Fréttablaðið - 19.12.2008, Qupperneq 10
10 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR
JÓLASVEINAR Í HAMBORG Hundruð
jólasveina mættu til leiks þegar efnt
var í góðgerðaskyni til jólasveina-
hlaups í miðborg Hamborgar í
Þýskalandi. Ef grannt er skoðað má sjá
að flestir þeirra veifa, af einhverjum
ástæðum, danska fánanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Sjómenn og útvegs-
menn undirrituðu nýjan kjara-
samning í gær. Samningurinn
tekur annars vegar til Sjómanna-
sambands Íslands, Alþýðusam-
bands Vestfjarða, Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands og
VM, félags vélstjóra og málm-
tæknimanna, og hins vegar
Landssambands íslenskra
útvegsmanna. Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir að alltaf sé ánægjulegt
að ljúka samningum. Hann segir
vinnu við samningagerðina hafa
gengið vel og þakkar forystu
sjómanna fyrir þeirra hlut í því að
samningar náðust. - shá
Sjó- og útvegsmenn:
Kjarasamning-
ur undirritaður
BANDARÍKIN, AP Dick Cheney,
varaforseti Bandaríkjanna, er
harla ánægður með hverja
Barack Obama hefur valið til
þess að sjá um varnar- og
öryggismál í stjórn sinni, sem
tekur við af stjórn Bush í næsta
mánuði.
„Ég verð að segja að þetta er
nokkuð gott lið,“ sagði Cheney í
sjónvarpsþætti í vikunni.
Varaforsetinn segist hins vegar
enn sannfærður um nauðsyn þess
að hafa sent herinn til Íraks og
ítrekar þá skoðun sína að
stundum geti verið nauðsynlegt
að beita vatnsbrettaaðferðinni
svonefndu á grunaða hryðju-
verkamenn. Vatnsbrettaaðferðin
er pyntingaraðferð þar sem líkt
er eftir drukknun. - gb
Varaforseti Bandaríkjanna:
Cheney ánægð-
ur með Obama
DICK CHENEY Segir Obama hafa valið
sér gott samstarfslið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKIPULAGSMÁL „Með þessu erum
við ekki að setja þeim einhverja
afarkosti,“ segir Júlíus Vífill Ingv-
arsson, formaður skipulagsráðs
Reykjavíkur, um gagnrýni stjórn-
arformanns og fjármálastjóra
fasteignafélagsins Festa ehf. á
umsögn skipulags- og bygginga-
sviðs um deiliskipulagstillögu
fyrir Hljómalindarreit.
„Það er skiljanlegt að þau vilji
fá sem mest byggingamagn á reit-
inn og við höfum verið að horfa á
með hvaða hætti er hægt að verða
við því. En það er engu að síður
svo, að þær tillögur sem þau hafa
verið að leggja fyrir okkur gera
ráð fyrir 35 prósent meira bygg-
ingamagni en núgildandi deili-
skipulag gerir ráð fyrir,“ segir
Júlíus Vífill.
Í ljósi þess hversu fjármagn er
dýrt telur Júlíus Vífill skiljanlegt
að framkvæmdaaðilar vilji ganga
hratt fram. „Þegar menn eru með
svona viðkvæma reiti, eins og
þarna er um að ræða, er eðlilegt
að menn vandi sig. En á sama tíma
vitum við að það þarf að vinna
hratt vegna þess að fjármagn er
óheyrilega dýrt og það er mikil-
vægt að menn geti farið að koma
þeim rekstri, sem þarna er stefnt
að, af stað,“ segir Júlíus Vífill.
Hann segir að samstarf borgar-
innar og Festa hafi gengið vel en
engin formleg viðbrögð hafi enn
borist frá Festum við umsögn
skipulagsráðs. „Hins vegar hafa
þau tekið sér nokkurn tíma til
umhugsunar en við eigum von á að
fá viðbrögð þeirra við þeim
athugasemdum sem fram komu,“
segir Júlíus Vífill. - ovd
Formaður skipulagsráðs segir mikilvægt að vanda skipulag á Hljómalindarreit:
Festum ekki settir afarkostir
IÐNAÐUR Flutningaskipið Wilson
Cadiz lagðist að bryggju á Rifi á
þriðjudagsmorgun með hús vatns-
verksmiðjunnar sem þar á að rísa
innanborðs. Húsið er tíu þúsund
fermetrar að stærð og tekur upp-
skipun tvo til þrjá daga. Hafist
verður handa við að reisa húsið
strax eftir áramótin.
Það er fyrirtækið Iceland Glacier
Products sem stendur að uppbygg-
ingunni á Rifi. Samkomulag var
undirritað í fyrra og hefur félagið
réttindi til vatnstöku næstu 95 árin.
Undirbúningsvinna vegna verk-
smiðjunnar hefur tekið nokkur ár
og hefur verkið tafist nokkuð. Snæ-
fellsbær hefur ekki komið að fjár-
mögnun verkefnisins en leggur
fram lóð undir verksmiðjuna. Sökk-
ull undir húsið var kláraður í haust
og unnið er að því að leggja vatns-
æð úr Fossárdal að grunni hússins.
