Fréttablaðið - 29.01.2009, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 29. janúar 2009 3
Meðan tískuhúsin leita leiða til að skera niður kostnað hefst tímabil tískusýninga
í París. En stemningin var ekki
beinlínis stórkostleg og kampa-
vínið flæddi heldur minna en
oft áður. Karl Lagerfeld segir
að bling bling tíminn sé lið-
inn, pallíettur og kristallar úti.
Næststærsta lúxussamsteypa
í heimi, Richemont (til dæmis
Cartier, Van Cleef & Arpels,
Baume & Mercier), ætlar að
stytta vinnuvikuna. Hjá Louis
Vuitton, svo annað dæmi sé
tekið, hefur verðið verið lækk-
að um sjö prósent í Japan til að
örva söluna sem hefur verið á
hraðri niðurleið. Hjá öðrum,
eins og Victor og Rolf og Paul
& Joe, hefur verðið einfaldlega
verið lækkað á öllum vörum.
En þrátt fyrir svartnættið
heldur tískuhringekjan áfram
að snúast og í síðustu viku var
herra-tíska næsta vetrar kynnt.
Stíllinn er eins misjafn og tísku-
húsin eru mörg en almennt verð-
ur herra-tískan ansi klassísk
næsta vetur, jakkaföt eru lykil-
atriði og dökkir litir eru ráðandi.
Engin áhætta er tekin og á það
sérstaklega við um þá sem eru
hjá tískuhúsum sem eru hluti af
stórum samsteypum eins og Dior
þar sem einungis var notað svart
og hvítt, hönnunin döpur.
Það var því hressandi að sjá
litagleði Yohji Yamamoto þar
sem mikið sást af rauðu og ýmis
konar munstrum. Einnig voru
víðu hnébuxurnar, sem minna
helst á buxnapils, frumlegar.
Reyndar mátti sjá að Obama-
manían sveif yfir vötnum á tísku-
sýningunum sem fóru fram sömu
viku og forsetaskiptin í Banda-
ríkjunum og ég er ekki frá því að
fleiri glæsilegar svartar karlfyr-
irsætur hafi sýnt í þetta skipt-
ið. Hjá Jean-Paul Gaultier voru
allar karl- og kvenfyrirsæturnar
með afró-hárkollur í anda Jack-
son Five, hann sjálfur með ljósa
kollu. Reyndar verð ég að viður-
kenna að Gaultier virðist vera
til í hvað sem er til að vekja á
sér athygli og jaðrar það stund-
um við fáránleika. Stíllinn var
nokkuð Lundúnalegur frá tímum
pönks og „New wave“ en ekkert
sérstaklega mikið um nýstár-
lega hönnun nema helst í barna-
fatnaði, sem var nákvæm eftir-
líking fatnaðar hinna fullorðnu
því Gaultier þolir ekki sérstök
barnaföt en vill að drengir og
stúlkur séu klædd eins og þeir
fullorðnu.
Ekki voru þó allir á kreppu-
buxunum og Louis Vuitton
býður meðal annars upp á krók-
ódílsskinnjakka fyrir næsta
vetur sem kostar líklega sitt en
er almennt með mjög klassískan
fatnað, skreyttan með litríkum
íþróttaskóm.
Athyglisverðustu sýningarn-
ar að þessu sinni komu frá Asíu.
Wooyoungmi frá Suður-Kóreu
og Miharaysuhiro frá Japan létu
ímyndunaraflið leika lausum
hala og eiga sjálfsagt eftir að
vera áberandi á næstu misser-
um. bergb75@free.fr
Piltar í peningaleit
Paul Smith hannar herrafatnað
í anda breskra skólastráka og
leggur áherslu á fylgihluti.
Breski tískuhönnuðurinn Paul
Smith hóf hinn breska skólastrák,
með tilheyrandi tweed-fatnaði, upp
til skýjanna á tískuvikunni í París
um síðustu helgi.
Línan kom á óvart og þótti jafn-
vel duttlungafull þó svo að Smith,
sem er þekktur fyrir tilbrigði sín
við klassískan stíl, hafi ekki brugð-
ið langt út af vananum. Aðsniðnir
ullarjakkar, köflóttar buxur og lit-
rík smáatriði voru áberandi.
Smith lagði sérstaka áherslu á
fylgihluti eins og skó og hálstau
og sagði það andsvar við fjármála-
kreppunni. „Á samdrátt-
artímum held ég að fólk
reyni að lífga upp á fata-
skápinn með fylgihlut-
um og eyði frekar í
smærri hluti,“ er haft
eftir honum á www.
yahoo.com.
- ve
Tweed og
skærir litir
Smith lagði sérstaka
áherslu á fylgihluti
eins og skó og hálstau.
NORDICPHOTIS/GETTY
Appels-
ínugult
fóðrið
sem stingst
undan
frakkanum
gerir gæfu-
muninn.
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Friendtex leitar af
sjálfstæðum sölufulltrúum
Nú er tækifærið fyrir duglegt sölufólk sem vill afl a sér auka-tekna.
Nýi vörulistinn er kominn á netið.
Kíkið á FRIENDTEX.is eða hringið í s: 691-0808
Leitið upplýsinga
hjá sölufulltrúum;
Jóna María
512 5473
Hugi
512 5447
Leitið upplýsinga
hjá sölufulltrúum;
Jóna María
512 5473
Hugi
512 5447