Fréttablaðið - 23.12.2008, Síða 20
20 23. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Adolf Óskarsson
pípulagningameistari
Hrafnistu, Hafnarfirði,
sem andaðist mánudaginn 15. desember verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
29. desember.
Ásta Vigfúsdóttir
Hörður Adolfsson Nanna M. Guðmundsdóttir
Erla Adolfsdóttir Jóhann Pétur Andersen
Hilmar Adolfsson Ólöf S. Sigurðardóttir
Adolf Adolfsson Júlía Henningsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Guðmundur Líndal
Benediktsson
Neðri-Hundadal,
lést laugardaginn 20. desember á Landspítalanum.
Útför fer fram frá Kvennabrekkukirkju, Dalasýslu,
þriðudaginn 30. desember kl. 14.00.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11E fyrir
alúðlega umönnun og hlýju.
María G. Líndal og fjölskylda,
Svana Guðmundsdóttir og fjölskylda.
Móðir okkar,
Sigurlaug Ingunn
Sveinsdóttir
frá Hrauni, Glerárþorpi,
lést á dvalarheimilinu Kjarnalundi 21. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jóna Sigurðardóttir
Helga Sigurðardóttir
Kristján Sigurðsson
Sigrún Sigurðardóttir
Kolbrún Sigurðardóttir
Heiða Rósa Sigurðardóttir
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
Grímur Ársælsson,
Suðurbraut 16, Hafnarfirði,
var jarðsettur í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum samúð og vinarhug.
Maggý Ársælsdóttir,
Erla Ársælsdóttir,
Ragnar Gíslason,
og frændsystkini.
Ástkær eiginkona mín, móðir, systir og
mágkona,
Hanna Edda Halldórsdóttir
Hvassaleiti 157, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudag-
inn 21. desember.
Jón Egill Sveinbjörnsson
Hanna Dóra Ólafsdóttir
Gunnar Halldórsson Svenný Hallbjörnsdóttir
Páll Einar Halldórsson Bára Melberg Sigurgísladóttir
Gyða S. Halldórsdóttir Sigurjón Bjarnason
Margrét Pálmadóttir Hreinn Mýrdal Björnsson
og aðrir vandamenn.
Hornsteinn var lagð-
ur að Þjóðarbók-
hlöðunni í Reykja-
vík þennan dag árið
1981. Bygging húss-
ins tók hins vegar
nokkuð langan tíma,
eða um fimmtán
ár. Byggingarsjóður
Þjóðarbókhlöðunn-
ar var fjársveltur og
þótt sérstakur skatt-
ur hafi verið lagður
á í nafni byggingar-
innar þá skiluðu þeir peningar sér ekki í sjálfa
framkvæmdina.
Byggingin var loks opnuð almenningi 1.
desember árið 1994 og á sama tíma var Lands-
bókasafn Íslands-Háskólabókasafn opnað eftir
sameiningu Lands-
bókasafns Íslands
og Háskólabóka-
safns.
Aðalstarfsemi
safnsins fer fram
í Þjóðarbókhlöð-
unni. Safnið hefur
einnig yfir öðru
húsnæði að ráða
til geymslu gagna.
Að auki rekur það
útibú í nokkrum
byggingum Há-
skóla Íslands. Helstu verkefni safnsins eru að
varðveita handritasöfn og halda uppi bóka-
safns- og upplýsingaþjónustu í þágu atvinnu-
vega, stjórnsýslu og rannsókna svo fátt eitt sé
nefnt.
ÞETTA GERÐIST: 23. DESEMBER 1981
Hornsteinn lagður að Þjóðarbókhlöðu
MERKISATBURÐIR
1193 Þorlákur Þórhallsson bisk-
up í Skálholti deyr, sex-
tugur að aldri. Helgi hans
var lögtekin á Alþingi
hinn 29. júní 1198 en ári
síðar var ákveðið að 23.
desember skyldi verða
messudagur hans.
1956 Richard Nixon, þáverandi
varaforseti Bandaríkjanna,
heimsækir Ísland og hittir
Ásgeir Ásgeirsson forseta
á Bessastöðum.
1958 Ríkisstjórn Alþýðuflokks-
ins tekur við völdum. Hún
situr í ellefu mánuði undir
forsæti Emils Jónssonar.
1968 Til átaka kemur í Reykja-
vík milli lögreglu og fólks
sem mótmælir þátttöku
Bandaríkjamanna í Víet-
namstríðinu. Atburðurinn
er nefndur Þorláksmessu-
slagurinn.
AFMÆLI
EDDIE
VEDDER,
söngvari
Pearl Jam,
er 44 ára í
dag.
CARLA
BRUNI,
forsetafrú
Frakklands,
er 41 árs í
dag.
JÓNÍNA
BJARTMARZ
lögfræðing-
ur er 56 ára
í dag.
ÓLI TYNES
fréttamaður
er 64 ára í
dag.
Haukur Ingi Jónasson, lektor í stjórnun-
arfræðum við verkfræðideild Háskóla
Íslands, hóf nýverið nýliðaþjálfun hjá
Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur en það
telst til nokkurra tíðinda að langskóla-
genginn maður á miðjum aldri taki upp
á því. Blaðamaður tók Hauk Inga tali og
spurði hvað hefði orðið til þess að hann
ákvað að leggja fram krafta sína í sjálf-
boðavinnu í almannaþágu?
„Þetta hefur lengi verið draumur
hjá mér en ég er búinn að vera í fjalla-
mennsku í mörg ár og hef lengi verið fé-
lagi í Ferðafélagi Íslands,“ segir Hauk-
ur Ingi sem er með þrjár mastersgráð-
ur, doktorspróf og hefur mikla reynslu
af meðferðarvinnu, bæði sem sálgrein-
ir og sjúkrahúsprestur. „Ég valdi flug-
björgunarsveitina af því að ég þekki
nokkra félagsmenn sem allir eru góðir
ferðafélagar og flinkir fjallamenn. Mig
langaði til að feta í fótspor þeirra,“ segir
Haukur Ingi en áréttar að hann sé ein-
göngu í þjálfun og verði ekki fullgild-
ur meðlimur fyrr en að tæpum tveimur
árum liðnum, gangi þjálfunin að óskum.
„Síðan spilaði það líka inn í að aldurs-
dreifingin í nýliðahópnum er talsverð,
þótt ég sé langelstur,“ segir Haukur
Ingi, sem er 42 ára.
Flugbjörgunarsveitin er sérhæfð
fjallabjörgunarsveit sem tekur einnig
að sér aðkomu að flugslysum og starfar
með rannsóknarnefnd flugslysa. Hauk-
ur Ingi segir það koma sér sérstaklega
á óvart hversu umfangsmikil starfsemi
sveitarinnar og annarra björgunar-
sveita er og hversu mikill metnaður og
fagmennska sé við lýði.
„Ég verð í stífri þjálfun næstu tvö
árin, sit fjölda námskeiða ásamt því að
fara í ferðir aðra hverja helgi. Nú eru
vetrarferðirnar í gangi og gistum við í
snjóhúsum og uppi á heiðum við hinar
ýmsu aðstæður. Þá kemur allur tækni-
búnaður sveitanna einnig á óvart en
í bílunum eru heilu tré- og járnsmíða-
verkstæðin. Fólk slær heldur ekkert
af og heldur sér í góðu formi allan árs-
ins hring, hleypur sex til tíu kílómetra
tvisvar í viku, gerir uppsetur og arm-
beygjur til þess að vera við því búið að
rjúka upp á miðjan Fimmvörðuháls, inn
á miðhálendi, upp á jökul eða út á Kefla-
víkurflugvöll gerist þess þörf.“
Haukur Ingi segir gaman að verða
vitni að því hversu mikill einhugur
og vinátta ríki á meðal félaga. Hingað
koma gamlir félagar, lávarðarnir svo-
kallaðir, segja sögur og skrafa saman.
Sjálfboðaliðar afla svo björgunarsveit-
unum tekna með jólatrés- og flugelda-
sölu í desember en upplýsingar um út-
sölustaði má finna á heimasíðu sveitar-
innar www.fbsr.is.
vera@frettabladid.is
HAUKUR INGI JÓNASSON: ELSTUR Í NÝLIÐAÞJÁLFUN FLUGBJÖRGUNARSVEITARINNAR
FETAR Í FÓTSPOR GÓÐRA FÉLAGA
LÉT DRAUMINN RÆTAST Haukur Ingi leggur hönd á plóg við fjáröflun Flugbjörgunarsveitarinnar og selur bæði jólatré og flugelda í húsakynnum
hennar á Flugvallarvegi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JODIE MARSH ER ÞRÍTUG Í DAG.
„Ég er metsöluhöfundur auk
þess að vera kynnir í sjón-
varpi, fyrirsæta, leikkona
og sendiherra sjö góðgerða-
stofnana. En öllum virðist
standa á sama um hið síð-
astnefnda. Hvorki fleiri né
færri en sjö sagði ég.“
Jodie Marsh er ýmislegt til lista
lagt en er þó þekktust fyrir fyr-
irsætustörf í heimalandi sínu
Englandi.