Fréttablaðið - 23.12.2008, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2008 3
„Þetta hefur bara slegið í gegn,“
segir Lárus Guðmundsson, einn
eigenda veitingastaðarins Scand-
inavian, sem var opnaður á Lauga-
vegi 1. desember síðastliðinn.
„Þetta er ekta skandinavískur
staður þar sem við leggjum mikla
áherslu á danskt smurbrauð,“
segir Lárus, en þessa dagana er
einnig í boði sérstakur jólaplatti
með blöndu af alls kyns kræsing-
um. Þar má nefna purusteik, síld,
osta, jólaskinku og ál. Lærðar
smurbrauðsdömur sjá um smur-
brauðið og matreiðslumeistarar
um annan mat. „Við bjóðum einn-
ig upp á salöt og brauð sem ekki
er týpískt danskt. Síðan erum við
alltaf með uppi á krítartöflu
nokkra rétti dagsins,“ segir hann.
Hugmyndin að staðnum kvikn-
aði hjá Lárusi sem hefur verið
mikið í Kaupmannahöfn og víðar
í Skandinavíu. „Mér fannst vanta
kósí, vinalegan stað í þessum
anda,“ segir hann og álítur að við-
tökurnar hafi verið frábærar.
„Það er fullt að gera frá opnun til
loka,“ segir Lárus, sem telur að
góðir, vinalegir staðir sem bjóði
upp á spennandi mat með verð-
lagi fyrir alla muni ávallt standa
fyrir sínu.
solveig@frettabladid.is
Alls kyns kræsingar eru á jólaplattanum.Veitingastaðurinn Scandinavian leggur áherslu á smurbrauð en þar má einnig fá
annars konar skandinavískan mat. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Smurbrauð og purusteik
Scandinavian heitir nýr veitingastaður á Laugavegi 24. Þar er lögð áhersla á danskt smurbrauð og aðra
skandinavíska rétti. Viðtökurnar hafa verið frábærar að sögn eins eigendanna.
Það vekur sanna jóla-
stemningu að gæða
sér á smurbrauði,
puru steik og alls konar
kræsingum.
www.tskoli.is
Diplómanám
• Almenn lína í rekstri og stjórnun (45 ein.)
• Útvegsrekstrarfræði (45 ein.)
• Flugrekstrarfræði (45 ein.)
• Rekstrarfræði (60 ein.)
Nánari upplýsingar um nám á háskólastigi
í s. 514 9601 eða á ave@tskoli.is