Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 16
16 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR DÚÐAÐUR SNJÓKRAKKI Hún er ekki nema eins árs, hún Ramona Hanson, sem lék sér í snjónum á miðvikudag í bænum Turnwater í Washingtonríki í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi, í Héraðsdómi Reykjavíkur, fyrir brot gegn valdstjórninni og ítrekuð umferðarlagabrot. Hann var fjórum sinnum stöðvaður við akstur án ökurétt- inda. Í eitt skiptið var hann undir áhrifum áfengis og var honum vísað inn í lögreglubíl. Þar réðst hann á lögreglukonu, tók hana hálstaki og reif í hár hennar. Maðurinn hafði áður hlotið skilorðsbundinn dóm vegna líkamsárásar. Hann rauf skilorðið og var málið því tekið upp aftur og dæmt í því í dag. - jss Sex mánaða fangelsi: Réðst á lög- reglukonu NOREGUR Frystigeymslur norður eftir allri strönd Noregs fyllast af þorski og öðrum fisktegundum sem enginn vill kaupa. Skortur á lánsfé erlendis og hátt fiskverð gerir að verkum að fiskurinn selst ekki, að sögn norska ríkisútvarps- ins NRK. Fiskurinn er því ekki sendur á uppboðsmarkaðina held- ur geymdur í frystigeymslunum. „Það er allt stopp á markaðnum. Ef við fáum ekki hreyfingu á markaði innan tveggja til þriggja vikna óttast ég um páskasöluna til Brasilíu. Ef staðan batnar ekki verða sjómenn að setja fiskinn í geymslur og láta bátana liggja við bryggju. Þetta hefur alvarleg áhrif á greinina,“ segir Knut Haagensen, markaðsstjóri hjá Jan- gaard útflutningsfyrirtækinu í Álasundi. - ghs Fjármálakreppan hefur áhrif víða um heim: Norskur þorskur selst ekki ALLT STOPP „Það er allt stopp á mark- aðnum,“ segir markaðsstjóri um söluna á þorski. BRETLAND, AP Jacqui Smith, innanríkisráðherra Bretlands, segir að sveitarstjórnir í landinu verði að hætta að nota heimildir í hryðjuverkalögum til að berjast gegn smáglæpum. Á tímabilinu mars 2007 til mars 2008 fengu stjórnvöld, sem ekki tengjast lögreglustörfum, 9.535 sinnum leyfi til að beita leynilegu eftirliti, meðal annars til að koma upp um fólk sem hendir rusli á víðavangi eða hundaeigendur sem þrífa ekki upp saur eftir hunda sína.Smith segir að nú verði gert átak til að draga úr þessari óhóflegu beitingu laganna. - gb Bresk stjórnvöld: Hryðjuverkalög notuð í óhófi MENNTUN Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst bregðast við efnahagsástandinu með því að bjóða nýja þverfaglega námsleið. Námið, sem gengur undir nafn- inu Prisma, verður kennt í sam- starfi við Reykjavíkurakademí- una. Það er nýstárlegt fyrir þær sakir að inn í það fléttast fjölmarg- ar námsgreinar. Burðargreinarnar eru listfræði og heimspeki. Inn í námið blandast svo markaðsfræði, menningarstjórnun, frumkvöðla- fræði, skapandi skrif, myndmáls- saga, tónlistarsaga og -miðlun og svo mætti lengi telja. Yfir fimmtíu sérfræðingar víðs vegar að úr samfélaginu koma að kennslunni. Námið fer fram í febrúar og mars 2009. Kennt verð- ur í Reykjavík alla daga, utan þrjá daga þegar kennslan mun fara fram að Bifröst. Búist er við að í fyrsta hópnum sem hefur nám verði áttatíu til 120 nemendur. Hrund Gunnsteinsdótt- ir, forstöðumaður Prisma, segir allar líkur á að áfram verði haldið. Ekki sé heldur útilokað að úr því verði nýtt BA-nám. Allt fari það eftir áhuganum, sem hún hefur trú á að verði mikill. „Sú nálgun, að nota aðferðafræði úr listgrein- um til að vinna með hvað sem er úr samfélaginu, er að mínu mati það sem koma skal,“ segir hún. Námið kostar 120 þúsund krón- ur. Ýmis fagfélög og stéttarfélög niðurgreiða nám af þessu tagi að öllu leyti eða að hluta. - hhs Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands snúa bökum saman: Nýstárlegt þverfaglegt nám AÐSTANDENDUR PRISMA Hrund Gunn- steinsdóttir, Ágúst Einarsson, Hjálmar Ragnarsson og Jón Ólafsson. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM GLITNIR Íslandsbanki varð Glitnir í mars 2006. Breytingin kostaði 150 milljónir, auk auglýsingakostnaðar. Nú verður Glitnir aftur Íslandsbanki. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA VIÐSKIPTI Ekki liggur fyrir hvað væntanleg nafnbreyting ríkisbank- ans Nýja Glitnis mun kosta. Síð- asta breyting kostaði 150 milljónir. Nýi Glitnir mun taka upp nýtt nafn 20. febrúar næstkomandi. Nýja nafnið, Íslandsbanki, er þó síður en svo nýtt, enda hafa tveir bankar borið það áður. Í tilkynningu frá Nýja Glitni kemur fram að breytingin sé liður í uppgjöri við fortíðina þar sem nafn Glitnis hafi beðið hnekki við efnahagshrunið. Sú spurning hefur vaknað hvort Ísland sé einnig skaðað vörumerki og hvort það kunni að verða bank- anum til trafala á erlendri grundu að kenna sig við landið. „Auðvitað er þetta einn af þeim þáttum sem menn veltu mikið fyrir sér,“ segir Már Másson, upplýsingafulltrúi Glitnis. Íslandsbankanafnið sé hins vegar gott og traust nafn og eigi að endurspegla það að starfsemi nýja bankans fari fyrst og fremst fram hérlendis. Íslandsbanki tók upp Glitnis- nafnið árið 2006. Sú breyting kost- aði 150 milljónir, fyrir utan það sem eytt var í kynningarherferð tengdri nafnbreytingunni. Már segir að breytingin í febrúar verði ódýrari. Hún muni taka lengri tíma og í ljósi þess að Íslandsbanki sé þekkt vörumerki hérlendis þurfi ekki að ráðast í kynningarherferð. „Við leggjum mikla áherslu á að kostnaðurinn verði í lágmarki,“ segir Már. Nafni Nýja Landsbankans hefur þegar verið breytt í NBI, en það hefur lítið verið notað. Þá hefur nafnbreytingu Kaupþings borið á góma, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, en engar ákvarðanir verið teknar í þeim efnum. stigur@frettabladid.is Vita ekki hvað nafnið kostar Ekki er vitað hvað mun kosta að breyta nafni Nýja Glitnis í Íslandsbanka. Minna en síðasta breyting sem kostaði 150 milljónir, segir upplýsingafulltrúi. Þriðji íslenski bankinn sem ber nafnið Íslandsbanki. Mars 1904: Íslandsbanki hinn fyrsti tekur til starfa. Hann er að stærstum hluta í eigu Dana og stjórnarfor- maður er Hannes Hafstein, nýr Íslandsráðherra. Stofnfé er tvær milljónir. Febrúar 1930: Íslandsbanki hinn fyrsti verður gjaldþrota eftir verðfall útflutningsaf- urða og gjaldeyrisskort. Úr rústum hans rís Útvegsbankinn. Ársbyrjun 1990: Útvegsbank- inn, Iðnaðarbankinn, Verslunarbank- inn og Alþýðubankinn sameinast í Íslandsbanka annan. Maí 2000: Íslandsbanki sameinast Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, sem hafði orðið til tveimur árum áður þegar hann tók við starfsemi Fiskveiðasjóðs, Iðnlánasjóðs, Iðn- þróunarsjóðs og Útflutnings- lánasjóðs. Nýi bankinn fær nafnið Íslandsbanki-FBA. Mars 2002: Nafnið Íslands- banki er tekið upp á ný, í þriðja sinn í Íslandssögunni. Mars 2006: Íslandsbanki fær nafnið Glitnir, sem fengið er úr norrænni goðafræði. Ástæðan er sögð sú að bankinn sé orðinn alþjóðlegt fjármálafyrirtæki og þurfi því nafn sem hentar til notkunar um víða veröld. Október 2008: Glitnir verður gjaldþrota. Ríkið yfirtekur starfsemi bankans og stofnar nýjan banka, Nýja Glitni. Skilanefnd er sett yfir Gamla Glitni. Desember 2008: Tilkynnt er fyrir- huguð breyting á nafni Nýja Glitnis. Hann mun heita Íslandsbanki. ÍSLANDSBANKI ÞÁ OG NÚ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.