Fréttablaðið - 29.01.2009, Page 32
29. JANÚAR 2009 FIMMTUDAGUR
Sara María Júlíudóttir og Ás-
grímur Már Friðriksson hafa frá
því í desember hannað saman
kjóla og fleiri flíkur.
„Ási vann hjá mér í stuttan tíma
fyrir nokkrum árum. Síðan þá
höfum við verið að ræða að við
þyrftum að fara að gera eitthvað
meira,“ segir Sara María Júlí-
usdóttir, eigandi verslunarinnar
Nakta apans. Svo var það í desem-
ber að þau fóru að skapa saman
leggings, peysur, kjóla og fleiri
flíkur. „Ég sé um að prenta allt
efnið, síðan ákveðum við saman
hvernig flík við viljum búa til. Við
veljum saman efni og liti og svo
sér Ási um að ljúka við flíkina,“
útskýrir Sara, sem er menntuð í
fatahönnun og textíl.
„Við reynum að gera áhuga-
verða kjóla og skemmtilega,“ segir
Ási, sem er kannski best þekktur
fyrir búningana sem hann hann-
aði fyrir Sylvíu Nótt á sínum tíma.
Hann var einnig í Listaháskóla Ís-
lands og hefur hin síðari ár unnið
að eigin fatalínu, E-Label, en vann
líka sem aðstoðartískustjórnandi
hjá tímaritinu Cover í Danmörku.
Sara segir flíkurnar fremur
óhefðbundnar. „Mikið prentað efni
er lýsandi fyrir mig, auk þess sem
við notum fléttur úr prentuðu efni
og alls konar litum,“ segir hún.
Kjólarnir seljast að hennar sögn
vel þótt þeir séu í dýrari kantin-
um, enda mikil vinna í þá lögð auk
þess sem enginn er eins. - sg
Hver kjóll er einstakur
Föt þeirra Söru og Ása eru til sölu í Nakta apanum og á www.dontbenaded.com.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sara í einum af kjólunum sem þau Ási hafa hannað saman. Efnið prentaði Sara en Ási
saumaði kjólinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Falleg munstur einkenna kjólana.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Litrík, prentuð efni og fléttuð bönd.
MYND/ÚR EINKASAFNI
„Ég hef verið að hanna í þrjú ár,
aðallega kvenfatnað þótt inn á
milli hafi slæðst peysur á börn og
karla,“ segir Sólveig Stefánsdótt-
ir, sem er á lokaári í fatahönnun-
ar- og klæðskeranámi við Iðnskól-
ann í Reykjavík og hefur verið að
selja hönnun sína undir merkinu
Krown*.
Spurð hvaðan hún fái hugmynd-
irnar að hönnuninni segir Sólveig
það háð því hverning fatalínu hún
ætli að hanna. „Ég sæki innblást-
ur í íslenska náttúru. Annars fæ
ég líka hugmyndir úr tískublöð-
um.“
Að sögn Sólveigar hefur
Krown* vakið nokkra athygli á
síðustu árum. Svo gæti farið hún
ætti eftir að aukast, þar sem ljós-
myndarinn Bryndís Steina
Friðgeirsdóttir hyggst nota
hönnunina í lokaverkefni
sínu við ljósmyndaskóla í
París. „Þetta gæti orðið mjög
spennandi og skemmti-
legt,“ segir Sólveig, ánægð
með að fá þetta tækifæri.
Hægt er að skoða fata-
línuna á www.myspace.
com/krowndesign, þar sem
einnig finna má upplýsing-
ar um hvernig best sé að
panta fatnaðinn ef áhugi
er fyrir hendi. - aóv
Sólveig sækir innblástur í
íslenska náttúru.
MYND/BRYNDÍS STEINA FRIÐGEIRSDÓTTIR
Sækir innblástur í náttúruna
Saltfiskur er
mikilvægur hluti
af matarmenningu
íslensku þjóðarinnar
466 1016
www.ektafiskur.is
Tímarnir breytast en saltfi skurinn frá Ekta fi ski, þessi gamli
góði með íslenskum kartöfl um og smjöri, stendur alltaf fyrir
sínu. Sérútvatnaði saltfi skurinn er sérstaklega hentugur í
seiðandi saltfi skrétti. Fæst um allt land. Hafðu samband!
Frábær gjöf handa Íslendingum út um allan heim!
Ekta sal iskur lbúinn l útvötnunar.
www.alafoss.is
Álafossvegur 23, Mosfellsbær S: 566 6303