Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 20

Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 20
20 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ VIKA 44 DAGBÓK NÝRRA ÍSLENDINGA ■ Bandormur er ekki bara sníkju- dýr. Svo kallast einnig lagafrumvarp sem einkennist af því að breytingar eru gerðar á mörgum lögum í einu, ekki einum eins og venjulega, og þessar breytingar fjalla yfirleitt um efnahagsmál. Ragnar Arnalds, fv. ráðherra, segir að orðið hafi verið notað á þingi þegar hann settist á þing árið 1963 og giskar á að byrjað hafi verið að nota það á fyrri hluta aldarinnar. Það hafi þótt dálítið óþinglegt og málsmeðferðin óvirðuleg og til þess fallin að hæðast að því. Þannig hafi orðið upphaflega verið notað í háði. BANDORMUR: NOTAÐ SEM HÁÐ „Það er frábært á Flórída. Hér er mátulega heitt og við höfum mest gert af því að slaka á og borða,“ segir Charlotte sem stödd er á Flórída ásamt fjölskyldu kærasta síns. „Við búum í stóru, yndislegu húsi og það er stutt í margt áhugavert að skoða. Við heimsóttum Venice- ströndina, drukkum mjólkurhristing og leituðum að hákarlstönnum. Á þriðjudaginn fór ég ásamt kærasta mínum í gamla kúbanska hverfið í Tampa. Í borginni Ybor var eitt sinn framleitt mest af vindlum í heimin- um en þar er nú mest lítið að sjá. Byggingarnar eru þó fallegar og svo hittum við gamlan Kúbumann sem var að handvefja fallega vindla. Á miðvikudaginn slökuðum við svo á. Sumir í fjölskyldunni fóru í golf á meðan aðrir versluðu jólagjafir en ég fór niður á strönd til að lesa í sólskininu.“ Charlotte Ólöf Jónsdóttir Ferrier: Frábært á Flórída „Eftir að ég dró mig í hlé, eftir 30 ára starf að borgarmálum, hef ég gegnt stjórnarformennsku í Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar,“ segir Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi forseti borgar- stjórnar Reykjavíkur. „Auk þess sem ég er að vinna að nokkrum smáverkefnum fyrir Orkuveitu Reykjavíkur þá uni ég mér vel í sveitinni. Ég er búinn að koma mér upp ágætis aðstöðu á Syðri- Reykjum, á bökkum Brúarár. Þar er gott að vera, hvort sem það er sumar eða vetur,“ segir Alfreð. Þótt Alfreð hafi hætt í borgarstjórn þá segist hann ekki hafa hætt að starfa í Framsóknarflokknum. „Ég fylgist náttúrlega vel með. Öðru hverju er hringt í mig og skorað á mig að fara aftur í pólitíkina en ég hef nú tekið því dræmlega. Ég tel að ég hafi fengið minn skammt. En það er hins vegar ekki gaman að horfa upp á ástandið eins og það er í þjóðfélaginu núna. Ég vona bara að þeim, sem standa í orrahríðinni í dag, takist að leysa úr þeim verkefnum sem fram undan eru en þau eru gífurlega erfið,“ segir Alfreð. Alfreð lumar á góðum kreppuráðum. „Stjórnvöld ættu að semja við orkufyrir- tækin um að kaupa af þeim 100 mega- vött af rafmagni sem hægt væri að hafa til reiðu fyrir fyrirtæki sem leita eftir orku á Íslandi. Þá er ég að tala um önnur fyr- irtæki en álfyrirtækin. Uppbygging virkjana er mjög mannaflsfrek og gæti bætt atvinnuástandið auk þess sem hér væri verið að búa í haginn fyrir framtíð- ina,“ segir Alfreð. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ALFREÐ ÞORSTEINSSON Ætlar ekki aftur í stjórnmálin ÓLAFUR ÁKI RAGNARSSON Bæjarstjóri í Ölfusi. „Ég vil halda í hefðir og þar af leiðandi borða ég skötu á Þorláks- messu,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri í Ölfusi. Hann segist halda mikið upp á þessa íslensku hefð. „Ég hef reyndar ekki alltaf borðað skötu á Þorláksmessu. Ég borðaði skötu sem strákur en svo datt úr kafli þar sem pabba mínum líkaði skatan ekki,“ segir Ólafur Áki. Hann segir hefðirnar mikilvægan þátt í jólaundirbúningnum. „Fyrsta sunnudag í aðventu fer ég í messu og svo kveikjum við á ljósunum á jólatrénu við ráðhúsið í Þorlákshöfn. Það er svona einn af þessum föstu þáttum í jólaundirbúningnum og svo finnst mér mikilvægt að fara í skötuveislu á Þorláksmessu,“ segir Ólafur Áki. Hann segist ekki borða skötu aðra daga ársins. „Ég hef ekki gert það en þetta er einn af þessum toppum á aðventunni, sem er svo skemmtilegur tími,“ segir Ólafur Áki. SJÓNARHÓLL KÆST SKATA Á ÞORLÁKSMESSU Fólk getur nú styrkt björgunarsveitir landsins, þróunarlöndin og náttúruna sjálfa, allt á einu bretti. Það eina sem þarf að gera er að kafa ofan í skúffur og inn í hillubotna og finna þar gamla