Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 82
58 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR
Twilight segir frá stúlkunni Bellu
sem flytur úr stórborginni til smá-
bæjar í Bandaríkjunum til að lifa
þar með föður sínum. Hún er ein-
fari að eðlisfari, en eignast fljótt
vini í nýja skólanum hennar. Allt
breytist þó þegar hún kynnist
hinum leyndardómsfulla Edward
og verður fljótt ástfangin af
honum, en hann er ásamt fjöl-
skyldu sinni vampíra.
Twilight byggir á unglingabók-
um sem hafa notið fádæma vin-
sælda vestanhafs og kvikmynd
þessi sló í kjölfarið öll met í miða-
sölu. Það er þó greinilegt að gald-
ur bókanna hafa ekki skilað sér á
hvíta tjaldið því Twilight er óskap-
lega ómarkverð og daufleg mynd.
Í kjarna hennar er hún ástarsaga
fyrir unglinga sem blandast við
vampíruþemað, og myndin stígur
í sjálfu sér ekki mörg feilspor. En
hún silast lúshægt áfram í drykk-
langa stund áður en nokkuð af viti
fer að gerast og lokahnykkurinn,
sem hefur illa útfærðan hasar,
reynist ekki biðarinnar virði.
En rómantík er þetta fyrst og
fremst og aðalleikararnir reyna
hvað þeir geta til að halda þessu
uppi; þau Kristen Stewart og
Robert Pattison. Það leynir sér
ekki að myndin teygir lopann mjög
með þunnum efnivið og nær
algjörlega útreiknanlegum sögu-
þráð, og er þegar öllu er á botninn
hvolft líkt og langur sjónvarps-
þáttur. Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Unglingsstúlka
fellur fyrir vampíru
KVIKMYNDIR
Twilight
Leikstjóri: Catherine Hardwicke.
Aðalhlutverk: Kristen Stewart og
Robert Pattison.
★★
Fremur þunnur efniviður og fyrirsjáan-
legur söguþráður.
Óðum styttist í Eurovision.
Fréttablaðið tók púlsinn á
lögunum í íslensku undan-
keppninni.
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009
hefst laugardagskvöldið 10. jan-
úar 2009. Ragnhildur Steinunn sér
um fjóra undanúrslitaþætti þar
sem fjögur lög keppa um hylli
símakjósenda í hvert skipti. Tvö
lög fara áfram eftir hvert kvöld í
úrslitaþáttinn 14. febrúar. Þar
keppa átta lög um að komast til
Rússlands og verður sigurlagið
tuttugasta og annað Eurovision-
framlag Íslands. Úrslitakeppnin
fer fram í Moskvu 16. maí, en
fyrst þarf íslenska lagið að kom-
ast í gegnum forkeppnina í vik-
unni áður. Tvær forkeppnir verða
haldnar eins og síðast.
Tannlæknir og geðlæknir
Alls bárust 217 lög í ár. Nefnd
valdi 15 lög, en til viðbótar var
Örlygi Smára, sigurvegara síðustu
keppni, boðið að taka þátt. Tólf
lagahöfundar sluppu í gegn og
þrír þeirra fengu grænt ljós á tvö
lög hver.
Lagahöfundarnir hamast nú við
að leggja lokahönd á lögin og flest-
ir hafa valið söngvara. Óskar Páll
Sveinsson á tvö lög í keppninni og
fær Jóhönnu Guðrúnu og Seth
Sharp til að flytja þau. Óskar hefur
ekki samið lög í Eurovision áður
en útsett og tekið upp mörg lög í
keppnina, þar á meðal norska
sigurlagið frá 1995. Hann er því í
raun eini Íslendingurinn sem
hefur unnið Eurovision.
Hallgrímur Óskarsson á tvö lög.
Hann fékk X-factor sigurvegar-
ann Jógvan til að syngja annað
þeirra, en segir það skýrast á allra
næstu dögum hver syngur hitt.
Hallgrímur hefur margoft sent
lög til keppni og samdi sigurlagið
sem Birgitta Haukdal söng árið
2003.
