Fréttablaðið - 29.01.2009, Síða 16
16 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Nýtt og óþekkt hlutverk
bíður Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs.
Flokkurinn tekst á við
stjórn landsins í fyrsta
sinn í tíu ára sögu sinni.
Þau hafa margsinnis fengið að
heyra að þau séu ekki stjórntæk.
Andstæðingar VG afgreiddu
flokkinn þannig að loknum kosn-
ingunum 2007. Og svo sem í kosn-
ingabaráttunni líka.
Í þinginu og þjóðmálaumræð-
unni hefur stimpillinn svo verið;
VG er alltaf á móti öllu og leggur
aldrei til neinar hugmyndir. Nema
í atvinnumálum og þá snúast þær
um prjónaskap og fjallagrös.
Vitaskuld hafa þessar möntrur
farið í taugarnar á þingmönnum
flokksins og þeir hafa stundum
svarað. En bara stundum. Oftast
láta þeir þetta sem vind um eyru
þjóta og halda áfram að reka sína
pólitík.
Pólitíkin
Og um hvað hefur pólitík VG
snúist? Í stuttu máli fernt: hefð-
bundna vinstri stefnu, kvenfrelsi,
umhverfismál og alþjóðahyggju.
Það eru í það minnsta þær fjórar
stoðir sem flokkurinn hvílir á, að
eigin sögn.
Í inngangi að stefnuyfirlýsingu
segir: Vinstrihreyfingin - grænt
framboð vill beita sér fyrir rót-
tækum þjóðfélagsumbótum
almenningi til hagsbóta, hefja
vernd náttúru og umhverfis til
vegs á Íslandi og treysta byggð
um allt land. Hreyfingin er sam-
starfsvettvangur og baráttutæki
þeirra, sem vilja útrýma kynja-
misrétti og tryggja jafnrétti,
kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í
samfélaginu.
Alltaf á móti
En hvers vegna ætli því hafi oft
og lengi verið haldið á lofti að VG
sé alltaf á móti? Líklega vegna
þess að stefna flokksins hefur
einmitt verið það; á móti flest-
um meginverkefnum síðustu rík-
isstjórna. Stefnumál þeirra hafa
verið í svarinni andstöðu við
stefnu VG. Einkavæðing, stór-
iðjustefna, varnarsamstarf – allt
er þetta eitur í beinum vinstri
grænna. Það væri undarlegur
stjórnmálaflokkur sem sæti þegj-
andi undir því að mál og mála-
flokkar séu sveigðir í aðra átt en
honum hugnast.
En andstaðan hefur svo sem
ekki bara náð til stórra verka
heldur líka smárra. VG hefur
notað hvert tækifæri sem gef-
ist hefur til að lýsa andúð sinni
á ríkisstjórnum. Hann hefur því
innistæðu fyrir að vera jafnan
sagður á móti.
Tillögurnar
Á hinn bóginn er hægt að hrekja
fullyrðingar um að VG leggi aldrei
neitt til.
Þingmenn flokksins hafa í gegn-
um árin verið afar duglegir við að
leggja fram þingmál. Ná þau til
flestra málaflokka þar á meðal til
atvinnumála. Og merkilegt nokk;
VG hefur aldrei lagt fram þing-
mál sem lýtur að prjónaskap. Á
fjallagrös hefur einu sinni verið
minnst; í þingsályktunartillögu
flokksins um aðlögunarstuðning
við lífrænan landbúnað.
Heild
Þingflokkur VG hefur frá upp-
hafi verið samheldinn og einhuga.
Þar á bæ hefur enginn verið til í
að gefa afslátt af ýtrustu kröf-
um. Eða andstöðu. Helgast það
líkast til fremur af því að stefn-
an hefur verið þröng og óumdeild
en að þingmenn lúti sérstökum
flokksaga eða forysturæði. En
talandi um forystuna; Steingrím-
ur J. Sigfússon er óskoraður for-
ingi Vinstri grænna og verður svo
lengi sem hann sjálfur kýs. Um
hann fella samflokksmenn ekki
styggðaryrði í einkasamtölum og
þaðan af síður opinberlega. Hann
nýtur lofs og aðdáunar svo stund-
um jaðrar við dýrkun.
Sú staðreynd að hann skorast
ekki undan að leiða flokkinn inn í
ríkisstjórn á einhverju mesta erf-
iðleikaskeiði þjóðarinnar verður
ekki til að draga úr áliti flokks-
manna á honum. Þeim finnst hann
vinna af festu og ábyrgð sem
aldrei fyrr.
Það á svo eftir að koma í ljós
hvernig VG reiðir af í ríkisstjórn.
Og hvernig þjóðinni reiðir af með
VG í ríkisstjórn. Sú saga verður
sögð síðar.
FRÉTTASKÝRING: VG á leið í ríkisstjórn í fyrsta sinn
Til valda eftir áratug í
öflugri stjórnarandstöðu
FORYSTAN Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir sæl á landsfundi VG árið 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
30
25
20
15
10
5
%
Kosningar 1999
Kosningar 2003
Kosningar 2007
Skoðanakönnun Frétta-
blaðsins 26. jan sl.
