Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 68

Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 68
44 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Þennan dag árið 1821 hófst eld- gos í Eyjafjallajökli og stóð það til ársins 1823. Undir jöklinum er eldkeila sem hefur ekki gosið síðan en vitað er um eldgos í jöklinum árið 1612. Eyjafjallajökull er eitt stærsta eldfjall Íslands ásamt því að vera einn af fimm stærstu jöklum landsins. Þá skartar hann einum af hæstu tindum landsins, en hann mælist um 1.660 metrar. Efst í Eyjafjallajökli er lítil askja (sigketill) þakin jökli. Af um- merkjum að dæma er hún grunn. Askjan er opin mót norðri þar sem brattur skriðjökull, sem nefnist Gígjökull, fellur niður á lág- lendi. Jökulhlaup komu undan Gígjökli meðan á gosinu, sem hófst 1821, stóð. Veturinn 1999-2000 sýndu mælingar landris og aukna skjálfta- virkni við Eyjafjallajökul. Hliðstæður atburður varð 1994. Þeir benda til aukins aðstreymis kviku sem gæti leitt til eldgoss í jöklinum. ÞETTA GERÐIST : 19. DESEMBER 1821 Eldgos í Eyjafjallajökli Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, Guðmundur Páll Þorvaldsson Furuvöllum 14, Hafnarfirði, sem lést laugardaginn 13. desember, verður jarðsung- inn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 22. desember kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans láti Krabbameinsfélagið njóta þess. Helga Aðalbjörg Þórðardóttir Þóra Dröfn Guðmundsdóttir Þórður Rafn Guðmundsson Jakob Darri Markús Blær og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærs eiginmanns míns, föður og tengda- föður, Sigurðar Más A. Sigurgeirssonar Fannafold 115. Sérstakar þakkir til Lögreglunnar fyrir ómetanlega aðstoð. Hlíf Kristófersdóttir Sigurgeir Már Sigurðsson Sæmunda Fjeldsted Ólöf Vala Sigurðardóttir Einar Örn Einarsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ólöf Septína Kristjánsdóttir áður til heimilis að Hringbraut 3, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 17. desem- ber. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 22. desember kl. 15.00. Guðrún S. Guðmundsdóttir Ásgeir Gunnarsson Bára Guðmundsdóttir Óttar Eggertsson Anna S. Guðmundsdóttir Bjarni Jónasson Þórunn Halla Guðmundsdóttir Brynja Guðmundsdóttir Ólöf Guðmundsdóttir Hrefna Guðmundsdóttir Ólafur Thorarensen Atli Guðmundsson Brynja Þorgeirsdóttir ömmu- og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sigurbjörg Guðmundsdóttir frá Hurðabaki, Ártúni 17, Selfossi, sem lést 13. desember, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 20. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar látið líknarstofnanir njóta þess. Guðmundur Kristinn Þórmundsson Katla Kristinsdóttir Þuríður Þórmundsdóttir Bjarnfinnur Ragnar Jónsson Gunnar Þórir Þórmundsson Sólrún Ragnarsdóttir Anna Kolbrún Þórmundsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Innilegar þakkir sendum við þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vinsemd við andlát eiginmanns míns , föður, fósturföð- ur, tengdaföður og afa, Vigfúsar Þorsteinssonar sem lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar 22. nóvember 2008. Páley Jóhanna Kristjánsdóttir Kristján Páll Vigfússon Sigríður Margrét Vigfúsdóttir Friðþjófur Sævarsson Jóhannes Ægir Baldursson Ingibjörg Erna Arnardóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sigríður Sigurðardóttir Lokastíg 2, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, þriðjudaginn 16. desember. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni 29. desember kl. 13.00. Sveinn Hörður Blomsterberg Arndís Hildiberg Kristjánsdóttir Sigurður Ragnar Blomsterberg Ólöf Þóra Ólafsdóttir Þórunn Ólöf Sigurðardóttir barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. ALYSSA MILANO ER 36 ÁRA Í DAG „Það er gott að vera mikil- vægur en enn mikilvægara að vera góður.“ Leikkonan Alyssa Jayne Milano er best þekkt fyrir hlutverk sín sem Samantha Micelli í Who’s the Boss? og Phoebe Halliwell í Charmed. timamot@frettabladid.is Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, skrifaði undir samning í Kína í síðustu viku við tvo kínverska háskóla um samstarf um rannsóknir og kenn- ara- og nemendaskipti. Annar þeirra er Peking-háskóli sem hún kallar flagg- skip kínverskra háskóla. „Það dreym- ir alla kínverska foreldra um að börnin þeirra komist í Peking-háskóla. Hann er þar efstur á lista og nýtur mikill- ar virðingar á alþjóðavísu,“ segir hún og bætir við að samningurinn tryggi að eingöngu afburðanemendur komi þaðan hingað og að nemendur frá HÍ fái framúrskarandi kennslu og aðbúnað ef þeir fari þangað austur. Annar skóli sem Kristín samdi við er Háskóli erlendra fræða í Peking sem hún segir líka góðan. „Þar er kennd ís- lenska,“ segir hún glaðlega. „Sextán kín- verskir nemendur hófu nám í íslensku í október og þegar ég var þar á ferð þá heilsuðu þeir á íslensku og sungu Ég sá mömmu kyssa jólasvein með mjög góðum framburði. Það var alveg stór- kostlegt.“ Hún upplýsir að kennarinn sé Gísli Hvanndal og íslenska mennta- málaráðuneytið greiði laun hans. En kostar þetta samstarf við kínversku háskólana ekki eitthvað meira fyrir íslenskt samfélag? „Nei. Þó má reikna með að nemend- ur þurfi að standa einhvern straum af kostnaði sjálfir. Uppihald er samt mjög ódýrt á þessum stöðum svo ferð- irnar eru stærsti liðurinn. Oft er hægt að sækja um styrki en það fjármagn kemur ekki úr vasa HÍ enda lítið þang- að að sækja eins og er. En þetta er ein- stakt tækifæri fyrir okkar nemendur að komast í skiptinám við þessa afburða- skóla. Þar er úrval greina, hugvísindi, félagsvísindi, læknisfræði og raunvís- indi og sum fögin kennd á ensku en ekki öll. Það fer eftir greinum. Í rannsókn- arverkefnum er tungumálið þó ekki vandamál.“ Þessa árangursríku ferð kveðst Krist- ín hafa farið í boði kínverskra mennta- málayfirvalda. „Kínverjar buðu rekt- orum þeirra háskóla sem Konfúsíusar- stofnanir eru starfræktar við en þær eru 250 talsins víða um heim. Ein slík var sett á laggirnar hér við HÍ fyrr á þessu ári og heitir Norðurljós. Stofnun hennar má rekja til þess að Zhou Ji, mennta- málaráðherra Kína, kom hingað til lands árið 2006 og ræddi þennan möguleika við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Kínverjar lögðu til stofnkostnað, laun tveggja kenn- ara í kínversku, 5.000 bækur og tals- vert rekstrarfé,“ segir Kristín og telur áhuga á Kína og kínverskum fræðum hafa aukist hér á síðustu árum og einn- ig áhuga Íslendinga á að stunda nám í Kína. „Þeir sem hafa farið þangað eru mjög ánægðir,“ tekur hún fram. „Kína er aðalálfan núna. Þar er framtíðin og mikil stefnufesta í uppbyggingu á sviði menntamála og vísinda.“ Kristín kveðst einu sinni áður hafa komið til Kína, árið 2001. Síðan hafi gíf- urlega margt breyst og sláandi að sjá hversu mikill uppgangur sé þar. Hvern- ig var svo veðrið þar í síðustu viku? „Það var kalt en ég var undir það búin.“ gun@frettabladid.is KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR REKTOR: ÁNÆGÐ MEÐ SAMSTARF HÍ VIÐ PEKING-HÁSKÓLA Opnar nemendum HÍ leið inn í flaggskip kínverskra háskóla KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR, REKTOR HÍ „Kína er aðalálfan núna. Þar er framtíðin og mikil stefnu- festa í uppbyggingu á sviði menntamála og vísinda.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.