Fréttablaðið - 29.01.2009, Page 10
10 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
LÖGGÆSLUMÁL Lögreglumanni
sem dæmdur var í desember til
greiðslu sektar og miskabóta
fyrir líkamsárás í 10-11 verslun
í Grímsbæ verður ekki vikið úr
starfi hjá lögreglu.
Maðurinn var í Héraðsdómi
Reykjavíkur dæmdur í 120 þús-
unda króna sekt í desember fyrir
að hafa veist að pilti í versluninni
eftir að til orðaskaks hafði komið.
Honum var jafnframt gert að
greiða piltinum 60 þúsund krón-
ur í miskabætur.
Dómnum verður ekki áfrýjað til
Hæstaréttar, samkvæmt upplýs-
ingum frá embætti ríkissaksókn-
ara. Þá gerði lögmaður lögreglu-
mannsins ekki ráð fyrir áfrýjun
sektardóms Héraðsdóms.
Í svari embættis ríkislögreglu-
stjóra til blaðsins varðandi málið
segir að það hafi verið álit lög-
fræðinga að ekki væru nægar
forsendur til að leysa embætt-
ismanninn frá embætti vegna
sektardóms undirréttar.
„Í því sambandi var meðal
annars litið til fordæma,“ segir í
svarinu. - jss
Dómi héraðsdóms ekki áfrýjað til Hæstaréttar:
10-11 lögreglumað-
urinn starfar áfram
VERÐUR ÁFRAM VIÐ STÖRF Lögreglumaðurinn var dæmdur til greiðslu sekta og
miskabóta fyrir líkamsárás í 10-11 verslun í Grímsbæ. Honum verður ekki vikið úr
starfi.
Ræða Davíðs Oddssonar á ársfundi Seðla-
bankans 28. mars 2008:
1. Þrátt fyrir það andstreymi sem víða
sést, ekki síst í tengslum við hina alþjóð-
legu fjármálamarkaði og þau miklu áhrif
sem það kann að hafa á svipaða starf-
semi hér, þá er ekki endilega líklegt að
íslenska þjóðin sé að sigla inn í kreppu.
Miklu líklegra er að nú hægi nokkuð á
og í versta falli tökum við nokkra dýfu,
sem ætti þó ekki að þurfa að standa lengi.
Það höfum við gert fyrr og hrist fljótt af
okkur áhrifin af því, enda hefur íslenskt
þjóðfélag jafnan sýnt mikla aðlögunar-
hæfni. Nokkuð ljóst er að jafnvægi verð-
ur ekki komið á í þjóðarbúskapnum nema
með samdrætti í eftirspurn . ... En hitt er
rétt að hafa í huga, að ef menn draga það
að laga sig að aðstæðum og rifa seglin, þá
er ekki ómögulegt að tiltölulega lítil dýfa
geti breyst úr því fyrirbæri í eitthvað sem
kalla mætti kreppu.
Staðreynd: Ísland er statt í dýpstu efna-
hagslægð sem riðið hefur yfir vestrænt
ríki. Lítið sem ekkert var gert til að rifa
seglin með þeim afleiðingum að of seint
var að grípa inn í þegar ljóst var hversu
staðan var alvarleg.
Mbl. 11. apríl 2008:
2. Þegar bankar voru einkavæddir og
seldir var ríkisábyrgð ekki seld með, þeir
hefðu væntanlega verið seldir miklu dýr-
ara verði ef það hefði verið.“
Staðreynd: Í ljós kom að vegna ríkis-
ábyrgðar falla Icesave-reikningar Lands-
bankans og Edge-reikningar Kaupþings
á Ísland og þjóðin þarf að greiða. Alls er
talið að sú upphæð nemi 700 milljörðum
króna. Óvíst er hversu mikið fæst upp í þá
skuld við sölu eigna, en talið fullvíst að 150
milljarðar muni falla á almenning.
Lokaorð í áliti Seðlabanka Íslands úr ritinu
Fjármálastöðugleiki. Davíð Oddsson skrifar
undir sem formaður bankastjórnar 9. maí.
3. Á heildina litið er niðurstaða Seðlabank-
ans enn sú að fjármálakerfið sé í megin-
atriðum traust. Íslenska bankakerfið upp-
fyllir kröfur sem gerðar eru til þess og
stenst álagspróf sem Fjármálaeftirlitið og
Seðlabankinn hafa gert.
Staðreynd: Fimm mánuðum síðar voru
allir helstu bankar landsins fallnir.
Kastljósviðtal 7. október 2008:
4. Ísland er ekki að fara að bregðast skyld-
um sínum, ríkissjóður Íslands mun aldrei
lenda í vanskilum, þvert á móti þá er staða
hans að styrkjast. Um leið og menn átta
sig á þessu þá mun mat matsfyrirtækj-
anna á Íslandi sem slíku hækka, þá munu
CDS-álögin á ríkið falla með undrahraða
niður og þá mun gengið styrkjast. Menn
eru enn þá að halda að þetta séu vandræði
en við erum að taka þessa dálítið harka-
legu ákvörðun að segja; við ætlum ekki að
borga þessar erlendu skuldir bankanna.
