Fréttablaðið - 29.01.2009, Síða 44

Fréttablaðið - 29.01.2009, Síða 44
28 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) var stofn- að 29. janúar árið 1961. Kostaði það mikla bar- áttu að stofna sambandið þar sem sum sérsam- böndin sem fyrir voru beittu sér sérstaklega gegn því. Má þar nefna Handknattleikssambandið og heyrðist því fleygt að menn væru hræddir við samkeppnina. Í fyrstu stjórn KKÍ voru Bogi Þorsteinsson for- maður, Benedikt Jakobsson, Matthías Matthías- son, Magnús Björnsson, Kristinn V. Jóhannsson, Ásgeir Guðmundsson og Helgi V. Jónsson. Bogi gegndi formennsku KKÍ í tæp níu ár samfleytt eða frá stofnfundinum fram að aðalfundi 1. nóv- ember 1969. Þá gaf hann ekki kost á sér til end- urkjörs. Stofnaðilar KKÍ voru Körfuknattleiksráð Reykja- víkur, Íþróttabandalag Suðurnesja, Íþróttabanda- lag Hafnarfjarðar, Íþróttabandalag Keflavíkur, Íþróttabandalag Akureyrar og Íþróttabandalag Vestmannaeyja. Forseti stofnþingsins var Bene- dikt G. Waage, þáverandi forseti Íþróttasam- bands Íslands. Fyrsti stjórnarfundur hins nýja sambands var haldinn 1. febrúar árið 1969. Fjór- tán einstaklingar hafa gegnt stöðu formanns KKÍ og er Hannes Sigurbjörn Jónsson núverandi for- maður sambandsins. ÞETTA GERÐIST: 29. JANÚAR 1961 KKÍ var stofnað eftir baráttu MERKISATBURÐIR 1845 Hrafninn, eftir Edgar Allan Poe, kemur fyrst út á prenti í dagblaðinu New York Evening Mirror. 1886 Karl Benz fær einkaleyfi á fyrsta bensíndrifna bíln- um. 1905 Jarðskjálfti, sem mælist 5,5 á Richter, verður á Suðvesturlandi og eru upptökin við Kleifarvatn. 1989 Ungverjaland kemur á stjórnmálasambandi við Suður-Kóreu. 2000 Vísindavefurinn er opn- aður í fyrsta sinn af for- seta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. 2005 Áætlunarflug hefst aftur milli Kína og Taívan, eftir 56 ára hlé. LEIKARINN TOM SELLECK ER 64 ÁRA Í DAG. „Ég hef aldrei brugðist vel við því þegar aðrir reyna að segja mér fyrir verkum.“ Bandaríski leikarinn Tom Sell- eck hefur leikið í kvikmynd- um og þáttaröðum og að auki framleitt kvikmyndir og skrif- að handrit. timamot@frettabladid.is „Fertugsafmælið leggst mjög vel í mig af því það verða allir svo hissa þegar ég segi hvað ég er gamall; það trúir því enginn,“ segir Davíð Ólafsson söngvari, sem verður fertugur á morg- un, 30. janúar. „Ég ákvað að halda tón- leika til að staðfesta og sanna fyrir fólki að ég væri orðinn þetta gamall og ætla í leiðinni að styðja gott mál- efni,“ segir hann. Tónleikarnir verða haldnir á afmælisdaginn í Langholts- kirkju klukkan 20 en miðasalan opnar klukkan 18. Ágóði af miðasölu rennur til hjálparstarfs ADRA. „Hjálparstarf ADRA hefur verið á Íslandi í 40 ár. Í alþjóðlegum úttekt- um fær ADRA sama gæðastimpil og Læknar án landamæra hvað varðar skilvirkni og lítinn kostnað,“ segir Davíð. „Ég fór á vegum samtakanna til Pakistan að byggja skóla með það að markmiði að ná börnum úr þræl- kun. Þarna voru krakkar í múrsteina- verksmiðjum og annarri þrælkun allt í kring en ADRA greiddi börnunum fyrir að vera í skóla og gaf þeim mat svo hagstæðara varð fyrir foreldrana að hafa þau í skóla frekar en vinnu.“ Davíð hafði lengi haft áhuga á hjálp- arstarfi og var búinn að taka þátt í sams konar verkefni í Mið-Amer- íku. „Í svona starfi kynnist maður því hvað er að vera fátækur og hafa enga möguleika í lífinu. Maður verð- ur aldrei samur eftir svona reynslu,“ segir hann alvarlegur. ADRA hefur líka styrkt fjölskyldu- hjálp á Íslandi og um þessar mundir beitir Íslandsdeildin sér gegn barna- vændi í Kambódíu og Taílandi. „Sam- tökin eru gríðarlega sterk á alþjóða- vísu og þegar ég var í Pakistan þá ráku þau stærsta sjúkrahúsið. Búið er að gera sjónvarpsmynd um verk- efni Íslandsdeilarinnar gegn barna- vændi sem verður sýnd um páskana,“ segir Davíð og bætir við: „Verkefnið í Kambódíu snýst um að fjármagna foreldramenntun. Erfitt er að berj- ast gegn mansali með því að segja fólki að það sé ljótt að selja börn- in sín. Foreldrar selja jafnvel dætur sínar fyrir ísskáp. Foreldrunum er sýnt fram á að þeir græði meira á því að ala dóttur sína upp og senda í nám því þá geti hún séð fyrir þeim í ell- inni. Síðan eru líka stúlknaskólar þar sem þeim er hjálpað út úr þessu og eru að skila gríðarmiklum árangri.“ Þar sem Davíð hefur starfað fyrir ADRA þá þekkir hann þau samtök og treystir þeim. „Rekstarkostnaður er innan við tíu prósent af gjafafé og hjá Íslands- deildinni er hann innan við þrjú pró- sent, sem er mjög lágt.“ En hvað um stórveisluna? „Ég ætl- aði alltaf að halda stóra veislu en eins og frændi minn segir þá held- ur maður ekki stóra veislu fyrr en fólk hefur efni á að gefa almennileg- ar gjafir,“ segir Davíð og hlær hress- ilega. „Tónleikarnir verða mín veisla þar sem fram koma ýmsir sem ég hef sungið með í gegnum tíðina. Má þar nefna Karlakórinn Fóstbræður, Jó- hann Friðgeir, Garðar Thor Cortes, Huldu Björk, Gissur Pál, Stefán Helga og fleiri.“ Tónleikarnir verða rúmur klukku- tími og á léttu nótunum. „Ég ætla ekki að hafa þetta neitt þrúgandi langt en vil þó sýna að ég hafi enn heilsu til að syngja. Dagskráin verður nokkurn veginn í tímaröð þannig að flytjend- urnir tengjast söngferli mínum. Ég byrja á móðurbróður mínum, Steini Erlingssyni, sem varð til þess að ég fór að læra söng. Hann var alltaf að syngja heima og systir mín lék undir á píanó. Hann æfði oft dúetta og þá fór ég að gaula með honum. Söngur er fíkn sem maður losnar aldrei við og þannig þróaðist þetta áfram,“ útskýr- ir Davíð og nefnir að hann hefði viljað bjóða fleirum að syngja með. „Ég býð þeim bara í fjöldasönginn sem verður eftir tónleikana í hliðarsal Langholts- kirkju. Þar verða flatkökur og klein- ur á boðstólum eða þorrapinnamatur,“ segir hann og tekur fram að ræðuhöld verði bönnuð. „Það má bara syngja!“ hrefna@frettabladid.is DAVÍÐ ÓLAFSSON SÖNGVARI: FAGNAR FERTUGU MEÐ TÓNLEIKUM Á MORGUN Ræðuhöld verða með öllu bönnuð ALLTAF Í FJÖRINU Davíð ásamt Garðari Thor á æfingu fyrir afmælistónleikana. Miða má panta með því að senda tölvupóst á eirikur@europro.is. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Oddnýjar Guðrúnar Guðmundsdóttir Skógarbæ, áður Lautarsmára 12. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbæjar fyrir alúð og umhyggju. Vilborg Pétursdóttir Sigurður Haraldsson Guðmundur Pétursson Elsa Jónsdóttir Sigríður Pétursdóttir Heiðar Vilhjálmsson Hendrik Pétursson Marianne Hansen Halldóra Pétursdóttir Jóhann Helgason barnabörn og barnabarnabörn. Heimili og skóli - landssam- tök foreldra og SAFT, í sam- starfi við Símann, standa nú fyrir fræðsluherðferð um örugga netnotkun barna og unglinga. Markmið hennar er að vekja athygli foreldra og for- ráðamanna á þeim hættum sem kunna að leynast á net- inu og benda á úrræði sem stuðla að öruggri netnotkun barna og ungmenna. Herferðin felur meðal ann- ars í sér að foreldraráðum og foreldrafélögum í grunnskól- um er boðið upp á erindi um örugga netnotkun. Samhliða fræðsluherferð- inni hefur Síminn vakið at- hygli á öruggri og jákvæðri netnotkun í auglýsingum sem hafa birst í ljósvaka- og prentmiðlum. Öryggi í öndvegi Ásta Eiríksdóttir, 15 ára nemandi í Áslandsskóla, Sævar Freyr Þráins- son, forstjóri Símans, og Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, kynna herferðina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Unnið er að framkvæmda- áætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum og geta áhugasamir sent félags- og tryggingamálaráðuneytinu ábendingar á netinu fram til 10. febrúar. Helstu áherslur í vænt- anlegri þings- ályktunartil- lögu um áætlunina má finna á umræðugrundvelli sem er aðgengilegur á heimasíðu félags- og tryggingamála- ráðuneytisins. Umræðugrundvöllurinn var lagður fyrir á jafnrétt- isþingi 16. janúar og eru það nýmæli að umræður á jafnréttisþingi séu hafð- ar til hliðsjónar við gerð þingsályktunartillögu, að því er fram kemur á vef ráðuneytisins. Áætlun um jafnrétti Unnið er að framkvæmda- áætlun í jafnréttismálum. AFMÆLI SARA GILBERT leikkona er 34 ára. HEATHER GRAHAM leikkona er 39 ára. OPRAH WINFREY sjónvarpskona er 55 ára. GERMAINE GREER, fræðikona og femínisti, er sjötug.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.