Ef allt gengur eins og áætlað er
verður húsið risið í byrjun sumars
og byrjað að setja niður vélasam-
stæður. Framleiðsla gæti því hafist
í byrjun árs 2010.
Miðað er við að fjörutíu starfs-
menn vinni við verksmiðjuna fyrstu
þrjú árin en þegar fullum afköstum
verður náð er áætlað að sjötíu
manns vinni við að tappa vatni á
Rifi. - shá
Flutningaskip lagðist að bryggju á Rifi á þriðjudag:
Vatnsverksmiðjan
komin í Rifshöfn
UPPSKIPUN Verksmiðjuhúsið er tíu þúsund fermetrar. Verið er að skipa einingunum
upp þessa dagana. MYND/SNÆFELLSBÆR
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
U
T
I
44
21
0
11
.2
00
8
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Brettapakkar
20% afsláttur
Brettadeildin er í Kringlunni
EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin skerð-
ir hækkun allra bótaflokka
almannatrygginga um tíu prósent
að lágmarks-
tekjuviðmiðun
undanskilinni,
eða úr 19,9 pró-
sentum í 9,6
prósent, eftir
áramót. Þetta
þýðir að lág-
marksbætur
verða ríflega
163 þúsund
krónur í stað
þess að vera
tæp 178 þúsund, eins og þær hefðu
átt að vera. Þær verða þar með 14-
15.500 krónum lægri á mánuði.
ASÍ segir að ríkisstjórnin
umbylti almannatryggingakerfinu
með því að taka upp 100 prósenta
jaðarskatt, nokkurs konar hátekju-
skatt á greiðslur lífeyrissjóða til
elli- og örorkulífeyrisþega. Ríkis-
sjóður sé að „hirða þann lífeyri
sem launafólk hefur safnað saman
á löngum starfsferli.“
Yfirlit ASÍ yfir áhrifin sýnir að
greiðslur til lífeyrisþega hækka
lítið þó greiðslur úr lífeyrissjóði
hækki um tugi
þúsunda. Sam-
kvæmt því fær
lífeyrisþegi
miðað við
almannatrygg-
ingar og 0-20
þúsund krónur í
lífeyrisgreiðsl-
ur 162.773 krón-
ur á mánuði en
hefði átt að fá
178.219. Lífeyr-
isþegi sem fær 30 þúsund úr líf-
eyrissjóði fær skerðingu upp á
14.137 krónur og þar með 164.082
á mánuði í stað 178.219. Lífeyris-
þegi sem fær 70 þúsund úr lífeyr-
issjóði fær 184.222 krónur en hefði
átt að fá 198.359.
Halldór S. Guðbergsson, fram-
kvæmdastjóri Öryrkjabandalags-
ins, ÖBÍ, segir að ríkisstjórnin
standi ekki við lög láti hún skerð-
inguna koma til framkvæmda.
Aðeins 11 þúsund manns fái fullar
verðbætur eftir áramót en um 33
þúsund fái tæplega 10 prósenta
hækkun. „Til að standa við lög
þyrftu allir að fá 19,9 prósent,“
segir Halldór og vill að ríkisstjórn-
in endurskoði málið.
Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðherra finnst undarlegt að
litið sé á það sem atlögu að
almannatryggingakerfinu þegar
ríkisstjórnin leggi sig fram um að
bæta kjör hinna verst settu. Bætur
lægst settu lífeyrisþega hafi aldrei
verið hærri en á næsta ári saman-
borið við dagvinnutryggingu á
almennum vinnumarkaði en víxl-
verkanir séu á milli almanna-
tryggingakerfisins og lífeyris-
sjóðanna sem hafi slæm áhrif á
kjörin. „Það er mjög slæmt og við
viljum taka á því,“ segir hún. „Það
er verkefnastjórn hjá mér að
skoða þessi mál.“
Framkvæmdastjórn Landssam-
bands eldri borgara skorar á
stjórnvöld að hlutur ellilífeyris-
þega verði í engu skertur og að
staðið verði við öll loforð.
ghs@frettabladid.is
Nýr hátekjuskattur á öryrkja
Greiðslur til öryrkja og ellilífeyrisþega skerðast um 14-16 þúsund krónur á mánuði eftir áramót. Ríkið setur
hátekjuskatt á öryrkja, að mati ASÍ. Verkefnastjórn skoðar víxlverkanir almannatrygginga og lífeyrissjóða.
SKERÐING LÍFEYRISGREIÐSLNA – DÆMI
Dæmi 1 Dæmi 2 Dæmi 3 Dæmi 4
Lífeyrissjóður 0 30.000 50.000 70.000
Hefði átt að fá 178.219 178.219 188.289 198.359
Fær (eftir skerðingu) 162.773 164.082 174.152 184.222
Mismunur -15.446 kr. -14.137 kr. -14.137 kr. -14.137 kr.
HALLDÓR S.
GUÐBERGSSON
MEIRIHLUTINN FÆR SKERÐINGU Um 33 þúsund öryrkjar fá 14-16 þúsund krónum
minna í lífeyri á mánuði eftir áramót ef sparnaðaraðgerðir ríkisstjórnarinnar ná fram
að ganga. Aðeins um 11 þúsund öryrkjar fá fullar verðbætur á næsta ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR