Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 94

Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 94
70 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 NÝJU JÓLASVEINARNIR LÁRÉTT 2. þus, 6. kusk, 8. fiskur, 9. gerast, 11. yfirlið, 12. sjúga, 14. sundl, 16. tveir eins, 17. landspilda, 18. í viðbót, 20. í röð, 21. murra. LÓÐRÉTT 1. fyrst fædd, 3. samþykki, 4. aldaskil, 5. slagbrandur, 7. galli, 10. skammstöfun, 13. að, 15. innyfli, 16. efni, 19. íþróttafélag. LAUSN LÁRÉTT: 2. fjas, 6. ló, 8. áll, 9. ske, 11. dá, 12. totta, 14. svimi, 16. tt, 17. lóð, 18. auk, 20. tu, 21. urra. LÓÐRÉTT: 1. elst, 3. já, 4. aldamót, 5. slá, 7. ókostur, 10. etv, 13. til, 15. iður, 16. tau, 19. kr. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 300 greinar. 2 75 þúsund krónur. 3 Nancy. „Ég kaupi ekkert glænýjan Land Cruiser þótt það komi fínir dómar um bókina mína í Bretlandi,“ segir Arnaldur Indriðason rithöfundur. Bók hans, Vetrarborgin, hefur fengið blússandi góða dóma í bresk- um fjölmiðlum að undanförnu. Þessi viðbrögð eru líkleg til þess að auka enn frekar á sölu Arnaldar í Bretlandi en hann vildi lítið tjá sig um hvort milljónirnar streymdu ekki bara beint í vasann. „Þetta er bara mjög misjafnt. Ég hef gert góða samninga en auðvitað veltur þetta á því hvernig salan gengur,“ segir Arnaldur en Bretland hefur hingað til verið óplægður akur hjá þessum vinsælasta rithöfundi landsins. Joan Smith, gagnrýnandi Sunday Times, hrósar Arnaldi í hástert og segir Vetrarborgina koma fyllilega til greina sem ein eftirminnilegasta glæpasaga ársins. „Vetrarborgin er alls ekki auðveld aflestrar en sá mannlegi breyskleiki og innsæi sem umlykja hana gera bókina að einni eftirminnilegustu glæpasögu ársins,“ skrifar Smith. Aðrir bókagagnrýnendur taka í sama streng og þannig var Vetrar- borgin bók vikunnar hjá Daily Mir- ror. „Hvað er þetta með alla þessa Norðurlandabúa? Í áraraðir hafa þeir framleitt glæpasögur í hæsta gæðaflokki. Engu síður stendur einn maður algjörlega upp úr í þessu flóði vegna þess að hann hefur einstakt skynbragð á trú- verðuga framvindu og áreynslulitl- ar og einfaldar lausnir. Hann er Arnaldur Indriðason og er einhver skærasta stjarnan á alþjóðlegum glæpasagnamarkaði,“ skrifar gagn- rýnandi Mirror, Henry Sutton. Arnaldur segir að auðvitað sé gaman að fá góða dóma í erlendum fjölmiðlum. Fyrir hann skipti þó mestu máli hvað íslenskum lesend- um finnist. „Ég er ekkert að fara að flytja til Bretlands og hamra ein- hver heit járn. Ég mun áfram skrifa fyrir Ísland og Íslendinga enda hafa þeir tekið mér best allra.“ Og það er ekki ofsögum sagt að Íslend- ingar kunni vel að meta Arnald. Nýjasta bókin hans, Myrká, hefur selst í bílförmum og situr á toppi bóksölulista. Jóhann Páll Valdi- marsson útgefandi vildi ekki gefa upp hversu margar bækur hefðu selst. Hann staðfesti þó að þeir hafi pantað aðra prentun. Nokkrum þús- undum eintaka verður því bætt við þau þrjátíu þúsund sem þegar höfðu verið prentuð. Þar með slær Arnaldur eigið met sem sett var í fyrra. freyrgigja@frettabladid.is ARNALDUR INDRIÐASON: ÁLIT ÍSLENDINGA SKIPTIR MESTU MÁLI Breskir fjölmiðlar hefja Arnald upp til skýjanna BESTUR