Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 52

Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 52
12 föstudagur 19. desember Í janúarhefti breska Elle Decoration er fatahönn- uðurinn Matthew Williamson heimsóttur á sitt kaotíska og litríka Lundúnaheimili. Það sem er svo dásamlegt við heimili herra Williamsons er að svona heimili sjást ansi sjaldan á síðum blaðanna og því síður hjá íslenskum fjölskyldum. DÁSAMLEGUR STÍLL Litir eins og skærbleikur og appelsínugulur eru ríkjandi og blandar hann þessum litum á móti túrkís lit og grænum. Svalahurðin inn í garðskálann er til að mynda lökkuð í skærbleikum lit og póstarnir á gluggunum í stofunni eru appel sínugulir. Hann notar nýtískuleg húsgögn eins og Emes-eld- hússtólana á móti stórum spegli í gullramma sem hangir fyrir ofan Consule-borð með glerplötu. Til að fullkomna stemninguna veggfóðr- ar hann nokkra veggi sem gerir íbúðina einstaka. ÆVINTÝRALEG LÝSING Þegar íbúðin sjálf er skoðuð kemur þó í ljós að um ansi venjulega arkitektahannaða íbúð er að ræða. Hann er til dæmis með hvíta sprautulakkaða eldhúsinnréttingu en hún verð- ur ævintýraleg þegar kveikt er á bleiku perunum sem faldar eru á bak við opnar hillur. Þá líkist eldhúsið meira smartheitabar en hefð- bundnu eldhúsi. EKKI LEIKA ÞETTA EFTIR Þó svo að ég sé ákaflega hrifin af heim- ili herra Williamson er ég ekki viss um að það væri góð hugmynd að leika þetta eftir eða stæla íbúðina á einn eða neinn hátt. Allavega ekki nema viðkomandi hafi sérlega næmt auga fyrir litum og rými því á sinn hátt er íbúðin listaverk sem dansar algerlega í takt við fatahönnun hans og er einhvern veginn Matthew Williamson í hnot- skurn. Og það fer bara enginn í skóna hans herra Williamsons … ✽ prófaðu eitthvað nýtt... heima MARTA MARÍA JÓNASDÓTTIR martamaria@365.is HEIMILI WILLIAMSON Sófinn SKiN eftir franska arkitekt- inn Jean Nouvel, sem hann hann- aði fyrir Molteni & C, var valinn besta hönnunin af Red Dot. Sóf- inn vakti mikla athygli þegar hann var sýndur á hönnunarsýningunni Salon Del Mobile í Mílanó á Ítalíu síðastliðið vor. Það má með sanni segja að sófinn sé óvenjulegt hús- gagn því aðal uppistaðan er grind með efni yfir en ekki með hefð- bundinni grind eins og gengur og gerist. Sófinn er sérlega vandaður og ógurlega þægilegur (þótt hann líti ekki út fyrir að vera það) og því er ekki skrítið að hann hafi hreppt verðlaunin. Sófinn er bæði til í leðri og gúmmíefni en það er ekki hægt að skipta um áklæði á honum en það er líka allt í lagi. - mmj Skin-sófinn hlaut hönnunarverðlaunin Red Dot Framtíðarhúsgögn Fallegt mynstur Til að gera sófann sem þægilegastan er ákveðið mynstur skorið í leðrið eða gúmmíáklæðið. Skin-sófinn fæst í nokkr- um litum. Skin Svona lítur sófinn út einn og sér þegar hann er leður- klæddur. FALLEGA LAGT Á BORÐ Ekki bara leggja fallega á borð yfir jólahá- tíðina það má reyndar gera alla daga í desember. Náðu í jólakúlur, skraut og dúka og búðu til huggulega stemningu fyrir þig og þína. Maturinn mun pott- þétt smakkast mun betur. Hvern dreymir ekki um að föndra sínar eigin jóla- skreytingar án þess að þær líti út fyrir að vera heimatilbúnar? Frá því í fyrra hef ég verið með hringlaga form svolítið á heilanum. Í fyrstu hugs- aði ég með mér að það væri hægt að búa til fal- legt jólaskraut úr gömlum húlahring en þegar þeir fengust hvergi í desem- ber bjó ég til hring úr rafmagnsröri og tengdi saman með rafmagnsröra- festingu. Þegar hringurinn var tilbúinn vafði ég um hann gömlu efni og vafði jólaseríu utan um hann. Þar með var hringurinn tilbúinn. Þá var ekkert annað í stöðunni en að festa hann upp á áberandi stað og stinga honum í samband. Ég hvet ykkur til að leika þetta eftir. - mmj Fallegt & elegant jólaskraut Ef þú ert komin/n með ógeð á gömlu húsgögnunum er mælt með því að mála þau í fallegum lit. Pússaðu gamla borðstofuborðið upp, grunn- aðu og lakkaðu í þínum uppáhaldslit. Nú er tíminn til að vera svolítið litaglaður og ferskur. Það sakar held- ur aldrei að gefa hugmynda- fluginu lausan tauminn. Því skærara því betra. Þegar þú ert búin/n að velja litinn má svo nota hann sem þema- lit í allar jólaskreytingarnar á heimilinu og skapa þannig mikinn ævintýraheim. Þegar enginn hefur efni á dýrum ferðalögum út í heim er um að gera að koma með ævin- týrin inn á sitt eigið heimili. - mmj Ævintýrin heim til þín LAURA ASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646 Opið virka daga frá 10-18, laugardaga frá 11-18 og sunnudag frá 13-18 Allt fyrir jólin... 40% afsláttur af allri jólavöru 20-30% afsláttur af fatnaði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.