Fréttablaðið - 29.01.2009, Side 48
32 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 29. janúar 2009
➜ Tónleikar
19.30 Tékkneskir töfrar Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands flytur verk eftir Dvorák,
Smetana og Martinu í Háskólabíó við
Hagatorg. Einleikari er Helga Þóra Björg-
vinsdóttir.
20.00 Kvennakórinn Vox feminae
stendur fyrir dagskrá í Norrænahúsinu
við Sturlugötu til 1. febrúar. Í kvöld
munu söngkonur úr hópi kórkvenna
flytja texta og söngperlur við undirleik
Antoníu Hevesi. Aðgangur er ókeypis.
22.00 Latínkvartett Tómasar R. Einars-
sonar heldur tónleika á Glaumbar við
Tryggvagötu. Aðgangur ókeypis.
➜ Síðustu Forvöð
Sýningu Kristínar Geirsdóttur lýkur á
sunnudag. Artótek 1. hæð Borgarbóka-
safns Reykjavíkur við Tryggvagötu. Opið
fim. kl. 10-19, föst. kl. 11-19. og um
helgina kl. 13-17.
➜ Hugleiðsla
20.00 Hóphugleiðsla alla fimmtudaga
í Rajadhiraja Jógamiðstöðinni við Efsta-
sund 26. Allir velkomnir.
➜ Sýningar
Haltu kjafti og vertu þæg! Sýning í í
Safnahúsinu á Húsavík, Stóragarði 17.
Á sýningunni eru teknar fyrir skoðanir
fólks á ástandi þjóðfélagsmála í kjölfarið
á hruni fjármálakerfisins á Íslandi. Opið
alla virka daga kl. 9-16. Sýningu lýkur á
föstudag.
➜ Fyrirlestrar
20.00 Gufuneskirkjugarðar / Þjónustu-
byggingar Olga
Bergmann og
Anna Hallin
flytja erindi
í Listasafni
Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu.
➜ Myndlist
Í austursal Kjarvalsstaða við Flókagötu,
gefst gestum kostur á að líta nánast alla
safneign Listasafns Reykjavíkur á verk-
um listamannsins þar sem þau þekja
veggi frá gólfi til lofts. Safnið er opið
alla daga frá kl. 10-17 og aðgangur er
ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Á morgun kl. 12.15
Listasafn Reykjavíkur og Tríó
Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið
verið í samstarfi um hádegistónleika
á Kjarvalsstöðum þar sem aðgangur
er ókeypis. Á morgun kl. 12.15 bjóða
Listasafnið og Tríóið til hádegistón-
leika þar sem klassískur léttleiki
verður í fyrirrúmi. Tríó Reykjavíkur
skipa Guðný Guðmundsdóttir, Gunn-
ar Kvaran og Peter Máté.
Gamla Billjarðstofan á Skúlagötu 26 við Vitastíg hefur fengið end-
urnýjun lífdaga, þó ekki með kjuðum og marmaraborðum balls-
kákarinnar. Nú er þar nýtt dansgólf, ljós, lykt af holdi og hreyf-
ingu. Ljóti andarunginn eða Ugly Duck productions verður þar
með sýningar um helgina: föstudags- og laug-
ardagskvöld verða fjórir nýir nútímadansar
sýndir þar.
Verkin eru Gibbla Yggdrasils,sem er afrakst-
ur danshöfundasmiðju ÍD haustið 2008 og var
sýnt í grunnskólum Reykjavíkur í annarri
mynd. Guðrún Óskarsdóttir, Inga Maren Rún-
arsdóttir og Katla Þórarinsdóttir eru höfundar
og flytjendur verksins. Katrín Gunnarsdótt-
ir, dansari og danshöfundur, sýnir sólóverk í
vinnslu sem byggir á rannsóknum á ísbjörnum.
Katrín útskrifaðist frá ArtEZ í Hollandi síðast-
liðið. Kama Jezierska sýnir sólóverkið Ang-
usta. Kama útskrifaðist úr dansi frá Uniwer-
sytet Zielonogorski í Póllandi. Hún hefur unnið
með fjölda leikstjóra, danshöfunda og leiðbein-
endum í Evrópu. Steinunn Ketilsdóttir sýnir verk í vinnslu. Stein-
unn útskrifaðist vorið 2005 frá Hunter College í NY með BA-próf í
listdansi. - pbb
Fjögur ný dansverk
Í blábyrjun kreppunnar
eru nemendur í Söngskóla
Reykjavíkur á fljúgandi
ferð sannfærðir um að
söngurinn er frelsandi.
Þeir verða áberandi í kirkjum
víða nú um helgina í einsöngs-
hlutverkum og á föstudags- og
laugardagskvöld dýrka þeir ver-
aldlegri guði með skemmtisýn-
ingu sem þeir hafa sett saman
og verður almenningi og vanda-
mönnum til sýnis gegn vægu
gjaldi í Íslensku óperunni við
Ingólfsstræti. Söngleikur er unn-
inn í smiðju og settur upp í sam-
starfi við Íslensku óperuna. Verk-
ið kalla þau The Show Must Go
On!, en það er kunnur frasi úr
bandarískum skemmtiiðnaði.
Boðið er upp á skemmtilega
sýningu með stórum hópi flytj-
enda: um er að ræða bráðs-
kemmtilega sýningu sem 29 ungir
og upprennandi söngvarar halda
uppi af lífsgleði og kunnáttu.
Söngleikurinn, texti og fram-
vinda, er saminn af flytjendum
og aðstandendum en tónlistin er
úr þekktum og vinsælum söng-
leikjum með ábæti af kunnum
dægurlögum.
Undirbúningur tónlistar og
stjórn hljómsveitar er í hönd-
um Kjartans Valdemarssonar en
leikstjóri og höfundur dansa er
Sibylle Köll
Tvær sýningar eru ráðgerðar
á verkinu í Íslensku óperunni:
annað kvöld kl. 20 og sunnudag-
inn 1. febrúar kl. 17. Aðgöngu-
miðasala er í miðasölu Íslensku
óperunnar, daglega kl. 14-18 og
fram að sýningum á http://midi.
is/opera .
SÖNGSKÓLANEMENDUR
Í SÖNGLEIK OG KIRKJUM
TÓNLIST Frá æfingu á Söngleik Söngskólans í Reykjavík fyrr í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
108 PRÓTÓTÝPE JAN-
ÚAR 2008
Tilkynnt var á þriðjudag um úthlutanir styrkja Reykjavíkurborgar til
listaverkefna og er haldið áfram þeirri stefnu að gera samstarfs-
samninga til lengri tíma. Alls var úthlutað tæpri 41 milljón sem
dreifist til sextíu og eins aðila.
Elektra Ensemble var valinn Tónlistarhópur Reykjavíkur árið
2009 og hlýtur þess vegna styrk sem nemur 1,8 milljónum króna.
Hópinn skipa fimm ungir hljóðfæraleikarar sem allir hafa komið
fram sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands og stundað
framhaldsnám erlendis. Hópurinn hefur leikið saman í rúmt ár og
er með áhugaverða tónleikaröð í bígerð fyrir árið 2009.
Næststærstu styrkina, kr. 900.000, hljóta leikhópurinn Lab Loki
sem vinnur að uppsetningu leikverksins Ufsagrýlur eftir Sjón en
hann var í fyrra með hæsta styrk leiklistarráðs og setti upp lofaða
sýningu á þessum vetri, Steinar úr djúpinu. Ufsagrýlur eftir Sjón er
fyrsta leikverk hans í langan tíma.
Strengjaleikhúsið fékk einnig 900 þúsund til að frumflytja
óperuna Farfuglinn eftir Hilmar Þórðarson í samvinnu við Tónlist
fyrir alla en þetta einkaframtak Messíönu Tómasdóttur á að baki
strengjaverk eftir íslensk tónskáld og hefur staðið fyrir frumflutn-
ingi fleiri íslenskra óperuverka en Íslenska óperan.
Samtals voru veittir 36 styrkir og 26 samstarfs-
samningar. Af stærstu samstarfssamningum fyrir
árið 2009 hlýtur Nýlistasafnið 4,8 milljónir, leik-
hópurinn Vesturport 2,9 milljónir, Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar 2,8 milljónir og tónlistarhópurinn Caput 2
milljónir. Söfnin tvö standa fyrir kraftmikilli starfsemi og
eiga stórt verkasafn sem er einstakt í sinni röð en bæði
Caput og Vesturport hafa verið í framvarðarsveit á sínu
sviði. Blúshátíð, Jazzhátíð og Sequ-
ences fá styrki en þegar kemur til
smærri styrkja og þeir fara allt niður
í 90 þúsund dreifast þeir á ólíka og
margbreytilega staði. Vænta má að
þegar kemur til niðurskurðar á framlagi
til lista á næstu árum verði frekar hugað
að stærri og færri styrkjum, og aðrir fari frá
borði styrklausir. pbb@frettabladid.is
Borgin styrkir listastarf
LEIKLIST Verk eftir Sjón í sviðsetningu Lab
Loka verður styrkt af borginni.
Sýningar um helgina
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Hrífandi verk sem snertir okkur öll
EB, FBL
lau. 24/1 uppselt
sun. 25/1 uppselt
Sumarljós
Jón Kalman Stefánsson
leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson
Hrífandi, einlæg og æsandi sýning
fös. 30/1, lau 31/1 örfá sæti laus
Sýningum að ljúka
Kardemommu-
bærinn
Thorbjörn Egner
Frumsýning 21. febrúar
Miðasala í fullum gangi!
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Heiður
Joanna Murray-Smith
Drepur girndin ástina? JVJ, DV
fös. 30/1 örfá sæti laus
Skoppa
og Skrítla
snúa aftur í febrúar!