Staðreynd: Ísland tapar alfarið trausti
alþjóðasamfélagsins vegna þeirra hug-
mynda að erlendar skuldir bankanna yrðu
ekki greiddar. Gengi krónunnar hefur verið
með þeim hætti að það er að sliga atvinnu-
líf og heimili í landinu. Fjármálaráðuneyt-
ið gerir ráð fyrir því að í árslok þessa árs
muni skuldir ríkissjóðs nema 413 milljörð-
um kr. umfram eignir. Hvað eignabreyting-
ar varðar vegur þyngst að sjóðurinn mun
tapa 220 milljörðum kr. vegna veðlána
þeirra sem sjóðurinn létti nýlega af Seðla-
bankanum.
5. … tiltölulega mjög fljótlega þá erum
við með ríki sem er skuldlaust eða skuld-
lítið í erlendum skuldum og við erum
skyndilega með þjóðarskuldir sem eru
orðnar sáralitlar og af því að gengið hefur
verið svona að þá hefur viðskiptahall-
inn meira og minna horfið, þannig að við
erum komnir með mjög fína og öfluga mót-
spyrnu …
Staðreynd: Skuldir Íslands eru metnar
á um 2.300 milljarða væru öll lán nýtt sem
vilyrði hafa verið gefin fyrir. Það er hins
vegar óvíst hvort til þess komi.
6. Þess vegna á fólk að hugsa til þess
að þó þetta sé erfitt um hríð þá erum við
miklu betur stödd núna eftir þetta allt
saman heldur en við vorum fyrir þrem-
ur vikum því þá héldu menn enn þá að
við ætluðum að burðast með allar þess-
ar skuldir. En nú höfum við tekið þá hörðu
ákvörðun að við ætlum ekki að láta þessar
erlendu skuldir falla á íslenskan almenn-
ing og það er sanngjörn leið.
Staðreynd: Ákvörðunin varð til þess að
öll vinaríki snerust gegn Íslandi. Erlendar
skuldir nema hundruðum milljarða.
7. Sem betur fer eru menn að fara þá
leið sem að við í Seðlabankanum vildum.
Við ætlum ekki að láta þessa kreppu lenda
með fullum þunga á íslenskum almenn-
ingi. Núna þurfum við auðvitað að koma
okkur í gegnum þetta. Við þurfum að haga
kjarasamningum þannig að það skapist ró
og Seðlabankinn geti farið að lækka vexti.
Það er orðið mikilvægt að við getum farið
að gera það. Og þar er samvinna við aðila
vinnumarkaðarins mikilvæg og um leið og
menn átta sig á þessu að við ætlum ekki að
setja þessa skuldaklafa á þjóðina, um leið
og matsfyrirtækin fara að átta sig á þessu
og erlendar lánastofnanir þá mun staða
Íslands gjörbreytast og gengið styrkjast.
Ég held að það þurfi ekkert mjög langan
tíma til þess.
Staðreynd: Stýrivextir eru 18 prósent,
þeir hæstu í sögunni. Samningar við aðila
vinnumarkaðarins eru meira og minna í
óvisssu og uppnámi. Lánalínur til Íslands
eru helfrosnar og svo verður enn um hríð
samkvæmt spám. Lánstraust ríkisins er
ekkert.
8. Við erum að ganga í gegnum smá tíma
að menn eru að átta sig á því, það sem ég
er að segja hérna, að við erum að draga úr
skulda hérna fargi þjóðarinnar en ekki að
auka það. Og það tekur tíma að síast inn
og um leið og það síast inn hægt og rólega
að þá mun gengismarkaðurinn lagast mjög
fljótt og vel.
Staðreynd: Nú er ljóst að efnahagsvand-
inn er svo djúpstæður að það mun taka
þjóðina mörg ár að vinna úr því.
9. Hvað eru menn að tala um hérna,
varðandi Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Það er
verið að tala um það að þá yrði ríkisstjórn-
in að óska eftir því að fara í svokallað pró-
gramm sem getur staðið í sex mánuði eða
tólf mánuði þar sem að Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn kemur hingað, tekur ráðin af
ríkisstjórninni varðandi fjárlög ríkisins
meira og minna … En þetta er notað yfir
ríki sem hafa orðið gjaldþrota. Íslenska
ríkið er ekki gjaldþrota, menn verða, sko
það eru bankarnir sem eru í vandræðum,
ekki íslenska ríkið í rauninni.
Staðreynd: Fjörutíu dögum eftir að við-
talið var tekið óskuðu íslensk stjórnvöld
eftir aðstoð AGS eftir tilraunir til að kom-
ast hjá slíkri samvinnu. Þá var ljóst að
slíkt samstarf var forsenda þess að Ísland
yrði meðtekið í alþjóðasamfélaginu að nýju
og hefði möguleika á að fá nauðsynlega
lánafyrirgreiðslu.
Orð Davíðs og það sem svo gerðist
Ríkisstjórnarmyndun er langt komin og Fjármálaeftirlitið hefur verið leyst frá störfum. Dagar Davíðs Oddssonar sem seðlabanka-
stjóra eru senn taldir. Rétt er að rifja upp mat hans á efnahagslegri framtíð þjóðarinnar samanborið við atburðarás síðustu missera.
TÍMABÆRT AÐ
FARA? Davíð
hefur verið afar
umdeildur sem
seðlabankastjóri.