farsíma. Skilja þá svo eftir á flugeldasölum björgunarsveitanna um leið og stjörnuljós og kínverjar áramótanna eru keypt. „Svaraðu kallinu – gamli gemsinn bjargar“ eru slagorð fjár- öflunar- og end- urvinnsluátaks Slysavarnafé- lagsins Lands- bjargar sem allar björgunarsveitir landsins taka þátt í. Flugeldasölur björgunarsveit- anna verða opnað- ar um allt land hinn 28. desember. Þang- að geta allir sem vilja björgunar- sveitunum, þróunar- löndunum og náttúr- unni vel, skilað inn gömlu hálfónýtu sím- unum sínum. Ólafía Hrönn Jóns- dóttir leikkona setti átakið form- lega af stað á miðvikudaginn þegar hún afhenti fyrsta símann. „Fyrst spurði ég mig, eins og fávís kona, hvort sími sé endilega það sem fátæka fólkið í Afríku vantar. En þegar ég fór að skoða málið sá ég að þeir koma að mjög góðum notum þar. Þannig að allir koma vel út úr þessu. Fólk virðist eiga mikið af léttbiluðum símum heima hjá sér. Það er um að gera að gefa þá, í staðinn fyrir að láta þá liggja þar.“ En hvernig má það vera að allir græði á átakinu? „Við seljum gömlu símana til fyrirtækis sem heitir Greener Solutions,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýs- ingafulltrúi Lands- bjargar. Björgunar- sveitirnar fái greidda dágóða summu fyrir hvern síma, misjafn- lega háa eftir gerð og ástandi símans. „Fyr- irtækið tekur sím- ana, gerir við þá og lappar upp á þá, ef það er mögulegt. Ef þeir eru ónýtir eru þeir rækilega end- urunnir. Í farsím- unum eru mörg efni sem eru slæm fyrir umhverfið en önnur eru nýtileg í annað. Því ætti alls ekki að henda þeim í ruslið. Svo hefur þetta þennan rosalega flotta endavinkil, að símarnir fara beint til þróunar- landa þar sem þeir koma að góðum notum.“ Flugeldasala er stærsta ein- staka fjáröflun flestra björgun- arsveita. Vonast þær nú til að söfnun farsímanna verði þar góð viðbót. „Á flestum heimilum eru til nokkrir farsímar sem heimil- isfólkið er hætt að nota,“ segir Ólöf. „Nú er rétti tíminn til að kafa ofan í skúffunrar og finna þá.“ holmfridur@frettabladid.is Skúffusímar öðlast framhaldslíf ÓLAFÍA HRÖNN GEFUR SÍMANN SINN Leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir fann tvo hálfónýta farsíma á sínu heimili. Hún afhenti Sigurði Ó. Sigurðssyni, björgunar- sveitarmanni úr Hjálparsveit skáta í Kópavogi, fyrsta síma söfnunarinnar á miðviku- daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NOKIA 5140 Fyrir ónýtan síma af gerðinni Nokia 5140 fá björgunarsveitirnar rúm- lega þúsund krónur íslenskar. Flott er það „Ég hef verið að syngja mikið í afmælum og þá kem ég eins og sprengja inn í partíið.“ HERBERT GUÐMUNDSSON TÓNLIST- ARMAÐUR Fréttablaðið 18. desember Ekkert misjafnt hér „Enginn starfsmaður okkar er á tvöföldum launum.“ ATLI ATLASON, STARFSMANNA- STJÓRI LANDSBANKANS Fréttablaðið 18. desember Junphen Sriyoha: Var ekki hleypt til Póllands Junphen kom í fyrrinótt úr mikilli sneypuför frá London ásamt kærasta sínum. „Ég var á leiðinni til Póllands þar sem ég ætlaði að eyða jólunum með honum og fjölskyldu hans,“ segir hún. „Við flugum til Stansted og þar gekk allt að óskum. Síðan urðum við að fara til Luton þaðan sem flogið er til Póllands. Þegar ég er í brottfararskráningu segir maðurinn þar við mig að þeir þurfi að láta skoða vegabréf mitt. Eftir nokkra stund kemur maður með vegabréfið til mín og segir að því miður geti þeir ekki hleypt mér til landsins. Þeir tóku ekki búsetuleyfið sem er stimplað í það gilt. Bretarnir gáfu mér hins vegar sólarhrings landvistarleyfi svo það eina sem ég gat gert var að bóka flug aftur til Íslands. Og kærastinn minn kom með mér eins og góður herramaður en auðvitað er hann sár að geta ekki eytt jólunum með sínu fólki. Ég er auðvitað hundfúl líka, við vorum búin að eyða háum fjárhæðum í flugmiðana og fáum svo bara þessa sneypuför.“ Fréttablaðið hafði samband við Útlendingastofnun sem sagði að öllu jöfnu ætti Taílendingur með búsetuleyfi á Íslandi að geta farið til Póllands sem er í Schengen. Þeir segja erfitt að segja til um hvað býr að baki ákvörðuninni en hugsanlega sé það tengt því að England er ekki í Schengen og því hafi þeir ekki vilja hleypa henni áfram en þó leyft henni að fara aftur þaðan sem hún kom. Mikilvægt að halda í hefðir Auglýsingasími – Mest lesið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.