Fréttablaðið - 29.01.2009, Síða 20
20 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
MESTA LÆKKUN
CENTURY ALUM. -26,09%
EIMSKIP -3,10%
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 77 Velta: 107 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
321 +0,03% 913 +1,87%
MESTA HÆKKUN
STRAUMUR-BURÐARÁS +8,33%
BAKKAVÖR +0,98%
FØROYA BANKI +0,86%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,90 +0,00% ... Atlantic
Airways 168,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 565,00 +0,00% ...
Bakkavör 2,07 +0,98% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,25 -3,10% ... Føroya Banki 118,00 +0,86% ... Icelandair Group
13,40 +0,38% ... Marel Food Systems 65,70 +0,77% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,69 +8,33% ... Össur 95,80 +0,11%
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins mælti fyrir því á
mánudag að það legði fjármagn
til þriggja eftirlitsaðila fjármála-
fyrirtækja til næstu þriggja ára
sem myndi tryggja sjálfstæði
þeirra við rannsókn og eftirlit
með fjármálageiranum innan
sambandsins.
„Við teljum mikilvægt að eftir-
litsaðilar geti sótt sér fjármagn
með þessum hætti frekar en að
þurfa að sækja það eftir óljós-
um leiðum,“ segir Oliver Drewes,
talsmaður ESB.
Bæði Evrópuþingið og ráð-
herraherraráð ESB þurfa að
kjósa um málið áður en það nær
fram að ganga. - jab
Vilja aukið rann-
sóknarsjálfstæði
Verðbólga síðustu 12 mánaða mælist
nú 18,6 prósent, samkvæmt mæl-
ingu Hagstofu Íslands. Í desember
stóð verðbólgan í 18,1 prósenti.
Vísitala neysluverðs miðuð við
verðlag í janúar 2009 er 334,8 stig
og hækkaði um 0,57 prósent frá
fyrra mánuði. Hækkunin er í sam-
ræmi við spár, en IFS Greining
hafði spáð 0,6 prósenta hækkun
og Greining Glitnis 0,7 prósentum
milli mánaða.
„Hækkunin milli mánaða nú er
sú minnsta síðan í janúar í fyrra,
en rétt er að hafa í huga að árstíða-
sveifla í vísitölunni er talsverð,“
segir í umfjöllun Glitnis.
IFS gerir ráð fyrir að það dragi
úr verðbólguhraða á næstu mánuð-
um, en áhrif af útsölum hafi verið
heldur minni en ráð hafi verið fyrir
gert í spá fyrirtækisins. Greining
Glitnis segir einnig að útsöluáhrif
hafi verið í grynnri kantinum.
„Eins og jafnan í janúar hafa
útsölur áhrif til lækkunar,“ segir
Greining Glitnis, en föt og skór
lækkuðu um 9,2 prósent vegna
útsöluáhrifa. „Eru það öllu grynnri
útsöluáhrif en við höfðum gert ráð
fyrir. Vegur þar trúlega á móti að
sá fatnaður sem ekki er á útsölu
hefur hækkað talsvert á undan-
förnum vikum.“ Um leið er bent á
að verð á flugfargjöldum til útlanda
hafi lækkað um 14,5 prósent, sem sé
meira en reiknað hafi verið með. Þá
hafi matur og drykkur hækkað um
1,8 prósent og heilsugæsla um 2,6
prósent, að mestu vegna hækkunar
á komugjöldum. - óká
Gert er ráð fyrir að dragi úr hraða verðbólgunnar á næstu mánuðum:
Verðbólga fer úr 18,1 í 18,6 prósent
Ekkert er til í því að
Straumur sé að flytja höf-
uðstöðvar sínar héðan og
íhugi skráningu á hluta-
bréfamarkað í Lundún-
um í Bretlandi eða Stokk-
hólmi í Svíþjóð í nánustu
framtíð, líkt og breska
viðskiptablaðið Financ-
ial Times sagði í fyrra-
kvöld.
Þetta staðhæfir Georg
Andersen, framkvæmda-
stjóri samskiptasviðs
bankans. „Það eru um
átján til tuttugu mánuðir síðan
við byrjuðum að skoða málin.
Það hefur ekki farið lengra en við
höfum skoðað málið,“ segir hann
og vísar til þess að Björgólfur
Thor Björgólfsson, stjórnarfor-
maður bankans og stærsti hlut-
hafi, hafi velt málinu upp á aðal-
fundi Straums í hittifyrra.
Hann bætir við að
yrðu höfuðstöðvarnar
fluttar myndi það ekki
hafa áhrif á starfsemi
Straums hér.