Tannlæknirinn Heimir Sindra-
son semur tvö lög. Klara Ósk úr
Nylon mun syngja annað lagið en
Heimir hefur ekki fastákveðið
hver muni flytja hitt lagið. Annar
læknir er með í ár, Grétar Sigur-
bergsson geðlæknir. Lagið hans er
róleg ballaða. Endanlegur söngv-
ari liggur ekki fyrir en prufur
standa yfir. Grétar átti síðast lög í
Eurovision árið 2001.
Ísafold og Bermúda
Erla Gígja Þorvaldsdóttir er eina
konan sem á lag í keppninni í ár.
Erla er elst keppenda og er komin
langt að sjötugu. Hún er Skag-
firðingur og hefur tekið þátt í
dægurlagakeppnum Kvenfélags-
ins og Húnalögunum. Elfa fær
unga söngkonu, Hreindísi Ylvu
Garðarsdóttur til að syngja lagið
sitt.
Djasstrommarinn Einar
Scheving komst í gegn með sitt
fyrsta lag sem hann sendi til
keppni. Hann á enn eftir að velja
söngvara, en segir lagið lág-
stemmt og friðsælt.
Trausti Bjarnason komst nálægt
sigri árið 2006 þegar lagið hans
sem Regína Ósk söng tapaði fyrir
Sylvíu Nótt. Nú fær hann Höllu
Vilhjálmsdóttur til að syngja lagið
sitt. Lagið er kraftmikið rokkpopp
og Halla samdi textann.
Einar Oddsson náði fjórða sæti
árið 2001 en bindur nú vonir við
lag sem hann hefur fengið tvær
söngkonur til að syngja, þær Guð-
rúnu Lísu, áður í Ísafold, og Erlu
Hrönn, áður í Bermúda.
Leitað til afkvæma
Valgeir Skagfjörð slær þjóðlegan
tón í sínu framlagi. Valgeir hefur
átt nokkur lög í gegnum árin og
fær dóttur sína, Ólöfu Jöru, til að
syngja lagið. Ólöf er 19 ára og
hefur getið sér gott orð í Verslun-
arskólasöngleikjum.
Torfi Ólafsson teflir einnig fram
afkvæmum sínum, bræðrunum
Sverri Baldri og Ólafi. Þeir ásamt
Arnari Jónssyni og Edgar Smára,
áður í Lúxor, munu sitja á barstól-
um og syngja lag Torfa, sem hann
segir í notalegum Eagles-fílingi.
Albert G. Jónsson tók síðast þátt
2003 og lenti í þriðja sæti á eftir
Birgittu og Botnleðju. Hann hefur
fengið söngkonuna Kaju til að
syngja lagið sitt sem hann segir
nútímalegt og hresst.
Halldór Guðjónsson er sjóað-
ur í dægurlagakeppnum, átti til
að mynda síðasta Ljósanætur-
lag. Þetta er þó í fyrsta skipti
sem hann á lag í úrslitum
Eurovision. Lagið, sem hann
segir vera kraftballöðu,
syngur Heiða Ólafsdóttir,
oft kennd við Idol.
Örlygi Smára var
boðið að taka þátt og
kom því seinastur inn.
Hann segist nýbúinn að
semja lagið og hefur ekki
enn ákveðið hver syngur
það. Veit ekki einu sinni
hvort það verður karl eða
kona.
drgunni@frettabladid.is
Eurovisionlögin að verða klár
JÓHANNA GUÐRÚN Syngur annað lag
Óskars Páls.
HALLA VILHJÁLMS Syngur lag Trausta
Bjarnasonar.
JÓGVAN Syngur annað lag Hallgríms
Óskarssonar.
KLARA ÓSK
Syngur lag Heimis Sindra-
sonar.
Nýtt upphaf!
Laugavegi · Kringlunni · Leifsstöð
www.skifan.is
Áritanir í Skífunni Laugavegi í dag
Ragnar Zolberg kl. 16:30 Dr. Spock kl. 17:30 Motion Boys kl. 18:30
Ragnar Zolberg, Dr.spock og Motion Boys spila og árita í Skífunni Laugavegi 26 í dag