Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 80

Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 80
56 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR Will Smith segist ekki vera nógu mikið karlmenni til að leika fyrr- verandi forseta Suður-Afríku, Nel- son Mandela. Orðrómur hefur verið uppi um að Smith muni leika Mandela í nýrri mynd um ævi hans en Smith virðist ekki tilbúinn í verkefnið. „Ég er alveg örugg- lega ekki nógu góður leikari enn þá. Þetta er mikil áskorun og ég verð að leggja mig allan fram. Ég þarf að tryggja að allt sem ungur náungi frá Fíladelfíu hafi fram að færa til leiklistarinnar skili sér.“ Smith hefur áður leikið hnefa- leikakappann Muhammad Ali og fékk fyrir það tilnefningu til Ósk- arsverðlaunanna. Hann hlaut einn- ig Óskarstilnefningu á síðasta ári fyrir The Pursuit of Happyness. Ekki klár í Mandela WILL SMITH Segist ekki vera tilbúinn til að leika sjálfan Nelson Mandela. Kvikmyndin Doubt, sem gerist í kaþólskum skóla, hlaut flestar til- nefningar til Screen Actors Guild- verðlaunanna, eða fimm talsins. Þar af fengu bæði Meryl Streep og Philip Seymour Hoffman tilnefn- ingar sem bestu aðal- og aukaleik- ararnir. Hinn sálugi Heath Ledger var tilnefndur sem besti leikarinn í aukahlutverki fyrir túlkun sína á Jókernum í The Dark Knight. Doubt hlaut einnig tilnefningu fyrir besta leikaraliðið og etur þar kappi við myndirnar The Curious Case of Benjamin Button, Frost/ Nixon, Milk og Slumdog Milli- onaire. Kate Winslet hlaut tvær tilnefn- ingar, annars vegar fyrir aðal- hlutverk sitt í Revolutionary Road og hins vegar fyrir auka- hlutverk í The Reader. Aðrar leik- konur tilnefndar í aðalhlutverk- um voru: Anne Hathaway fyrir Rachel Getting Married, Angel- ina Jolie fyrir Changeling og Melissa Leo fyrir Frozen River. Í flokknum besti aðalleikarinn voru tilnefndir: Richard Jenkins fyrir The Visitor, Frank Langella fyrir Frost/Nixon, Sean Penn fyrir Milk, Brad Pitt fyrir The Curious Case of Benjamin Button og Mickey Rourke fyrir The Wrestler. Samtök leikara í Hollywood standa á bak við Screen Actors Guild-verðlaunin, sem verða afhent 25. janúar. Doubt með fimm tilnefningar DOUBT Meryl Streep var tilnefnd sem besta aðalleikkonan fyrir hlutverk sitt í Doubt. Krufning hefur leitt í ljós að hárgreiðslumaðurinn Scott Ruffalo, bróðir leikarans Marks, var skotinn til bana. Fyrst var talið að hann hefði skotið sig í höfuðið eftir rússneska rúllettu en það reyndist ekki rétt. Enginn er í varðhaldi lögreglu vegna málsins. Saha Mishaal Adham var handtekin áður en Ruffalo lést á sjúkrahúsi en var síðar sleppt lausri þar sem talið var að hún ætti enga sök að máli. Leikarinn Mark Ruffalo er meðal annars kunnur úr Zodiac. Ruffalo var myrtur Hljómsveitin Snatan: Ultra ætlar að vera í mergjuðum kreppujólafíl- ingi um helgina. Spilar í kvöld á Bar 11 ásamt DLX ATX og á Café Amsterdam á laugardagskvöldið, sem hluti af Andkristnihátíðinni. Sveitin varð til á haustdögum 2005 og spilar tilraunakennda blöndu af raftónlist og svartmálmi. Í Snatan: Ultra eru Baldur Björnsson, sem einnig er þekktur sem raftónlistar- maðurinn Krakkbot, Guðmundur Óli Pálmason, sem trommar með Sólstöfum, og Úlfur Hansson, sem er betur þekktur sem raftónlistar- maðurinn Klive. Þótt tónlist Snatan: Ultra sé í niðurdregnari kantinum fæst sveitin við fegurð og gleði í textagerð sinni. Í kreppu- jóla fílingi SNATAN: ULTRA Baldur Björnsson, Úlfur Hansson og Guðmundur Óli Pálmason. FRUMSÝNA NÝTT MYNDBAND Retro Stefson verða í jólagleði Rafskinnu í Vintage á morgun. Fatabúðin Vintage hóf starfsemi sína sem uppboðsverslun með notuð föt á Myspace, en þegar salan fór að aukast flutti búðin í húsnæði á Laugavegi 25. Þar voru dótabúðirnar Leikbær og Liver- pool áður til húsa. Til jóla heldur Kimi-útgáfan tónleika í búðinni og býður upp á geisladiska á jákvæðu verði. Þegar hafa Reykjavík!, Morðingjarnir og Hellvar spilað í búðinni en í dag kl. 17.30 er komið að stuðboltun- um í FM Belfast. Á morgun kl. 18 standa Retro Stefson og sjónritið Rafskinna fyrir jólagleði. Á sunnudaginn kl. 18 er komið að hinni hugljúfu sveit Pikknikk, á mánudaginn verða Hjaltalín í búðinni kl. 20, en á Þorláksmessu kl. 18 ætlar Terrordisco að koma mannskapnum í sveittan jólafíl- ing. - drg