptir þú þér síðast?
E-Label pallíettuleggings og kjól
með leðurbelti frá E-Label. Kjóll-
inn er stundum notaður sem sítt
vesti en hann er opinn að fram-
an. Ég er mjög hrifin af fötum
sem er hægt að breyta og nota á
mismunandi hátt.
Uppáhaldslitapalletta? Ég
elska liti en núna er ég voða
mikið í brúnu og fjólubláu. Mér
finnst litirnir hressa myrkrið og
veturinn við.
Uppáhaldsverslun? E-Label
er alltaf með endalaust flott föt,
Gyllti kötturinn og Rokk og rósir.
Hönnunarbúðirnar eru líka æðis-
legar eins og Kron Kron, Trilogia,
Aftur og það er missir af Libor-
ious. Það er gaman að eignast
föt sem eru ekki fjöldaframleidd
úr lélegum efnum.
Uppáhaldshönnuður? Harpa
Einars, hún er algjörlega æðis-
leg.
Eru einhver tískuslys í fata-
skápnum þínum? Eru ekki
tískuslys í öllum skápum? Ég er
örugglega búin að losa mig við
alla magaboli.
Í hvað myndir þú aldrei fara?
Mér finnst stórir axlapúðar ekki
mjög klæðilegir (enn þá). Aldrei
að segja aldrei.
Af hvaða líkamsparti ertu
stoltust og hvernig undir-
strikar þú hann í klæðaburði?
Ég var mjög stolt af bumbunni
þegar ég var ólétt og undirstrik-
aði hana með öllum ráðum. Ann-
ars spái ég ekki mikið í neinum
sérstökum líkamshluta. Maður
fer bara í það sem manni finnst
flott og þægilegt, örugglega
oftar það sem er flott heldur en
þægilegt.
Sóley Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni
ER ALLAR
TÝPURNAR Í
SPICE GIRLS
FATAMARKAÐUR Á KAFFIBARNUM Í dag halda nem-
endur í fatahönnun við Listaháskóla Íslands fatamarkað á Kaffibarn-
um milli klukkan 15 og 21. Allur ágóðinn rennur í ferðasjóð nem-
endanna ellefu, sem fara til Parísar í febrúar og vinna fyrir hönnuði á
heimsmælikvarða fyrir tískuvikuna þar í borg. Mættu og nældu þér í
flotta flík fyrir jólin.
3
1
1. Gervileðurjakki frá Gyllta kettinum.
2.. Gylltur og blár kjóll frá Rokki og rósum.
3. Svartur blúndukjóll frá Gyllta kettinum og glansandi leggings
frá Júníform með gati fyrir hælinn og tærnar. Skórnir eru frá All
Saints.
4.. Rauðir rúskinns hælaskór úr Gyllta kettinum.
5.. Brúnleitur kjóll eftir Hörpu Einars. „Þessi lítur út eins og
sparikjóll en er alveg hægt að nota hversdags líka.“
6.. Svört peysuslá frá E-Label og hvítur blúndukjóll frá Gyllta
kettinum. Pallíettuleggings frá E-Label en pallíetturnar eru
handsaumaðar í og frábærar bæði spari og hversdags. „Svo
eru það gömlu hermannaklossarnir með stáltánni en þá keypti
ég þegar ég var 14 ára. Ég fann þá inni í
geymslu hjá mömmu fyrir tveimur árum
við mikinn fögnuð.“
4
2
5
Ofnæmisprófað. 100% ilmefnafrítt.
Hlífðu andlitinu
við einkennum öldrunar með frábæru rakakremi
Á rannsóknarstofum Clinique hefur verið leitt í ljós að streita getur haft ámóta skaðleg áhrif á húðina og of
mikil sólböð og loftmengun.* En nú geturðu verið áhyggjulaus.
Nýja Superdefense rakakremið eflir ónæmisvarnir húðarinnar og hjálpar henni að vinna á móti viðbrögðum
sem koma fram í línum, hrukkum og ójöfnum lit.
Þannig geturðu litið betur út mun lengur en ella.
* Sjá Journal of Experimental Dermatology 2007 EXD-07-0174, R1.
Niðurstöður þessar eru hluti af rannsókn sem enn stendur yfir á vegum rannsóknarstofa Clinique og læknaskóla í fremstu röð á áhrifum streitu á húð.
© Clinique Laboratories, LLC