Fréttablaðið - 29.01.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 29.01.2009, Blaðsíða 12
12 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR PALESTÍNA, AP Ísraelar gerðu í gær- morgun loftárásir á jarðgöng undir landamæri Gasasvæðis og Egypta- lands, skömmu áður en George Mit- chell, nýskipaður erindreki Banda- ríkjaforseta í Mið-Austurlöndum, heimsótti ísraelska ráðamenn. Mitchell hvatti Ísraela til að halda vopnahlé, sem hófst fyrir tíu dögum í kjölfar þriggja vikna loftárása Ísraelshers á Gasasvæð- ið, en árásirnar settu svip sinn á heimsóknina. Ísraelar sögðu árásir sínar gerð- ar í hefndarskyni vegna sprengju frá Palestínumönnum, sem varð einum ísraelskum hermanni að bana á þriðjudag. Síðdegis í gær virtist sem ró væri að komast á að nýju. Eftir að vopnahlé hófst hinn 18. þessa mánaðar hófust íbúar á Gasasvæðinu strax handa við að endurgera jarðgöngin, sem Ísrael- ar höfðu að miklu leyti eyðilagt í árásum fyrr í mánuðinum. Palestínumenn hafa notað göng- in til að smygla bæði nauðsynjum og vopnum yfir á Gasasvæðið, sem hefur verið í nánast algerri ein- angrun mánuðum saman. Javier Solana, utanríkisfulltrúi Evrópusambandsins, er einnig á ferð í Mið-Austurlöndum til að miðla málum og koma á vopnahléi, sem gæti enst til lengri tíma. - gb Nýskipaður erindreki Bandaríkjanna hitti ísraelska ráðamenn: Ró færist yfir Gasa á ný GEORGE MITCHELL OG SHIIMON PERES Erindreki Obamas fer nú á milli ráða- manna í Mið-Austurlöndum og reynir að leggja lið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KREPPA Í BRETLANDI Vauxhall-umboð í Manchester vekur athygli á útsölu á nýjum bílum með þessum áberandi auglýsingaþakta bíl. Óseldir bílar hrannast upp hjá bílaframleiðendum í kreppunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP IÐNAÐUR Björn Björnsson trésmið- ur lokaði fyrirtæki sínu „Útihurð- ir og gluggar“ í góðærinu fyrir tæpum tveimur árum og er nú að opna aftur í kreppunni. Hann segir neytendur hafa snúið aftur í ríkum mæli að kaupum á íslenskri fram- leiðslu, enda eigi þeir ekki margra kosta völ. „Ég lokaði fyrirtækinu í apríl fyrir tæpum tveimur árum. Það var ekki hægt að reka þetta. Fólk gat keypt mahóníglugga með gleri og öllu saman frá Litháen í gegnum Byko á sama verði og ég varð að bjóða. Það var ekkert hægt að keppa við þetta, enda var ég að framleiða á undirverði.“ Björn segist hafa séð fyrir að góðærið myndi ekki vara um alla eilífð. „Það var vitað að þetta gæti ekki gengið nema í ákveðinn tíma eins og hefur alltaf verið í gegnum árin,“ útskýrir hann. „Þegar mað- urinn er búinn að vera í rekstri frá 1982 þá veit maður um sveiflurn- ar og þekkir þær. Maður veit líka að það má ekki að taka erlend lán, enda sér maður núna hvernig ýmis íslensk fyrirtæki hafa farið á því. Það má heldur ekki kaupa bréf, því þau eru ekkert nema loftból- ur. Menn eru að reka sig á þetta æ ofan í æ. Það er betra að stoppa reksturinn og hætta og byrja svo bara aftur.