Lifandi tón- list í Vintage HÖGNI Í HJALTALÍN Hljómsveitin vinsæla tekur þátt í gleðinni í Vintage á Lauga- vegi. „Við sögðum fólki ekki að skrifa meðvitað um ástandið,“ segir Anna Rakel Róbertsdóttir, nemandi á öðru ári í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, um verkefni sem hún vann með samnem- endum sínum í gær. „Við gerðum þetta í fyrra og fengum þá starfsfólk verslana á Laugaveginum til að teikna eitthvað úr umhverfi sínu á stuttum tíma og skrifa einhver hlý skilaboð. Núna var hugmyndin hins vegar að gera þjóðfélagskönnun á því hvað sé að gerast í huga fólks ómeðvitað og fengum til þess bæði starfsfólk og gangandi vegfarendur í miðbæn- um, því ég held að það sem er að gerast í þjóðfélag- inu sé ómeðvitað til staðar í huganum á okkur,“ útskýrir Anna Rakel. „Við gerðum þetta allt á einum degi. Byrjuðum að gera auglýsinga-„flyera“ klukkan níu um morgun- inn, fórum svo niður í bæ og fengum fólk til að teikna og skrifa á blöð. Þegar við vorum komin með nógu mikið skönnuðum við þetta inn og bjuggum til veggspjöld sem við fórum með í prentun hjá Pixel, sem styrktu okkur núna og í fyrra. Sýning á þeim hófst svo klukkan 20 á Prikinu í gær svo fólk gat séð afraksturinn strax í lok dags,“ bætir hún við. „Við gáfum sýningargestum einnig tækifæri til að tjá sig með því að skrifa póstkort til ríkis stjórnar- innar, Davíðs eða hvers sem það vildi, sem við ætlum svo að keyra út til viðkomandi. Þetta eru þögul mótmæli og þeir sem fá kort geta þá setið í rólegheitum og lesið hvað við í þjóðfélaginu höfum að segja,“ segir Anna Rakel. - ag Fengu fólk til að tjá sig SKRIFAÐ OG TEIKNAÐ Anna Rakel og samnemendur hennar fengu starfsfólk og gangandi vegfarendur í miðbænum til að tjá líðan sína í máli og myndum sem sýndar voru á Prikinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Guðjón Heiðar Valgarðsson henti snjóbolta í Jón Ásgeir Jóhannesson fyrir utan 101 Hótel á miðvikudaginn. Heimasíðan hans logaði í athugasemdum í kjölfarið, annaðhvort á þá leið að hann væri hetja eða skúrkur. „Strákurinn er búinn að vera akt- ífur í mótmælunum sem mér finnst bara hið besta mál,“ segir pabbi hans, Valgarður Guðjóns- son, Valli í Fræbbblunum. „Mér finnst hann reyndar hafa sett stóru tána aðeins yfir strikið með snjóboltakastinu því hann hefur ekki hent neinu fyrr. Bara staðið til hliðar og látið heyra í sér. Ég vil endilega að hann haldi því áfram, án þess þó að grípa til ofbeldis, hversu lítið sem það er.“ „Mér datt nú aldrei í hug að það yrði gert svona mikið mál út af þessu,“ segir Guðjón. „Þetta var nú ekki þannig að ég hafi legið í leyni með helfrosinn snjóbolta. Ég spurði Jón bara hvort hann stæði á bak við ritskoðun í DV og þegar hann labbaði í burtu án þess að virða mig viðlits greip ég snjó af götunni og henti í hann. Ég lít ekki á þetta sem ofbeldi, miklu frekar sem háðsádeilu, og fólk má alveg kalla hana barnalega ef það vill. Ég vil ekki að fólk setji alla mót- mælendur undir einn hatt. Slíkt byggir á sömu rökvillu og rasismi. Ég hlýt að mega mótmæla á minn hátt án þess að allir mótmælendur á Íslandi séu dæmir af því.“ Guðjón hefur skrifað bókina The Bible for a New World Order og bendir þar á ýmsar lausnir. Hann segist ekki sjá hvenær tíma- bært verður að hætta mótmælun- um. „Það er langur listinn af því sem þarf að gerast, en þeir sem klúðruðu málunum þurfa að minnsta kosti að stíga niður.“ Þótt pabbi Guðjóns hafi sjokk- erað suma samborgara sína með Fræbbblunum í byrjun níunda áratugarins henti hann aldrei snjó- bolta í Albert Guðmundsson. „Það er rétt, ég var aldrei í svona,“ segir Valli. „Við Guðjón erum oft ósammála, en eins og ég segi; mér finnst gott að hann láti heyra í sér. Ég hef sjálfur margoft mætt niður á Austurvöll, enda gengur mikið á þessa dagana. Fólk sem hingað til hefur ekki tjáð sig um þjóð- félagsmál er byrjað á því. Það er mikil óánægja og reiði í loftinu.“ drgunni@frettabladid.is Pönkið gengur í erfðir PABBI ER ÁNÆGÐUR Guðjón Heiðar, hér að neðan, spilar rokk með hljómsveitinni Palindrome og hefur troðið upp með Fræbbblunum. Pabbi hans er Valli í Fræbbblunum sem er hér að ofan. Jón Ásgeir Jóhannesson, til vinstri, varð fyrir snjóbolta Guðjóns Heiðars á miðvikudaginn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.