Fylgi Vinstri-Grænna í skoðanakönnunum
Fréttablaðsins og alþingiskosningum
FRÉTTASKÝRING
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
bjorn@frettabladid.is
Mýturnar um vinstri stjórnir eru
margar. Egill Helgason lék sér með
þær á vefsíðu sinni í gær.
„Ef kemur vinstri stjórn...
...þá verður:
Gengishrun.
Hlutabréfamarkaðurinn fellur.
Bankarnir eiga ekki lífsvon.
Peningar verða fluttir úr landi.
Fólk missir sparifé sitt.
Verðbólgan fer úr böndunum.
Ríkið þenst út.
Það verða skattahækkanir.
(Úbbs, þetta er allt búið að
gerast!)“
ÚBBS, ÞETTA ER...
Steingrímur J. Sigfússon hefur einn
þingmanna VG reynslu af setu í
ríkisstjórn. Hann var landbúnaðar- og
samgönguráðherra frá 1988-1991.
Steingrímur var kjörinn á þing fyrir
Alþýðubandalagið 1983 og gengur
Jóhönnu Sigurðardóttur næst í starfs-
aldri þingmanna.
Ögmundur Jónasson hefur setið á
þingi síðan 1995. Fyrsta kjörtímabilið
var hann þingmaður Alþýðubanda-
lagsins og óháðra en þingmaður VG
síðan flokkurinn bauð fyrst fram 1999.
Auk Steingríms og Ögmundar hafa
þrír núverandi þingmenn flokksins
setið frá því að VG bauð fyrst fram.
Það eru Jón Bjarnason, Kolbrún Hall-
dórsdóttir og Þuríður Backman. Árni
Steinar Jóhannsson var auk fimm-
menninganna í þingflokknum fyrsta
kjörtímabilið en féll af þingi í næstu
kosningum.
Árið 2007 komu ný á þing fyrir VG
þau Atli Gíslason, Álfheiður Inga-
dóttir, Árni Þór Sigurðsson og Katrín
Jakobsdóttir.
STEINGRÍMUR SAT Í ÞRJÚ ÁR Í RÍKISSTJÓRN
Um níu af hverjum tíu fram-
kvæmdastjórum, stjórnarfor-
mönnum og stjórnarmönnum
fyrirtækja með fimmtíu starfs-
menn eða fleiri eru karlar. Hlut-
fall kvenna af þessum stjórnend-
um er hæst í fyrirtækjum með tíu
starfsmenn en lækkar eftir því
sem starfsmenn eru fleiri.
Þetta kemur fram í riti Hagstofu
Íslands um konur og karla í áhrifa-
stöðum.
Þar segir jafnframt að hlut-
ur kvenna í ýmsum áhrifastöðum
standi í stað eða minnki. Í öðrum
hafi hlutur kvenna hins vegar auk-
ist. - hhs
Fáar konur í áhrifastöðum:
Einn af tíu er kona
EIN FÁRRA Katrín Pétursdóttir stjórnar
hinu fjölmenna fyrirtæki Lýsi. Fáar konur
eru í hennar stöðu á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þegar Geir H. Haarde forsætisráðherra tilkynnti um endalok ríkisstjórnar-
samstarfs Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar á mánudaginn lagði hann til að
skipuð yrði þjóðstjórn með aðkomu allra flokka á Alþingi. Þessi þjóðstjórn
myndi svo sitja fram að kosningum sem ráðgert er að verði í maí á þessu ári.
Formenn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins hafa allir á
einhverjum tímapunkti undanfarna mánuði lagt til að skipuð yrði þjóðstjórn
þó allt útlit sé nú fyrir að það verði ekki raunin við þessi stjórnarskipti.
■ Hvað er þjóðstjórn?
Þjóðstjórn er ríkisstjórn sem mynduð er með aðild allra eða flestra þeirra
stjórnmálaflokka sem fulltrúa eiga á löggjafarþingi og nýtur þannig stuðnings
allra eða flestra þingmanna. Slíkar stjórnir eru yfirleitt myndaðar þegar alvar-
legt kreppuástand eða stríðsástand ríkir og tryggja þarf stöðugleika í landinu.
Samkvæmt skilgreiningu eru þjóðstjórnir því meirihlutastjórnir.
■ Hefur þjóðstjórn verið mynduð á Íslandi?
Á Íslandi hefur einu sinni verið mynduð þjóðstjórn, hinn
17. apríl árið 1939. Að henni stóðu Framsóknarflokkur,
Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur undir forsæti Her-
manns Jónassonar, formanns Framsóknarflokksins, sem
var stærsti flokkurinn. Ástæðan var yfirvofandi styrjöld í
Evrópu. Verkefni þjóðstjórnarinnar voru að gera ráðstaf-
anir vegna styrjaldarinnar, semja við bandamenn um
hervernd auk þess að fara með konungsvaldið eftir að
Danmörk var hernumin árið 1941. Þjóðstjórnin hélt
fram til maí árið 1942 en þá baðst Hermann Jónasson
lausnar vegna innbyrðis ágreinings.
FBL GREINING: ÞJÓÐSTJÓRN
Stjórn á krepputíma
Dagskrá
Iðnó, 30. janúar 2009
H
u
g
sa
s
é
r!