Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2008, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 23.12.2008, Qupperneq 46
30 23. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR folk@frettabladid.is Nýjasta gamanmynd Jims Carrey, Yes Man, fór beint í efsta sæti norður-ameríska aðsóknar- listans um síðustu helgi. Myndin fjallar um mann sem ákveður að umturna lífi sínu með því að segja „já“ við öllu. Næstvinsælasta myndin var Seven Pounds með Will Smith í aðalhlutverki. Hún aflaði sextán milljóna dollara, sem er lélegasti árangur nýrrar myndar frá Smith í sjö ár. Kenna má stórhríð, sem gekk yfir norðaustur Bandaríkin um helgina, um hluta af óförunum. Þriðja vinsælasta myndin var The Wrestler með Mickey Rourke í aðalhlutverki. Hefur hún fengið mjög góða dóma og þykir Rourke líklegur til að verða tilefndur til Óskarverð- launa. Carrey beint á toppinn Brian Johnson, söngvari AC/DC, hefur ákveðið að rita endurminn- ingar sínar. Nýverið undirrit- aði hann samning við bókaforlagið Penguin Book um útgáfu á þeim. Hann segir að bókin muni ekki fjalla eingöngu um rokk og ról- lífstílinn með AC/DC. „Ég er hrifinn af góðum húmor og bílar hafa einnig verið stór hluti af mínu lífi,“ sagði hann. „Ég er svo heppinn að ég hef getað keypt suma af þeim sjaldgæfustu. Í staðinn fyrir að taka inn eiturlyf einbeitti ég mér að bílum. Ég er heldur ekki viss um hvort er dýrara.“ Gefur út ævisögu sínaListamaðurinn Jón Sæmundur Auðarson hefur gefið út nýtt lag, Dead Mantra, og gert myndband við það. Stefnir hann á útgáfu sinnar fyrstu plötu á næsta ári undir hljómsveitarnafninu Buddha christ. „Þetta var alltaf draumur hjá manni þegar maður var lítill,“ segir Jón. „Ég byrjaði í fyrra í kringum Brian Jonestown Massacre-dæmið þegar ég söng eitt lag inn á disk með þeim. Það má segja að það hafi kveikt í mér,“ segir Jón, sem söng einnig með sveitinni á Glastonbury- hátíðinni í Bretlandi og á tónleik- um í New York. Honum til aðstoðar í Dead Mantra er Henrik Björnsson, söngvari Singapore Sling, auk þess sem félagar hans úr banda- rísku hljómsveitinni Sunsplit koma við sögu. Einnig notast hann við barkasöng frá Tíbet. Texti lagsins er einfaldur, þar sem konsept-setning Jóns er í fyrirrúmi: „Sá sem óttast dauð- ann kann ekki að njóta lífsins.“ Er hún bæði sungin á íslensku og þýsku. Jón vildi einnig að græn- lensk útgáfa af textanum kæmi við sögu en varð ekki að ósk sinni. „Þeir þýddu þetta en þetta var á skjön við þeirra trúarbrögð og þeir vildu ekki syngja þetta,“ segir hann. Einnig má geta þess að lagið er hluti af verki Jóns í Listasafni Reykjavíkur. Nýja platan verður ekki tekin upp í hefðbundnu hljóðveri held- ur í myndlistarstúdíói Jóns sem er skreytt með beinum og haus- kúpum frá Tíbet. „Það er galdur í loftinu. Fólk sem kemur og aðstoðar mig við gerð plötunnar fer inn á vissa tíðni og svo er ég tónlistarstjórnandinn,“ segir hann. - fb Undirbýr sína fyrstu plötu JÓN SÆMUNDUR Jón hefur gefið út nýtt lag sem kallast Dead Mantra. Stefnir hann á útgáfu sinnar fyrstu plötu á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ég flutti út sumarið 2007 til að læra fatahönnun í Margrethe-hönnunarskólan- um í Kaupmannahöfn,“ segir Andrea Magnúsdóttir sem hefur opnað sína eigin vefverslun á síðunni andrea.is, þar sem hún selur bæði fatnað og fylgihluti sem hún hannar. „Ég er alltaf að sauma eitthvað og fékk margar fyrirspurnir um hvar ég væri að selja svo ég ákvað bara að kýla á þetta. Planið var alltaf að vinna undirbúnings- vinnu á meðan ég væri í skóla og vinna svo hjá sjálfri mér eftir útskrift,“ segir Andrea sem hefur setið stíft við sauma- skap upp á síðkastið. „Ég gerði alls kyns tilraunir með að láta sauma fyrir mig víðs vegar um heiminn svo sumt á síðunni er framleitt úti. Þegar kreppan kom breyttust hins vegar allar forsendur og þá þurfti maður bara að gera eins og í gamla daga og sauma sjálfur,“ útskýrir Andrea. „Eins og staðan er núna langar mig að koma heim eftir jól og opna saumastofu. Akkúrat núna væri það mjög spennandi kostur, því á einni nóttu breyttist það frá því að vera dýrasti kosturinn yfir í að vera sá hagkvæmasti. Mig langar líka rosalega að geta boðið Íslendingum upp á íslenska hönnun á viðráðanlegu verði,“ bætir hún við. Andrea verður í snyrti- vöruversluninni Andorru á Strandgötu í Hafnarfirði í dag milli 16 og 22, þar sem fólki gefst tækifæri til að máta og prófa það sem fæst í verslun hennar á andrea.is. - ag Andrea opnar eigin vefverslun FLINK Í HÖNDUNUM Andrea hannar og saumar sjálf bæði föt og fylgihluti sem hún selur í vef- verslun sinni á andrea.is. > RIHANNA BEST KLÆDD Lesendur heimasíðunnar Entertainmentwise. com hafa kosið söngkonuna Rihanna best klæddu stjörnu ársins. Auk þess að hafa góðan tónlistarsmekk kann Rihanna einn- ig þá list að velja á sig föt og virðist allt ganga upp sem hún klæðir sig í. Fótbolta- töffarinn David Beckham komst í annað sætið og hjartaknúsarinn Brad Pitt endaði í því þriðja. Aðrir sem kom- ust ofarlega á listann voru Suri Cruise, dóttir Toms Cruise og Katie Holmes, og söngkonan Beyoncé Knowles. BRIAN JOHNSON Klæddu þig vel Höfuðborgarsvæðið: Bankastræti 5, Faxafen 12, Kringlan, Smáralind, Miðhraun 11 Akureyri: Glerártorg Kefl avík: Leifsstöð og söluaðilar um land allt www.66north.is Þú mátt vera lengur úti í 66°Norður.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.