Georg segir blaða-
konu Financial Times
hugsanlega hafa mis-
skilið William Fall, for-
stjóra Straums, í viðtali
sem hún átti við hann á
dögunum. Í blaðinu var
haft eftir Fall, að flutn-
ingur höfuðstöðvanna
væri auðveldasta leiðin
til að ná fram áætlunum bankans
við erfiðar aðstæður hér.
Málið var tekið upp í hinum
þekkta Lex-dálki blaðsins í gær
en þar sagði að flutningurinn
væri síðasta móðgunin gagnvart
landi sem stendur frammi fyrir
alvarlegum samdrætti.
- jab
WILLIAM FALL
Ýktar fréttir af
landflótta Straums
EKKI HÆGT AÐ FLYTJA ALLT FYRIRTÆKIÐ
„Það eru miklir erfiðleikar víða og því ekki auðvelt að fara inn í kauphöll
í Stokkhólmi eða í Lundúnum um þessar mundir,“ segir Þórður Friðjóns-
son, forstjóri Kauphallarinnar.
Skráning fyrirtækis í erlenda kauphöll tekur eitt ár hið minnsta en
flutningur á starfsemi fjármálafyrirtækis á borð við Straum gæti tekið
þrjá til fjóra mánuði að lágmarki, að mati Straums-manna. Það er að því
gefnu að höfuðstöðvar yrðu einar fluttar utan. Einungis fimmtán prósent
eigna Straums liggja hér en afgangurinn utan landsteina. Gjaldeyrishöft-
in hér koma í veg fyrir flutning fjármagnseigna bankans svo einhverju
nemur, samkvæmt upplýsingum Markaðarins.
Seðlabanki Íslands áréttar að veð
í FIH-bankanum danska vegna
þrautavaraláns til Kaupþings í okt-
óber sé ekki talið með gjaldeyris-
forða þjóðarinnar. Þess vegna sé
rangt sem haldið var fram í Mark-
aðnum og Fréttablaðinu í fyrradag
að gjaldeyrisforðinn sé stórlega
ofmetinn.
„Útreikningar á gjaldeyris-
forða og framsetning hans er
hvort tveggja gert í fullu samráði
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og er
í einu og öllu farið eftir skilgrein-
ingum hans,“ segir í tilkynningu
Seðlabankans.
Í desemberlok nam gjaldeyris-
forði Seðlabanka Íslands 429,4
milljörðum króna, samkvæmt upp-
lýsingum á vef bankans. Þar kemur
jafnframt fram að fastar nettóút-
greiðslur gjaldeyriseigna næstu
12 mánuði séu að nafnverði 173,6
milljarðar króna, þar af 135 millj-
arðar þar sem gjalddagi var eftir
innan við mánuð, vegna gjaldeyris-
lána, verðbréfa og innstæða. - óká
FIH-veð ekki með í gjaldeyrisforðaVirði vöru og þjónustu í milliríkja-verslun meðal ríkja Efnahags- og samvinnustofnunarinnar (OECD)
dróst saman um 1,6 prósent milli
þriðja og fjórða fjórðungs síðasta árs,
samkvæmt samantekt OECD. Sam-
dráttur varð síðast á þriðja fjórðungi
2006. „Á ársgrundvelli féll virðis-
aukning útflutnings vöru og þjónustu
OECD-landa í 15,6 prósent, meðan
vöxtur innflutnings féll í 17 prósent,“
segir í samantektinni. - óká
Minni milliríkjaviðskipti
Hljóðið var þungt í mönn-
um á fyrsta degi ársfundar
Alþjóðaefnahagsráðsins í
Davos í Sviss í gær. Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn
spáir því að hagkerfi heims-
ins staðni á árinu.
„Hér er margt fólk sem ekki er
bjartsýnt á árið. Annars er mjög
fínt og áhugavert að vera hér,
fylgjast með því sem er að gerast
og taka þátt í því,“ segir segir Jón
S. von Tetzchner, stofnandi og for-
stjóri norska hugbúnaðarfyrirtæk-
isins Opera Software, í samtali við
Fréttablaðið.
Jón er nú staddur á ársfundi
Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World
Economic Forum) sem hófst í Alpa-
bænum Davos í Sviss í gær.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjórnarformaður Straums, var
sömuleiðis skráður til þátttöku. Jón
hafði ekki hitt hann í gær.
Þetta er fjórða árið í röð sem Jón
mætir til Davos. Hann segir athygl-
isvert að á síðasta ári hafi talsvert
af fólki verið uggandi um horfur
í efnahagsmálum. „Nú hefur það
orðið eins slæmt og það getur orðið,
sérstaklega fyrir Íslendinga,“ segir
hann.
