Fréttablaðið - 29.01.2009, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 29.01.2009, Blaðsíða 26
Fyrsta íslenska gleraugnalínan, Reykjavik Eyes, er komin á mark- að. Sjóntækjafræðingurinn Gunnar Gunnarsson stendur að baki hönn- uninni og nýrri framleiðsluaðferð en hann hefur áður teiknað ein- staka gleraugu fyrir GK, Reykjavík Collection, Karen Millen og fleiri. „Gleraugun eru búin til með nýrri tækni sem á sér enga hlið- stæðu í heiminum. Umgjörðin er skorin út í heilu lagi úr örþunnri tít- anplötu og er því ekki búin skrúf- um, hjörum eða öðrum aukahlut- um. Það kemur í veg fyrir algeng vandamál eins og lausa skrúfu eða brotna löm. Þá er umgjörðin alfarið laus við samskeyti og suðupunkta,“ útskýrir Gunnar. Fyrsta umgjörðin leit dagsins ljós fyrir um fjórum árum. Síðan þá hafa verið gerðar þrotlausar prófanir á styrk og öllu sem lýtur að notkun auk þess sem leitin að rétta efninu tók langan tíma. „Eftir að hafa spurst fyrir um efni og áreiðanleika á ófáum sýn- ingum á erlendri grund datt ég niður á verksmiðju í Japan sem er þekkt fyrir eindæma góða vöru, en umgjarðirnar eru nikkelfríar með öllu og því ekki ofnæmisvaldandi. Frumútgáfan var úr stáli og skorin með leysigeisla en sú framleiðslu- aðferð var nokkuð fljótt slegin af. Það tók sinn tíma að finna réttan málm en nú er stóra stundin runn- in upp, varan fullunnin og komin á markað.“ Að sögn Gunnars fékk breska fyrirtækið Andrew Actman Eye- wear Ltd., sem sérhæfir sig í heild- söludreifingu og markaðssetningu gleraugnaum- gjarða, spurnir af því að á norð- urhjara verald- ar væri verið að hugsa framleiðslu gleraugnaum- gjarða upp á nýtt og setti sig í sam- band við hann. „Útsendarar Andr- ew Actman Eyewear Ltd. höfðu strax brennandi áhuga og trú á vörunni og varð úr að þeir sjá um sölu og dreifingu á vörum Reykja- vik Eyes í Bretlandi og Skotlandi,“ upplýsir hann. Reykjavik Eyes-línan, sem sam- anstendur af átta mismunandi gler- augnaumgjörðum, fæst nú í Auganu í Kringlunni og í verslunum Pro Optik en nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavikeyes.com. vera@frettabladid.is Umgjarðir án samskeyta Fyrsta íslenska gleraugnalínan, Reykjavík Eyes, hefur litið dagsins ljós. Gunnar Gunnarsson stendur að baki hönnuninni og nýrri framleiðsluaðferð sem á sér enga hliðstæðu í heiminum. Gleraugnaumgjarðirnar Reykjavik Eyes eru skornar út í heilu lagi og því lausar við skrúfur, hjarir og aðra aukahluti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFAN SAGA KLÆÐABURÐAR í Bretlandi er viðfangsefni þáttanna What we wore sem hægt er að skoða á vefsíðu BBC. Þar er fjallað um þróun tískunnar í Bretlandi í 250 ár. www.bbc.co.uk/archive/whatwewore Línan samanstendur af átta mismunandi gleraugnaumgjörð- um sem eru allar lausar við samskeyti og suðupunkta. SÚKKULAÐIVAX HAFRAVAX SÚKKULAÐISTRIMLAR F. ANDLIT OG LÍKAMA ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni og einnig vaxstrimlar LAURA ASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646 20% afsláttur f öllum fatnað Opið virka daga frá 10-18 Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Leitið upplýsinga hjá sölufulltrúum; Jóna María 512 5473 Hugi 512 5447
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.