Á SÍNU SVIÐI Breskir bókagagnrýnendur halda vart vatni yfir bók Arnaldar Indriðasonar, Vetrarborginni. Hún var bók vikunnar hjá Mirror og Sunday Times sagði hana eina af bestu glæpasögum ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Þetta hefur ekki verið gert áður í áætlunarflugi,“ segir Sigríður Klingenberg spákona sem sló heimsmet síðastliðinn fimmtudag þegar hún spáði fyrir 198 manns í 37.000 feta hæð í flugi Iceland Express, til og frá Kaupmanna- höfn. „Ég kynnti mig í hátalarakerfið áður en ég byrjaði og þetta vakti þvílíka kátínu hjá fólki. Ég var með spilin mín og fólk fékk að eiga spil- ið sem það dró eftir að ég hafði spáð fyrir því. Ég áritaði svo sjálfs- hjálpardiskinn minn, Þú ert frábær, og skrifaði mismunandi álagaljóð á hvern disk. Ég spáði fyrir öllum farþegunum, nema þeim sem voru sofandi en sendi þeim bara hugar- spá. Ætli maður hafi ekki verið tengdari almættinu en ella þarna í háloftunum,“ segir Sigríður og hlær, en verið er að skrá metið í Heimsmetabók Guinness. „Þetta voru 98 Íslendingar og 100 Danir sem voru flestir að koma til þess að versla á Íslandi,“ bætir hún við. Aðspurð segist hún hafa verið mjög þreytt eftir flugið. „Ég var svo búin á því eftir þetta að það munaði minstu að ég labbaði inn á geðdeild og léti skrá mig inn,“ segir Sigríður brosandi. „Þetta mæltist svo vel fyrir að ég ætla að vera með áramótaspá í öðru flugi Iceland Express, en ég ætla samt ekki að reyna að slá mitt eigið heimsmet.“ - ag Klingenberg slær heimsmet SPÁÐI FYRIR 198 MANNS Farþegar Iceland Express tóku vel í spádóm frá Sigríði Klingenberg sem sló heimsmet í 37.000 feta hæð. Þótt svo virðist sem mönnum hafi tekist, einu sinni sem oftar, að blása upp mál og úr samhengi með stóra ritskoðunarmáli Símonar Birgissonar, hrjóta í látunum ýmsir athyglisverðir molar af borðum. Þannig vita menn nú að Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri, er mikill áhugamaður um kappakstur og upplýsir á síðu sinni að hann hafi aðeins einu sinni rætt við Jón Ásgeir Jóhannesson meðan hann átti DV, að frum- kvæði Jónasar og þá um þetta sameig- inlega áhugamál þeirra. Nú er skorið niður víða í menn- ingunni og Reykjavíkurborg hefur ákveðið að draga til baka fimmtíu milljónir af þeim sem renna eiga og áttu til reksturs Borgarleik- hússins. Ljóst er að þetta mun setja Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóra út í horn því hann hefur lagt upp fyrsta ár sitt af miklum metnaði; svo miklum að ekkert svigrúm er og lítils hagnaðar var fyrir að vænta miðað við kostnað við uppsetningar sýninga. Ný stjórn SÍK, en nýr formaður þar er Ari Kristinsson sem tekur við af Baltasar Kormáki, hvetur til aukinnar innlendrar framleiðslu í kjölfar auglýsingatakmarkana Ríkisútvarpsins. Stjórnin sér ýmis sóknarfæri í tengslum við það og möguleika í að rekstur einkarek- inna miðla gangi betur. Þetta er í fullkominni andstöðu við það sem Björn Brynjúlfur Björnsson, formaður ÍKSA, hefur sagt í greinum í fjölmiðlum en hann sér ekkert nema meinbugina eina á því að RÚV séu settar einhverjar skorður í sókn sinni inn á auglýsinga- markaðinn. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI „Þetta eru heiðursverðlaun sem njóta virðingar. Enda ekki hlaupið á eftir tísku- straumum heldur horft til framlags höfunda til langs tíma; ég held að sérstaða þessarar viðurkenningar sé ótvíræð,“ segir Eiríkur Guðmundsson útvarpsmaður. Í dag veitir Rithöfundasjóður Ríkis- útvarpsins einhverjum úr stétt rithöfunda heiðursverðlaun og fimm hundruð þúsund krónur. Oft kemur á óvart hver hlýtur verðlaunin vegna þess að þau miðast ekki við hver er mest áberandi hverju sinni eða að nýjustu bækur séu undir. Síðast fékk Kristín Steinsdóttir verðlaunin, þá Jón Kalman Stefánsson. Árið 2005 hlaut Bragi Ólafsson verðlaunin, þá Óskar Árni og svo komu Einararnir Kárason og Guðmunds- son. Listinn er langur því verðlaunin hafa verið við lýði í rúma hálfa öld eða allt frá árinu 1956. „Þetta verður mjög formleg athöfn,“ segir Eiríkur og áréttar að henni verður útvarpað í þættinum Víðsjá klukkan fimm. Forseti lýðveldisins verður á staðnum „þannig að þetta verður settlegt,“ og hlustar á ávart Skafta Þ. Halldórssonar sem er formaður stjórnar sjóðsins en þar sitja fimm; tveir skipaðir af RÚV, tveir frá Rithöfundasam- bandinu og einn skipaður af menntamála- ráðherra. Eiríkur harðneitar að gefa nöfn sem til greina koma. „Tekið er með í reikninginn hversu samstarf við útvarpið hefur verið þannig að höfundar sem hafa verið hér að lesa mikið upp eða hafa jafnvel komið að dag- skrárgerð er tekið með í reikninginn. En í grunninn er þetta viðurkenning fyrir framlag til bókmenntanna,“ segir Eiríkur sem, ef af líkum lætur, fór með jakkafötin í hreinsun í tilefni dagsins. - jbg Rithöfundur fær hálfa milljón frá RÚV EIRÍKUR GUÐMUNDSSON Er ekki frá því að þessi verð- laun njóti meiri virðingar en Gullmiði útgefenda enda um hálfrar aldar fyrirbæri að ræða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sigurjón, sá áttundi, Landsbankakóngurinn. Icesave-dæmið var tær snilld og aurinn dælist inn. Snilldin reyndist eintómt plat og þegar kreppti að, hann Grjóni gerðist ráðgjafi: Ábyrgð? – Hvað er það? Bækur frá Forlaginu Anna Á. Khan Hjartard. Háaleitisbraut 54 Anna Dís Bjarnadóttir Heinaberg 8 Birgitta Guðjónsdóttir Hafnarbyggð 5 Erla Björg Garðarsd. Furuvellir 27 Ernst Kettler Keilufell 18 Geir Gestsson Hjallar 20 Ingibjörg Heiðarsdóttir Hríseyjargata 15 Kristinn Kristjánsson Engjavegur 29 Ragnheiður Hjarðar Sporhamrar 8 Jólaleikurfréttablaðsins Sóley Sturludóttir Holtateigur 1 Vesna Danielsson Eskiholt 23 Wioletta Mazota Lágholti 1 Bíókort frá Sambíóunum Árdís Ýr Pétursdóttir Ásbúð 72 Bergvin F. Gunnarsson Furulundur 4d Gunnar Þ Jónsson Hjarðarholt 7 Hafsteinn Jónsson Krókabyggð 17 Heimir Hauksson Stekkjaflöt 5 Hermann Gunnlaugsson Brattakinn 17 Hildur Björk Yeoman Sigtún 39 Hildur Gísladóttir Klausturhvammur 15 Hrönn Jónsdóttir Prestsæti 3 Jóhanna A. Jóhannesdóttir Sólvellir 8 Jón Helgi Ingimarsson Norðurtún 9 Trond Are Schelander Akrasel 6 Gjafakort frá Þjóðleikhúsinu Guðleifur Kristjánsson Iðnbúð 3 Hörður Einarsson Eyrarholt 4 Taktu þátt á visir.is Vinningshafar Vinninga skal nálgast í móttöku Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24. Opið alla virka daga frá klukkan 8-17.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.