Svartsýni á stöðu efnahagsmála
einkenndi gærdaginn í Davos. Ekki
bætti úr skák þegar Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn (AGS) birti hag-
vaxtarspá sína fyrir árið en þar er
reiknað með að hagvöxtur á heims-
vísu fari úr 2,2 prósentum í 0,5 pró-
sent, sem á mannamáli merkir að
hagkerfi heimsins hafi staðnað á
milli ára.
Samkvæmt spá AGS mun mesti
samdrátturinn
verða í Bretlandi
og á evrusvæð-
inu en nýmark-
aðslöndin hífi
meðaltalið upp.
Hagvöxtur þar
verður engu að
síður helmingi
minni í ár en í
fyrra; fer úr 6,24
prósentum í 3,25
að meðaltali.
Fjárfestirinn George Soros,
sem þekktastur er fyrir að veðja á
fall breska pundsins fyrir sautján
árum, sagði í samtali við CNBC-
sjónvarpsstöðina í gær aðstæð-
ur verri en í síðustu kreppu fyrir
tæpri öld. Telur hann líkur á að
halla muni frekar undan fæti á
næstu mánuðum.
Aðrir gestir í Davos, sem Bloom-
berg-fréttaveitan ræddi við í gær,
voru á sama máli.
Soros mælti með því að banda-
rísk stjórnvöld tækju traustar og
góðar eignir úr bönkum þar í landi
og tryggði í framhaldinu rekst-
ur þeirra með nýju fjármagni úr
sjóðum hins opinbera. Eiturbréf
og aðrar eignir sem nú séu næsta
verðlausar eigi að skilja eftir. Örlög
bankanna muni ráðast í kjölfarið.
Undir þetta tók dr. Nouriel Rou-
bini, prófessor við New York-
háskóla í Bandaríkjunum, sem
gengur undir viðurnefninu Doktor
Dómsdagur sökum svartsýni sinn-
ar. Hann hefur lengi talið banda-
ríska banka tæknilega gjaldþrota
og hefur kveðið á um nauðsyn þess
að endurfjármagna þá með öllum
tiltækum ráðum. Í gær sagði hann
svo óvíst hvort slíkt dugi til að
koma í veg fyrir að áhrif lausa-
fjárkreppunar versni frekar og
segist ekki bjartsýnn á stöðu mála
til lengri tíma litið.
jonab@markadurinn.is
MÁLIN RÆDD Í DAVOS Á FYRSTA DEGI Forkólfar heimsins á fjölmörgum sviðum telja
útlitið fram undan dökkt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Svartsýni í Ölpunum
ÚTSALA Í JANÚAR Greining Glitnis segir
útsölu á fatnaði hafa haft minni áhrif á
verðbólgumælingu nú en búist var við
vegna talsverðrar hækkunar á fatnaði
sem ekki var á útsölu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JÓN S. VON
TETZCHNER
Á síðustu metrum í starfi
Eitt af síðustu verkum Einars K. Guðfinnssonar,
fráfarandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, í embætti var að heimila fimm
ár fram í tímann veiðar á hrefnu og
langreyði. Hvalveiðar þjóðarinnar
hafa löngum verið umdeildar og
hafa sumir viljað meina að með því
að halda þeim til streitu væri meiri
hagsmunum fórnað fyrir minni. Ekk-
ert liggur þó fyrir um hvort veiðarnar
hafi skaðað viðskipti landsins eða
orðstír á erlendri grundu. En er þó varla
á bætandi eftir fall bankanna og
mál þeim tengd. Enn berast
hins vegar í tölvupósti til
fyrirtækja hér bréf frá
útlendingum sem
segjast ætla að snið-
ganga íslenskar vörur
meðan hvalveiðar
séu stundaðar og leggjast gegn aðild landsins
að Evrópusambandinu. Nú er bara spurning
hvort ákvörðun um áframhaldandi hvalveiðar
fær að standa hjá nýrri ríkisstjórn.
AGS hált á svellinu
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gaf í gær út
kolsvarta spá um hagvöxt í heiminum.
Venju samkvæmt var blásið til blaða-
mannafundar til að kynna rit sjóðsins, en
nú bar svo við að fresta varð fundinum
um hálftíma. Í tilkynningu sjóðsins kom
fram að seinkunin skrifaðist
á mjög mikla hálku á
vegum í höfuðborg
Bandaríkjanna,
Washington DC, þar
sem höfðustöðvar
sjóðsins eru og
fundurinn var
haldinn.
Peningaskápurinn ...