“ Björn er að setja fyrirtækið sitt af stað aftur þessa dagana. Þar framleiðir hann útihurðir, glugga og annað tréverk. „Það er búið að taka fyrsta verkið inn og við erum að síga af stað. Það er nógur markaður fyrir okkur og nú erum við að framleiða á samsvarandi verði og er nú á inn- fluttu tréverki. Nú er staðan eðli- leg og samkeppni milli íslenskra framleiðenda um verð á íslenskri vöru.“ Björn hefur einnig starfað sem verktaki í byggingariðnaði. Hann segir nær algilt hjá erlendum iðn- aðarmönnum nú að fái þeir ekki tvo tíma fast í eftirvinnu ofan á dagvinnu velji þeir frekar að vera á atvinnuleysisbótum. Þeir bestu séu raunar farnir úr landi, en viss hópur sitji eftir. „En nú verðum við bara að halda áfram að vera Íslendingar og bjarga okkur, eins og við höfum alltaf gert,“ segir Björn um ríkj- andi ástand. „Við eigum að ráða fram úr vandanum og gera hlut- ina sjálf. Ef ekki fiskast þá verður bara að fara í land og vinna þar. Svo er það líka af því góða að fá svolítið kjaftshögg og bremsa okkur niður.“ jss@frettabladid.is Lokaði í góð- æri og opnar í kreppunni Björn Björnsson lokaði fyrirtæki sínu í bullandi góðæri en er nú að opna aftur í kreppunni. Hann segir rekstrarumhverfið loks orðið eðlilegt aftur. Íslendingar velji nú íslenska framleiðslu. ÚTIHURÐIR OG GLUGGAR Björn Björnsson á trésmíðaverkstæðinu sem hann er að setja af stað aftur þessa dagana. Hann segir rekstarumhverfið nú orðið eðlilegt eftir góðærið. AFGANISTAN, AP Enn á ný mót- mæla Afganar mannfalli í röðum almennra borgara sem stafar af loftárásum erlenda herliðsins í landinu. Hamid Karzai, forseti Afgan- istans, segir að dráp Bandaríkja- hers á saklausum borgurum geri ekkert annað en að „styrkja hryðjuverkamennina“. Nú síðast varð Bandaríkja- her sextán almennum borgur- um að bana á laugardag þegar gerð var loftárás á Laghman- hérað. Bandaríkjamenn segja þó að fimmtán vopnaðir menn hafi verið felldir. - gb Afganar mótmæla mannfalli: Bandaríkjaher eflir hryðjuverk Innbrot í skartgripaverslun Brotist var inn í úra- og skartgripa- verslun við Strandgötu í Hafnarfirði um klukkan þrjú í fyrrinótt. Þjófurinn braut rúðu í sýningarglugga og stal þaðan armböndum og úrum. Hann er ófundinn og málið er í rannsókn hjá lögreglunni. LÖGREGLUFRÉTTIR Nýr formaður kúabænda Þórir Jónsson, bóndi á Selalæk í Rangárvallasýslu, hefur verið kosinn nýr formaður Félags kúabænda á Suðurlandi. Á fundi félagsins tilkynnti fráfarandi formaður, Sigurður Loftsson í Steinsholti, að hann hyggðist gefa kost á sér til formennsku. LANDBÚNAÐUR Unicef til barna á Gasa Hjálparsamtökin UNICEF standa fyrir fjársöfnun til handa börnum sem búa á Gasasvæði Palestínu. Í nýlegum árásum Ísraela létust 412 börn og 1.855 börn særðust. Fjöldi hefur og misst ástvini og heimili. UNICEF áætl- ar að 840.000 börn séu hjálparþurfi. NEYÐARSÖFNUN Lagersala Faxafeni 12 - Reykjavík Glerárgötu 32 - Akureyri Opið fimmtudag 9-18, föstudag 9-18, laugardag 11-16. Dúnúlpur 14.500 kr. Öndunarjakkar 14.000 kr. Flíspeysur 5.000 - 8.000 kr. Krakka kuldagallar 9.000 kr. Krakkaúlpur 8.000 kr. Krakkaflís 2.000 - 4.000 kr. á 2. hæð Faxafeni 12 og Glerárgötu 32 Akureyri, fimmtudag, föstudag og laugardag 50 - 80% Afsláttur Verðdæmi ... og fullt af fleiri vörum. A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.